Konur í meirihluta ef ekki væri fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Ef ekki væri fyrir léleg kynja­hlut­föll í þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins væru konur lík­lega í fyrsta sinn í meiri­hluta á Alþingi. Mikið var rætt um stöðu kvenna innan flokks­ins fyrir kosn­ingar. Spurning hvaða konur yrðu ráð­herra­efni flokks­ins.

Spurning er hvaða konur veljast sem ráðherrar ef Sjálfstæðisflokkurinn tekur sæti í ríkisstjórn.
Spurning er hvaða konur velj­ast sem ráð­herrar ef Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tekur sæti í rík­is­stjórn. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Aldrei hafa fleiri konur verið kjörnar á Alþingi en í kosn­ing­unum á laug­ar­dag. 30 konur og 33 karlar munu taka sæti á þingi þegar það kemur saman, sem þýðir að konur verða 47,6 pró­sent og karlar 52,4 pró­sent þing­heims.

Kynja­hlut­föllin eru nokkuð jöfn í öllum þing­flokkum nema þeim langstærsta, þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þar eru konur aðeins þriðj­ungur þing­manna. Ef hlut­föllin væru jafn­ari í þessum stærsta flokki væru kynja­hlut­föllin á þingi enn jafn­ari, og konur mögu­lega í fyrsta sinn fleiri í hópi þing­manna en karlar.

Fjórir þing­menn náðu kjöri hjá Bjartri fram­tíð, þrjár konur og einn karl. Hjá Viðreisn náðu þrjár konur og fjórir karlar kjöri, og hjá Sam­fylk­ingu eru tveir karlar og ein kona í þing­flokknum. Hjá Pírötum eru kynja­hlut­föllin jöfn, fimm konur og fimm karlar, og hjá Vinstri grænum eru sex konur og fjórir karlar í þing­flokknum. Hjá Fram­sókn­ar­flokknum náðu fimm konur inn á þing en þrír karlar. Allir þessir flokkar, nema Píratar, höfðu ein­hverjar reglur eða við­mið um kynja­hlut­föll á listum sínum.

Það hafði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ekki.

Staðan mikið rædd fyrir kosningar

Mikið var rætt um stöðu kvenna innan flokks­ins fyrir kosn­ingar, í kjöl­far þess að konum sem sótt­ust eftir leið­toga­sætum var hafnað bæði í Suður- og Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Karlar röð­uð­ust í efstu fjögur sætin í Suð­vest­ur­kjör­dæmi og í efstu þrjú sætin í Suð­ur­kjör­dæmi, en á end­anum var upp­röð­un­inni í Suð­vest­ur­kjör­dæmi breytt og Bryndís Har­alds­dóttir færð upp í annað sætið. Röð­un­inni í Suð­ur­kjör­dæmi var ekki breytt, en Ragn­heiður Elín Árna­dóttir ákvað að taka ekki sæti á list­anum eftir að henni var hafnað sem odd­vita, og Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir færð­ist í fjórða sætið.

Í kjöl­far próf­kjar­anna sögðu þrír for­menn Lands­sam­bands sjálf­stæð­iskvenna sig úr flokknum, þær Helga Dögg Björg­vins­dóttir, Jar­þrúður Ásmunds­dóttir og Þórey Vil­hjálms­dóttir, sem voru þáver­andi og fyrr­ver­andi for­menn. Þær sögð­ust ekki eiga sam­leið með flokki sem skilar af sér slíkum nið­ur­stöðum úr próf­kjöri.

„Nú teljum við full­reynt að hreyfa við þeim íhalds­sömu skoð­unum og ­gildum sem ríkja um jafn­rétt­is­mál í Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Ýmis­ skref hafa verið stigin sem ættu að leiða til auk­ins jafn­rétt­is kynj­anna á síð­ustu árum. Víð­tæk and­staða hefur þó ver­ið ­gegn því að ganga lengra í að breyta kerfi og ásýnd flokks­ins í þá veru að konur fáist til þátt­töku.“

Mikið hafi verið talað fyrir því að velja „hæf­asta ein­stak­ling­inn“. Það hafi sannað sig í próf­kjörum síð­ustu vikna að þessi mál­flutn­ingur sé úreltur og ekki í neinum takti við nútím­ann, og enn einu sinni hafi komið í ljós að próf­kjör skili ekki endi­lega góðum nið­ur­stöðum „þó að þau séu kannski lýð­ræð­is­leg fyrir þann þrönga hóp sem tekur þátt í þeim.“

Ýms­ir aðrir stjórn­mála­flokkar veigri sér ekki við því að velja þannig á lista að konur fái jöfn tæki­færi til ábyrgðar á við karla. „Nema staðan sé sú innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins að allir „hæf­ustu ein­stak­ling­arn­ir“ séu karl­ar.“

Enduðu sem aðeins þriðjungur þingflokks – hverjar verða ráðherraefni?

Það end­aði þannig að sjö konur náðu kjöri fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, en fjórtán karlar. Aðeins ein kona er odd­viti fyrir flokk­inn, og það er Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður flokks­ins. Fjórar hafa þing­reynslu, þær Ólöf Nordal, Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, Sigríður Andersen og Val­gerður Gunn­ars­dóttir.

Ólöf, sem vara­for­maður, odd­viti og núver­andi ráð­herra, hlyti að vera eitt fyrsta val Bjarna Bene­dikts­sonar þegar kæmi að því að skipa ráð­herra úr Sjálf­stæð­is­flokknum, ef flokk­ur­inn verður í aðstöðu til þess. Hún hefur hins vegar barist við krabba­mein um nokk­urt skeið og gat lítið sem ekk­ert beitt sér í kosn­inga­bar­átt­unni, þar sem hún þurfti að leggj­ast inn á spít­ala vegna alvar­legrar sýk­ingar.

Fyrir utan Ólöfu er ekki víst hvaða konur myndu eiga til­kall til setu í rík­is­stjórn. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir hefur enga þing­reynslu, en er sú kona sem fyrir utan Ólöfu gegnir hæsta emb­ætt­inu innan flokks­ins og situr hæst á lista í stóru kjör­dæmi, en hún skip­aði annað sætið í Reykja­vík norður. Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir er einnig í öðru sæti, í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, en hefur heldur enga þing­reynslu. Hún hefur und­an­farin ár aðstoðað Ólöfu Nordal í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu og var fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins á undan því. Bryndís Har­alds­dóttir skipar annað sætið í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, en kemur ný inn á þing. Hún hefur þó verið bæj­ar­full­trúi í Mos­fellsbæ í sex ár.

Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir fékk ekki góða kosn­ingu í próf­kjöri flokks­ins og situr í fjórða sæti á list­anum í Suð­ur­kjör­dæmi, auk þess sem hún þykir umdeild. Sigríður Á. Andersen er það líka, þrátt fyrir að henni hafi gengið vel í próf­kjör­inu í Reykja­vík. Hún situr þó í þriðja sæti á list­anum í Reykja­vík suður. Þá er eftir Val­gerður Gunn­ars­dóttir, sem gekk heldur ekki mjög vel í próf­kjöri fyrir norðan, og var í þriðja sæti list­ans í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mun vænt­an­lega gera kröfu um flesta ráð­herra í rík­is­stjórn, ef flokk­ur­inn fer í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður. Þá er spurn­ing hvort þrír núver­andi ráð­herrar, Bjarni Bene­dikts­son, Ólöf Nordal og Kristján Þór Júl­í­us­son, muni öll halda áfram, og hvernig öðrum ráð­herra­emb­ættum verður ráð­stafað. Karl­arnir sem skipa hin odd­vita­sætin munu vænt­an­lega gera kröfu til ráð­herra­emb­ættis, en á móti hefur verið uppi sú krafa að kynja­hlut­föll í rík­is­stjórn­inni verði jöfn, nú þegar því sem næst hefur tek­ist að jafna kynja­hlut­föllin á þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár