Framlög streyma inn til UNICEF og 500 sjálfboðaliðar skráð sig hjá Rauða krossinum

„Seinustu daga hafa fram­lögin streymt inn. Við hjá UNICEF á Íslandi erum virki­lega snortin yfir hlut­tekn­ing­unni sem við finnum hér heima,“ segir Berg­steinn Jónsson, fram­kvæmda­stjóri UNICEF á Íslandi, um neyð­ar­söfnun UNICEF fyrir börn í Sýrlandi.

Söfnunin hefur staðið yfir frá haustinu 2012. Fjöldi fólks hefur lagt henni lið frá því um helg­ina, en mikil vakn­ing hefur verið, meðal ann­ars á sam­fé­lags­miðlum, um stöðu flótta­fólks frá Sýrlandi.

„Ástandið vegna stríðs­ins í Sýrlandi er skelfi­legt og því er ánægju­legt að sjá við­brögð fólks hér á landi,“ segir Berg­steinn í frétta­til­kynn­ingu. Sigríður Víðis Jóns­dóttir, kynn­ing­ar­stjóri og upp­lýs­inga­full­trúi UNICEF, segir í sam­tali við Kjarnann að yfir tvær millj­ónir króna hafi safn­ast um helg­ina og í dag.

Þá hafa 500 manns skráð sig sem sjálf­boða­liða hjá Rauða kross­inum á síð­asta sól­ar­hring. Aldrei hafa jafn­margir sjálf­boða­liðar bæst við á eins stuttum tíma, að sögn Björns Teits­sonar, upp­lýs­inga­full­trúa Rauða kross­ins.

Tíu þúsund vilja hjálpa flóttamönnum


Tíu þús­und Íslend­ingar hafa skráð sig á Facebook-síð­una Kæra Eygló Harðar - Sýrland kallar frá því að síðan var stofnuð um helg­ina. Þar lýsir fólk því yfir hvað það er reiðu­búið að gera til þess að aðstoða flótta­fólk sem hingað gæti komið, og hvetur stjórn­völd til þess að taka á móti mun fleiri flótta­mönnum en þeim 50 kvótaflótta­mönnum sem búið er að sam­þykkja að komi hingað til lands.

Þar hefur fólki verið bent á bæði söfnun UNICEF og að skrá sig sem sjálf­boða­liða hjá Rauða kross­inum, auk þess sem búið er að útbúa skjal til að skipu­leggja hjálp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár