Borgin gefur ríkinu út næstu viku til að borga 8,7 milljarða króna, annars mun hún höfða mál

Reykja­vík­ur­borg telur að hún hafi verið úti­lokuð frá því að hljóta fram­lög úr Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga árum saman og að sú úti­lokun sé bæði and­stæð lögum og stjórn­ar­skrá. Hún fer fram á 8,7 millj­arða króna auk vaxta og drátt­ar­vaxta.

Reykja­vík­ur­borg mun höfða mál á hendur íslenska rík­inu, og krefj­ast greiðslu á 8,7 millj­örðum króna, ef ríkið sam­þykktir ekki að greiða upp­hæð­ina, með vöxtum og drátt­ar­vöxtum, fyrir 4. des­em­ber næst­kom­andi. Þetta kemur fram í bréfi sem Ebba Schram borg­ar­lög­maður sendi Einari Karli Hall­varðs­syni rík­is­lög­manni 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og Kjarninn hefur undir höndum.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, gerði bréfið á umtals­efni í ávarpi sínu á árs­fundi Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga í síð­ustu viku. Þar tal­aði hann meðal ann­ars um það sem hann kall­aði „óskilj­an­lega aðför Reykja­vík­ur­borgar“ og átti þar við ofan­greinda kröfu.

Sigurður Ingi sagði að kröf­unni hafi verið hafnað og að hún væri frá­leit. „Ég hef tekið málið upp við borg­ar­stjóra og átti eig­in­lega von á því að þetta mál yrði dregið til baka[...]Mér varð hins vegar ekki að óski minni því fyrir um tveimur vikum barst rík­is­lög­manni ítrek­un­ar­bréf frá borg­inni um þessa kröfu­gerð. Mik­il­vægt er að borg­ar­full­trúar í Reykja­vík sem og allt sveit­ar­stjórn­ar­fólk geri sér grein fyrir því að þess­ari kröfu er ekki beint gegn rík­is­sjóði – henni er beint gegn sveit­ar­fé­lög­unum í land­inu. Rík­is­sjóður borgar ekki kröfur sem verða dæmdar á rík­is­sjóð vegna Jöfn­un­ar­sjóðs, það verður Jöfn­un­ar­sjóður að gera sjálfur.“

Hann hvatti svo borg­ina til að draga kröf­una til baka.

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, svar­aði fyrir kröf­una í stöðu­upp­færslu á Facebook í kjöl­farið. Þar sagði hann að borgin væri ekki að biðja um sér­reglur fyrir sig heldur að hún yrði metin eftir sömu reglum og aðrir. „Enginn hefur getað útskýrt sann­girn­ina í núver­andi fyr­ir­komu­lagi og það eru von­brigði ef ekki tekst að ná sam­komu­lagi um eðli­legar leið­rétt­ingar á þessu.“

En um hvað snýst þetta mál eig­in­lega?

Ríkið lagt í Hæstarétti í fyrra

Jöfn­un­ar­sjóður sveit­ar­fé­laga hefur það hlut­verk að jafna mis­mun­andi útgjalda­þörf og skatt­tekjur sveit­ar­fé­laga með fram­lögum. Honum eru tryggðar fastar tekjur á ári hverju með fram­lagi úr rík­is­sjóði, hlut­deild í útsvars­tekjum sveit­ar­fé­laga og vaxta­tekjum.

Stöðuuppfærsla borgarstjóra í síðustu viku.
Stöðu­upp­færsla borg­ar­stjóra í síð­ustu viku.

Allar reglur sjóðs­ins byggja á þeim grunni að sveit­ar­fé­lög eigi ekki rétt til jafnra fram­laga heldur fari úthlut­anir fram á grund­velli mál­efna­legra og hlut­lægra reglna sem fela í sér útreikn­inga eða mögu­lega lækkun eða nið­ur­fell­ingu á fram­lögum. Í grein­ar­gerð sem fylgdi laga­breyt­ingu á lögum um tekju­stofna sveit­ar­fé­laga þar sem sér­stak­lega var fjallað um for­sendur úthlut­unar úr Jöfn­un­ar­sjóði, og voru sam­þykkt á Alþingi í lok árs í fyrra, sagði að regl­urnar væru settar til að ná þeim mark­miðum að „jafna stöðu sveit­ar­fé­laga með lægri tekjur í sam­an­burði við sam­bæri­leg sveit­ar­fé­lög þannig að allir íbúar lands­ins fái notið sams konar þjón­ustu frá sínu sveit­ar­fé­lagi, sama hvar þeir búa.“

Í maí í fyrra féll dómur í Hæsta­rétti sem sagði að það væri brot gegn stjórn­ar­skrá að fella niður jöfn­un­ar­fram­lag til Grímsnes- og Grafn­ings­hrepps úr Jöfn­un­ar­sjóð sveit­ar­fé­laga. Ríkinu var enn fremur gert að greiða sveit­ar­fé­lag­inu 234,4 millj­ónir króna auk vaxta og drátt­ar­vaxta. For­saga máls­ins er sú að ríkið gerði breyt­ingar á reglu­gerð um úthlutun úr Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga, þar sem kveðið var um að þau sveit­ar­fé­lög sem hefðu heild­ar­skatt­tekjur af útsvari og fast­eigna­skatti, sem teld­ist veru­lega umfram lands­með­al­tal, skyldu ekki njóta til­tek­inna fram­laga úr sjóðn­um.

Þágild­andi reglu­gerð um Jöfn­un­ar­sjóð sveit­ar­fé­laga nr. 960/2010 var svo breytt á grund­velli fram­an­greindrar heim­ildar með reglu­gerð nr. 1226/2012. Var þar mælt fyrir um nýja grein í stofn­reglu­gerð­inni en sam­kvæmt henni skyldu fram­lög til þeirra sveit­ar­fé­laga þar sem heild­ar­skatt­tekjur væru að minnsta kosti 50 pró­sent umfram lands­með­al­tal, það er útsvar og fast­eigna­skattur á hvern íbúa miðað við full­nýt­ingu þeirra tekju­stofna, falla nið­ur.

Gríms­nes- og Grafn­ings­hreppur var eitt þeirra fimm sveit­ar­fé­laga sem sættu nið­ur­fell­ingu jöfn­un­ar­fram­laga af þessum sök­um. Höfð­aði hrepp­ur­inn málið á þeim for­send­um, og krafð­ist greiðslu sem svar­aði til þeirra fjár­hæðar sem hann hefði fengið á árunum 2013 til 2016 ef ekki hefði komið til ákvörðun ráð­herra um nið­ur­fell­ingu greiðsln­anna.

Og vann.

Útiloka greiðslur til borgarinnar vegna barna af erlendum uppruna

Reykja­vík er langstærsta sveit­ar­fé­lag lands­ins og greiðir lang­mest allra sveit­ar­fé­laga í Jöfn­un­ar­sjóð­inn, en um 12 pró­sent af útsvari borg­ar­innar fer í hann árlega. Það gera rúm­lega ell­efu millj­arðar króna. Borgin fær til baka um átta millj­arða króna vegna mála­flokks fatl­aðs fólks og rekst­urs Kletta­skóla.

Reykja­vík­ur­borg telur með hlið­sjón af Hæsta­rétt­ar­dómnum sem féll í maí í fyrra að hún hafi verið úti­lokuð með ólög­mætum hætti frá því að eiga mögu­leika á að fá ákveðin fram­lög úr Jöfn­un­ar­sjóði sem borgin fær ekki í dag, og krefst þess að ríkið greiði sér sem nemur tekju­jöfn­un­ar­fram­lögum, jöfn­un­ar­fram­lögum vegna rekst­urs grunn­skóla og fram­lögum til nýbúa­fræðslu. Sam­an­lagt metur borgin þá upp­hæð sem hún inni á 8,7 millj­arða króna auk vaxta vegna tíma­bils­ins 2015-2019.

Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í maí í fyrra að það væri brot gegn stjórnarskrá að fella niður jöfnunarframlag til Grímsnes- og Grafningshrepps úr Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu í maí í fyrra að það væri brot gegn stjórn­ar­skrá að fella niður jöfn­un­ar­fram­lag til Grímsnes- og Grafn­ings­hrepps úr Jöfn­un­ar­sjóð sveit­ar­fé­laga. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, sagði í stöðu­upp­færslu á Facebook í síð­ustu viku að deil­urnar snúi að uppi­stöðu að reglum sem úti­loki borg­ina frá fram­lögum í skóla­málum, t.d. vegna barna af erlendum upp­runa, en þau eru lang­flest í Reykja­vík.

Dagur benti á að öll önnur sveit­ar­fé­lög á land­inu fái greiddar 130 þús­und krónur með hverju barni af erlendum upp­runa úr sjóðnum vegna kennslu. Sömu sögu væri að segja um almennt jöfn­un­arumar­fram­lag vegna grunn­skóla þar sem um hærri upp­hæðir væri að ræða. „Borgin er ekki að biðja um sér reglur fyrir sig heldur þvert á móti að vera metin eftir sömu reglum og aðrir. Enginn hefur getað útskýrt sann­girn­ina í núver­andi fyr­ir­komu­lagi og það eru von­brigði ef ekki tekst að ná sam­komu­lagi um eðli­legar leið­rétt­ingar á þessu.“

Úthlutunarreglum breytt til að undanskilja Reykjavík

Eftir að dóm­ur­inn féll lagði Sigurður Ingi Jóhanns­son fram frum­varp um breyt­ingu á lögum um tekju­stofna sveit­ar­fé­laga og sveit­ar­stjórn­ar­lögum, og sér­stak­lega um for­sendur úthlut­ana úr Jöfn­un­ar­sjóði.

Í grein­ar­gerð sagði að frum­varpið hefði verið lagt fram af Sigurði Inga til að „að styrkja ann­ars vegar for­sendur og grund­völl úthlut­ana úr Jöfn­un­ar­sjóði og hins vegar skýra heim­ildir lög­gjaf­ar­innar til að fella niður fram­lög úr sjóðnum í sam­ræmi við dóm Hæsta­réttar frá 14. maí 2019.“

Í þessu fólst meðal ann­ars að úthlut­un­ar­reglum var breytt þannig að bætt var við sér­stökum við­mið­un­ar­flokki fyrir sveit­ar­fé­lög sem hafa 70.000 íbúa eða fleiri. Eitt sveit­ar­fé­lag er nægi­lega stórt til að falla í þann flokk, Reykja­vík­ur­borg.

Þá var gerð breyt­ing á úthlut­unum grunn­skóla­fram­laga, ann­ara en þeirra sem byggja á sér­stökum samn­ingi, sem komu í veg fyrir að slík renni til Reykja­vík­ur­borgar og sér­stakir útreikn­ingar á fram­lagi vegna jöfn­unar á tekju­tapi sveit­ar­fé­laga vegna lækk­unar fast­eigna­skatts­tekna í kjöl­far breyt­inga á álagn­ing­ar­stofni mann­virkja lög­festir, þar sem slíkt fram­lag var reiknað út frá fast­eignum í Reykja­vík.

Allar ofan­greindar reikn­ings­reglur og tak­mark­anir á fram­lögum fela í sér að fram­lög til Reykja­vík­ur­borgar úr Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga lækka eða falla niður.

Laga­breyt­ingin í des­em­ber 2019 virð­ist hafa verið gerð sér­stak­lega með það fyrir augum að hindra að Reykja­vík gæti sótt auknar greiðslur í jöfn­un­ar­sjóð­inn. Þau lög tóku gildi þegar þau voru sam­þykkt 17. des­em­ber 2019. Krafa Reykja­vík­ur­borgar er, líkt og áður sagði, vegna áranna 2015-2019.

Hafa rúma viku

Í bréfi borg­ar­lög­manns segir að regl­urnar sem voru í þágild­andi lögum hafi úti­lokað hana frá því að hljóta áður­nefnd fram­lög úr Jöfn­un­ar­sjóði eða skertu þau. Fyrir því hafi skort laga­stoð enda væru regl­urnar í and­stöðu við lög um tekju­stofna sveit­ar­fé­laga, jafn­ræð­is­reglu stjórn­ar­skrár og rétt­mæt­is­reglu.

Í nið­ur­lagi bréfs­ins segir að með vísan til inni­halds þess ítreki Reykja­vík­ur­borg þær kröfur og sjón­ar­mið sem hún hafi sett fram í bréfi sem var upp­haf­lega sent vegna máls­ins 20. des­em­ber 2019. „Komi ekki til greiðslu á fram­an­greindri fjár­hæð [8,7 millj­örðum króna], ásamt vöxtum og drátt­ar­vöxtum[...]eða við­ur­kenn­ingar af hálfu íslenska rík­is­ins á greiðslu­skyldu fyrir 4. des­em­ber 2020 mun Reykja­vík­ur­borg höfða mál á hendur íslenska rík­inu fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið undanfarið ár