Teitur Björn Einarsson, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra, ætlar að gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, gefur einnig kost á sér í það sæti. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, aðstoðarmaður Ólafar Nordal innanríkisráðherra, ætlar að gefa kost á sér í annað sætið.
Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, leiddi listann í kjördæminu en hann ætlar að hætta eftir 25 ár á þingi. Prófkjör verða haldin hjá Sjálfstæðisflokknum 3. og 10. september.
[adspot]
Teitur tilkynnir þetta á Facebook síðu sinni. Þar segir hann:
Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í prófkjöri sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi og sækist eftir 1. sæti. Ég er reiðubúinn að axla þá ábyrgð sem fylgir því að leiða listann og vera fulltrúi fólks á Alþingi og vil leggja mitt af mörkum við þá vinnu sem framundan er á næsta kjörtímabili.
Kosningarnar í haust munu einna helst snúast um þau tækifæri sem við nú höfum til að byggja upp samfélagið á þann hátt sem við teljum skynsamlegan og réttlátan. Grundvöllur aukinnar velferðar er verðmætasköpun og huga þarf að því að þetta tvennt fari saman, hvar á landinu sem er.
Ég hlakka til þess að fara um Norðvesturkjördæmi á næstum vikum og eiga samtal við fólk, kynna mig og hvað ég stend fyrir. Mestu skiptir að sjálfstæðismenn velji hæft og dugmikið fólk á framboðslista sem hefur breiða skírskotun og getu til að takast á við þau margvíslegu verkefni sem að inna þarf að hendi til þess að bæta lífskjör og styrkja stoðir samfélagsins. Ég hlakka til þess að fara um Norðvesturkjördæmi á næstum vikum og eiga samtal við fólk, kynna mig og hvað ég stend fyrir.
Mestu skiptir að sjálfstæðismenn velji hæft og dugmikið fólk á framboðslista sem hefur breiða skírskotun og getu til að takast á við þau margvíslegu verkefni sem að inna þarf að hendi til þess að bæta lífskjör og styrkja stoðir samfélagsins. Ég hlakka til þess að fara um Norðvesturkjördæmi á næstum vikum og eiga samtal við fólk, kynna mig og hvað ég stend fyrir.
Mestu skiptir að sjálfstæðismenn velji hæft og dugmikið fólk á framboðslista sem hefur breiða skírskotun og getu til að takast á við þau margvíslegu verkefni sem að inna þarf að hendi til þess að bæta lífskjör og styrkja stoðir samfélagsins.
Ég hlakka til þess að fara um Norðvesturkjördæmi á næstum vikum og eiga samtal við fólk, kynna mig og hvað ég stend fyrir. Mestu skiptir að sjálfstæðismenn velji hæft og dugmikið fólk á framboðslista sem hefur breiða skírskotun og getu til að takast á við þau margvíslegu verkefni sem að inna þarf að hendi til þess að bæta lífskjör og styrkja stoðir samfélagsins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir