Engar viðræður í gangi um milljarðakröfu borgarinnar á íslenska ríkið

Borgin stefndi rík­inu í lok síð­asta árs og krafð­ist 8,7 millj­arða króna. Ráðherra kall­aði kröf­una „frá­leita“ en samt sem áður áttu sér stað við­ræður um lend­ingu. Þær hafa verið á ís frá því fyrir kosn­ingar.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hafa haft ólíka sýn á málatilbúnaðinn.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, og Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, hafa haft ólíka sýn á mála­til­bún­að­inn. Mynd: Aðsend

Reykja­vík­ur­borg stefndi íslenska rík­inu í lok síð­asta árs og krafð­ist þess að það greiði sér 8,7 millj­arða króna auk vaxta og drátt­ar­vaxta. Málið var þing­fest í lok jan­ú­ar­mán­aðar 2021. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans stendur yfir gagna­öflun vegna máls­ins og að óbreyttu verður það leyst fyrir dóm­stólum. Viðræður um sátt stóðu þó yfir framan af ári en þær hafa legið niðri frá því í sumar og ekki er búist við að þær hefj­ist aftur fyrr en ný rík­is­stjórn verður kynnt til leiks.

[links]Til að setja upp­hæð­ina sem er undir í sam­hengi má nefna að fjár­hags­á­ætlun sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar gerir ráð fyrir að hún verði rekin með 8,6 millj­arða króna afgangi á næsta ári, að með­töldum arð­greiðslum frá fyr­ir­tækjum í eigu hennar. Sá tap­rekstur sem verður á A-hluta borg­ar­innar, þeim hluta sem fjár­magn­aður er með skatt­tekjum, og er rekin til áhrifa af kór­ónu­veiru­far­aldr­inum er áætl­aður 18,9 millj­arðar króna á árunum 2020 til 2022. Upphæðin sem borgin er að reyna að sækja á ríkið nemur næstum helm­ingi þess taps.

Ástæða kröf­unnar er að borgin telur sig hafa verið úti­lok­aða með ólög­­mætum hætti frá því að eiga mög­u­­leika á að fá ákveðin fram­lög úr Jöfn­un­­ar­­sjóði sveit­­ar­­fé­laga. Um er að ræða tekju­­jöfn­un­­ar­fram­lög, jöfn­un­­ar­fram­lög vegna rekst­­urs grunn­­skóla og fram­lög til nýbú­a­fræðslu. Deil­­urnar snúa að upp­i­­­stöðu að reglum sem úti­­loka borg­ina frá fram­lögum í skóla­­mál­um, t.d. vegna barna af erlendum upp­­runa, en þau eru lang­flest í Reykja­vík (44 pró­­sent erlendra rík­­is­­borg­­ara á Íslandi búa í Reykja­vík­­).

Sam­an­lagt metur borgin þá upp­­hæð sem hún inni á 8,7 millj­­arða króna auk vaxta vegna tíma­bils­ins 2015-2019.

Byggir á niðurstöðu Hæstaréttardóms

Reykja­vík er langstærsta sveit­ar­fé­lag lands­ins og greiðir ­mest allra sveit­ar­fé­laga í Jöfn­un­ar­sjóð­i sveit­ar­fé­laga, en um 12 pró­sent af útsvari borg­ar­innar fer í hann árlega. Það gera rúm­lega ell­efu millj­arðar króna. Borgin fær til baka um átta millj­arða króna vegna mála­flokks fatl­aðs fólks og rekst­urs Kletta­skóla.

[adspot]Reykja­vík­ur­borg taldi með hlið­sjón af Hæsta­rétt­ar­dómi sem féll í maí 2019, í máli sem sem sagði að það væri brot gegn stjórn­ar­skrá að fella niður jöfn­un­ar­fram­lag til Gríms­nes- og Grafn­ings­hrepps, að hún hafi verið úti­lokuð með ólög­mætum hætti frá því að eiga mögu­leika á að fá ákveðin fram­lög úr Jöfn­un­ar­sjóði sem borgin fær ekki í dag.

Reykja­vík sendi rík­is­lög­manni bréf 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og krafð­ist greiðslu á upp­hæð­inni, alls 8,7 millj­örðum króna. Ef hún feng­ist ekki greidd myndi borgin höfða mál.

Ráðherra kallaði kröfuna „fráleita“

Íslenska ríkið hefur neitað að greiða upp­hæð­ina og Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, gagn­rýndi Reykja­vík­ur­borg harð­lega fyrir að setja kröf­una fram og sagt hana frá­leita.

Áður en mál­inu var stefnt áttu sér stað þreif­ingar um sættir eða sátta­við­ræður fyrir síð­ustu jól. Þær skil­uðu ekki sam­komu­lag­i.

Í bréfi sem Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, lagði fyrir borg­ar­ráð snemma árs, sem stílað var á Sig­urð Inga Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, og dag­sett 5. jan­ú­ar, var því lýst yfir að Reykja­vík­ur­borg væri viljug til við­ræðna við íslenska ríkið um hugs­an­legar sættir í mál­inu þrátt fyrir að búið væri að stefna. „Reykja­vík­ur­borg hefur fulla trú á að slíkar við­ræður geti skilað árangri og von­ast til að ríkið nálgist málið af sama hug,“ sagði í bréf­inu.

Heim­ildir Kjarnans að þær við­ræður hafi farið fram og að ágætur gangur hafi verið í þeim fram eftir ári. Þegar nær dró kosn­ingum hafi hins vegar dregið úr þeim og við­ræð­urnar legið í þagn­ar­gildi síðan í sumar. Innan borg­ar­innar er búist við því að þannig verði málum háttað að minnsta kosti þangað til að ný rík­is­stjórn verði mynduð, en nýj­ustu fregnir benda til þess að það verði í fyrsta lagi í næstu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár