0,1 prósent landsmanna á 187 milljarða í eigin fé

Nokkur hund­ruð manna hópur Íslend­inga jók hreina eign sína um 20 millj­arða króna í fyrra. Eignir hóps­ins hafa ekki auk­ist um fleiri krónur milli ára frá því fyrir hrun. Eigið fé allra lands­manna jókst um 123 millj­arða í fyrra.

Hrein eign rík­asta 0,1 pró­sent lands­manna jókst um 20 millj­arða króna í fyrra. Hún hefur ekki auk­ist um svo háa upp­hæð milli ára síðan á milli áranna 2006 og 2007, á hápunkti banka­góð­ær­is­ins. Alls átti þessi hópur, sem telur nokkur hund­ruð manns, 187 millj­arða króna í eigin fé um síð­ustu ára­mót. Hlut­falls­leg eign hóps­ins af heildar eigin fé lands­manna lækk­aði á milli ára og var 6,7 pró­sent. Þessi hópur fjölg­aði hins vegar krón­unum í vasa sínum mun meira en nokkur annar. Þannig átti 0,1 pró­senta hóp­ur­inn þriðj­ung af allri hreinni eign rík­asta pró­sent lands­manna, sem á móti átti fimmt­ung af öllu eigin fé í land­inu í lok árs 2015.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Árna Páls Árna­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um eignir og tekjur lands­manna á árinu 2015 sem birt var á vef Alþingis i gær.

Allir eiga meira, en sumir eiga miklu meira

Eigið fé er sú hreina eign sem stendur eftir þegar búið er að draga skuldir frá eignum.

Samkvæmt tölum Rík­is­skatt­stjóra var eigið fé lands­manna 2.813 millj­arðar króna í lok árs 2015. Ári áður var það 2.443 millj­arðar króna. Það jókst því um 370 millj­arða króna á árinu 2015. Þar af fór 123,4 millj­arðar króna til þeirra fimm pró­sent lands­manna sem áttu mest, eða þriðj­ungur af öllu nýju eigin fé. Um er að ræða mestu aukn­ingu í eigin fé Alls áttu rík­asta fimm pró­sent lands­manna 44,4 pró­sent af öllu eigin fé lands­manna um síð­ustu ára­mót.

Ríkasta eina pró­sent lands­manna, 1.922 fram­telj­endur (629 sam­skatt­aðir og 1.293 ein­hleypir) áttu 559 millj­arða króna í lok síð­asta árs í hreinni eign. Auður þeirra óx um 53 millj­arða króna á árinu, eða um 10,5 pró­sent. Þessi hópur átti 19,9 pró­sent af allri hreinni eign lands­manna um síð­ustu ára­mót, eða fimmtu hverja krónu sem lands­menn áttu í eigið fé. Á tíu árum hefur eigið fé rík­asta pró­sents lands­manna vaxið um 305 millj­arða króna í krónum talið. Þar á hins vegar eftir að taka inn verð­bólgu þannig að hækk­unin á raun­virði er mun minni. Hlut­falls­lega á rík­asta eina pró­sent lands­manna stærra hlut­fall af heild­ar­auðnum í dag en það átti árið 2006.

Í töl­unum er líka tekið saman hversu mikið rík­asta 0,1 pró­sent lands­manna á. Þar er um að ræða færri en 200 fram­telj­endur, sam­skatt­aða og ein­stak­linga. Þessi fámenni hópur á 187 millj­arða króna í hreinni eign og jókst eign hans um 20 millj­arða króna á föstu verð­lagi milli ára. Hrein eign hóps­ins í krónum talið hafði dreg­ist saman á árunum 2009 og út árið 2011. Í lok þess árs var hún 155 millj­arðar króna. Á árinu 2012 hækk­aði eigið fé hóps­ins upp í 167 millj­arða króna og hélst nokkuð stöðug út árið 2014. Síðan átti sér stað mikil eigna­aukn­ing hjá hópnum á síð­asta ári þegar hrein eign hans jókst, líkt og áður segir, um 20 millj­arða króna í krónum talið á einu ári. Það er mesta aukn­ing á hreinni eign sem átt hefur sér stað hjá þessum fámenna hópi síðan á árinu 2007, þegar eigið fé hans jókst um tæpa 62 millj­arða króna á einu ári.

Alls á þessi nokkur hund­ruð manna hópur 6,7 pró­sent af öllum hreinum eignum lands­manna.

Ríkasta prósentið fær þorra fjármagnstekna

Kjarninn greindi frá því fyrr í þessum mán­uði að tekju­hæsta eina pró­sent lands­manna hefði þénað sam­tals tæpa 42 millj­arða króna í fjár­magnstekjur á árinu 2015. Þessi hópur þén­aði alls 44 pró­sent af öllum fjár­magnstekjum sem íslenskir skatt­greið­endur þén­uðu í fyrra. Það þýðir að 99 pró­sent þjóð­ar­innar skipti með sér 56 pró­sent fjár­magnstekna í fyrra. Þetta kom fram í stað­tölum skatta vegna árs­ins 2015, sem birtar voru á vef Rík­is­skatt­stjóra í byrjun októ­ber.

Heild­ar­fjár­magnstekjur ein­stak­linga, sam­kvæmt stað­töl­unum, voru 95,3 millj­arðar króna.Fjár­magnstekjur eru tekjur sem ein­stak­lingar hafa af fjár­magns­eign­um sín­um. Þ.e. ekki laun­um. Þær tekjur geta verið af ýmsum toga. Til dæmis tekjur af vöxtum af inn­láns­reikn­ingum eða skulda­bréfa­eign, tekjur af útleigu hús­næð­is, arð­greiðsl­ur, hækkun á virði hluta­bréfa eða hagn­aður af sölu fast­eigna eða verð­bréfa.

Misskipting auðs hefur verið mjög ofarlega í umræðunni á Íslandi á undanförnum árum.
Mis­skipt­ing auðs hefur verið mjög ofar­lega í umræð­unni á Íslandi á und­an­förnum árum.

Ef tekj­urnar eru útleystar, þannig að þær standi eig­anda þeirra frjálsar til ráð­stöf­un­ar, ber að greiða af þeim 20 pró­sent fjár­magnstekju­skatt sem rennur óskiptur til rík­is­ins. Ljóst er að ein­ung­is ­lít­ill hluti af fjár­magnstekjum var útleystur í fyrra. Skattur á fjár­magnstekjur var 38,8 millj­arðar króna í fyrra og jókst úr 30,6 millj­örðum króna árið 2014. Alls greiddu íslensk heim­ili, ein­stak­lingar og sam­skatt­aðir, 16,7 millj­arða króna. Til við­bótar greiddu fyr­ir­tæki, sjóðir og ríkis­sjóður rúm­lega 20 millj­arða króna í fjár­magnstekju­skatt.

Fasteignaverð hefur hækkað um 62 prósent frá 2010

Helsta ástæða þess að eigið fé flestra Íslend­inga hefur auk­ist hratt á síð­ustu árum er gríð­ar­leg hækkun á hús­næð­is­verði. Sú hækkun hefur haft áhrif á alla hópa sam­fé­lags­ins, en þó hlut­falls­lega mest áhrif á þá sem höfðu eign­ast fast­eignir en áttu lítið eða ekk­ert í þeim. Þorri eigna venju­legra íslenskra launa­manna eru enda bundnar í fast­eignum, þegar eign þeirra í líf­eyr­is­sjóðum er und­an­skilin. Frá árinu 2010, þegar fast­eigna­mark­að­ur­inn náði botni sínum eftir hrunið, hefur vísi­tala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 62 pró­sent. Á því tíma­bili hefur eigið fé Íslend­inga í fast­eignum sínum tvö­fald­ast.

Eigið fé fátæk­ari helm­ings íslensku þjóð­ar­innar var, sam­kvæmt sam­an­tekt Hagstofu Íslands, nei­kvætt um 505 millj­arða króna í lok árs 2010. Það er nú nei­kvætt um 210 millj­arða króna og hefur bragg­ast mjög. Þar skiptir mestu máli að eigið fé hóps­ins í fast­eign er nú jákvætt um rúm­lega 20 millj­arða króna en var nei­kvætt um 88 millj­arða króna í lok árs 2010. Hækkun á fast­eigna­verði, og sú afborgun lána sem átt hefur sér stað á tíma­bil­inu, hefur því hækkað eigin fé þessa hóps um 108 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár