Bjóst ekki við því að ríkisstjórnin lifði kjörtímabilið vegna hneykslismála

Björt Ólafs­dóttir seg­ist hafa gert ráð fyrir því að síð­asta rík­is­stjórn myndi ekki lifa af. Hún hafi því viljað ljúka sínum málum á tveimur árum. Hún var viss um að hneyksl­is­mál myndu koma upp og að Sjálf­stæð­is­flokkur myndi ekki bregð­ast rétt við þeim.

Björt ÓIafsdóttir, starfandi umhverfis- og auðlindaráðherra.
Björt ÓIafs­dóttir, starf­andi umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Björt Ólafs­dóttir, starf­andi umhverf­is­ráð­herra, segir að hún hafi viljað klárað sín verk í ráðu­neyt­inu á tveimur árum en ekki fjórum vegna þess að hún vissi að það yrðu hneyksl­is­mál sem erfitt yrði að takast á við. „Ég var í kapp­hlaupi við tím­ann því ég vissi að eitt­hvað mann­legt myndi koma uppá og ég vissi líka, því miður bara af reynsl­unni, að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi ekki bregð­ast rétt við.“ Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem hún setti á Facebook í gær.

Rík­is­stjórnin sem Björt sat í sprakk í sept­em­ber þegar flokkur hennar, Björt fram­tíð, ákvað að slíta stjórn­ar­sam­starf­inu eftir átta mán­uði. Það gerð­ist í kjöl­far upp­reist æru-máls­ins og opin­ber­unar á því að faðir Bjarna Bene­dikts­sonar, sem leiddi stjórn­ina, hefði skrifað með­mæli fyrir dæmdan barn­a­níð­ing sem sótt­ist eftir, og fékk, upp­reist æru. Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra greindi Bjarna frá því að faðir hans hefði gert slíkt mörgum mán­uðum áður en að fjöl­miðlar, almenn­ingur, þing­nefndir og sam­starfs­flokkar Sjálf­stæð­is­flokks í rík­is­stjórn­inni fengu slíkar upp­lýs­ingar. Björt fram­tíð féll svo af þingi í þing­kosn­ing­unum sem haldnar voru í lok októ­ber.

„Það verða hneykslismál“

Í stöðu­upp­færsl­unni seg­ist Björk tengja við það sem Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, hefur sagt um stöð­una í stjórn­málum eins og hún sé í dag. „Djöfulli sem það skiptir mann máli, og maður verður sáttur við sjálfan sig sem póli­tíkus að taka ábyrgð á því að hafa verið kosin og koma þeirri stefnu til leiðar sem maður lof­aði. Hvers vegna erum við hérna ann­ars? Hugsaði ég fyrir nákvæm­leg ári síðan þegar við Óttarr ræddum við Sjálf­stæð­is­flokk­inn um rík­is­stjórn­ar­myndun. Þá var flokk­ur­inn að sjálf­sögðu eins og alltaf með fjöl­margt í fartesk­inu. En ekki upp­reist æru. Það er mér enn til furðu að ein­hverjum geti fund­ist það létt­vægt mál.“

Hún segir að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­urnar sem leiddu til þess að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar hafi verið mynduð hafi gengið vel þar sem flokkur Bjartrar sé í mörgum atriðum sam­mála Sjálf­stæð­is­flokknum, í það minnsta á pappír.

„En svo er það það sem að ekki er skrifað í neinar stefnur en allir auð­vitað vita. Það mun eitt­hvað koma uppá. Það lætur ein­hver eins og and­skot­inn. Það verða hneyksl­is­mál.

Í þessu sam­bandi verð ég að við­ur­kenna hér með illa með­ferð á mínum yfir­burða aðstoð­ar­mönnum í Umhverf­is­ráðu­neyt­inu. Ég var harður hús­bóndi því ég vildi klára mín verk á tveimur árum en ekki fjórum. Ég var í kapp­hlaupi við tím­ann því ég vissi að eitt­hvað mann­legt myndi koma uppá og ég vissi líka, því miður bara af reynsl­unni, að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi ekki bregð­ast rétt við. Og það var það sem gerð­ist.“

Bað Sjálfstæðisflokkinn að bregðast við

Björt segir að það hafi ekki bara verið ákveðið sí svona að slíta rík­is­stjórn­ar­sam­starfi á kvöld­fundi heima hjá Óttarri Proppé. Það hafi átt sér aðdrag­anda. Þau tvö hefðu til að mynda séð það fyrir að sam­starf­inu yrði slit­iði þegar fréttir í fjöl­miðlum bár­ust af stöðu Bjarna Bene­dikts­sonar. „Ég hringdi og bað fólk hjá sam­starfs­flokknum um að bregð­ast við. En það var búið að ákveða að gera það ekki og þar við sat. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vissi það fyrir umrætt afdrifa­ríkt raf­rænt kosn­inga­kvöld hvað myndi ger­ast. Skeyt­inga­leysi og leynd­ar­hyggja gagn­vart ömur­legri stjórn­sýslu vegna kyn­ferð­is­glæpa myndi aldrei líð­ast hjá Bjartri Framtíð. Svo ein­falt var það í huga okkar- en svo flókið fyrir mörgum öðrum.“

Björt seg­ist því vita hvað ferða­lag með Sjálf­stæð­is­flokknum kosti. Í til­felli hennar flokks hafi það kostað hann til­veru sína á Alþingi. „Núna er trú­verð­ug­leik­inn gef­inn eftir fyr­ir­fram. Ég er ekki pólitiskt með Vinstri Grænum fyrir fimmaur. Kaupi ekki græna talið því verkin hjá þeim vitna um annað, trúi ekki körlunum þegar þeir tala um fem­in­isma en gefa ekki þuml­ung eftir vegna sjálfs síns og 34 ára á Alþingi.

En það er þarna taug til Katrínar og ann­arra kvenna í VG sem ég hef unnið með á þingi.

Ég mun auð­vitað taka rimm­una við þær og þessa væntu rík­is­stjórn og það verður fínt fyrir mig og Bjarta Framtíð.

En ég óska þeim samt ekki að gera sömu mis­tök og við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár