Janúkóvíts ekki lengur eftirlýstur af Interpol

Viktor Janúkó­víts, fyrr­ver­andi for­seti Úkraínu, er ekki lengur eft­ir­lýstur af alþjóða­lög­regl­unni Interpol. Ákæran á hendur honum var ógilduð eftir að Interpol fór yfir gögn lög­maður Janúkó­víts lagði fram.

Janúkó­víts var fyrst settur á lista Interpol 12. jan­úar í ár eftir að ný stjórn­völd í Úkraínu höfuð farið fram á að það yrði gert fyrir að hafa notað almannafé til einka­nota, auðg­un­ar­brot og spill­ingu í emb­ætti for­seta. Janúkó­víts var hrak­inn frá völdum í Úkraínu í mót­mæl­unum í febr­úar 2014. Hann flúði þá til Rúss­lands og talið er að hann haldi sig þar enn.

Að sögn tals­manns Interpol lagði Joseph Hage Aaronson, lög­maður Janúkó­víts, til gögn sem skylda lög­reglu­sam­tökin til að rann­saka mál Janúkó­víts mun betur. Í kjöl­farið hefur for­set­inn fyrr­ver­andi, eini eft­ir­lif­andi sonur hans Oleksandr og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra lands­ins Mykola Azarov, verið teknir af lista eft­ir­lýstra ein­stak­linga. Jafn­framt geta stjórn­völd aðild­ar­landa Interpol ekki nálg­ast gögn sam­tak­anna um þessa ein­stak­linga.

Hinn sonur Janúkó­víts, Viktor, drukkn­aði þegar fjöl­skyldu­bíll hans fór niður um ís á Baíkal­vatni í Síberíu í mars.

[caption id="attachment_16627" align="alignnone" width="984"] Ekki er lengur hægt að skoða upp­lýs­ingar um Janúkó­víts á vef Interpol.[/caption]

Eins og Kjarninn greindi frá í jan­úar þá hafði Interpol dregið það að setja Janúkó­víts á lista eft­ir­lýstra manna vegna þess að sam­kvæmt reglum lög­reglu­sam­tak­anna var málið rekið af póli­tískum ástæðum.

Ólíklegt þykir að Janúkó­víts verði hand­tek­inn í Rúss­landi fyrir nokkrar sakir en heima í Úkraínu hefur almenn­ingur lagt mikla áherslu á að for­set­inn fyrr­ver­andi verði sóttur til saka fyrir morð á mót­mæl­endum á Frelsis­torg­inu í Kænu­garði síð­asta vetur.

Dómur yfir fyrr­ver­andi ráða­mönnum í Úkraínu er jafn­framt tal­inn mik­ill próf­steinn fyrir nýja rík­is­stjórn lands­ins og for­set­ann Petró Porosjenkó.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár