Þingmenn fjögurra flokka vilja kanna flutning innanlandsflugs til Keflavíkur

Þingmenn úr öllum flokkum, nema Sjálf­stæð­is­flokknum og Vinstri grænum, vilja að kann­aðir verði kostir þess að flytja inn­an­lands­flug frá Reykja­vík­ur­flug­velli til Kefla­vík­ur­flug­vallar. Þetta kemur fram í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem þing­menn­irnir hafa lagt fram á Alþingi.

Oddný G. Harð­ar­dóttir, Páll Valur Björns­son, Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, Birgitta Jóns­dóttir, Val­gerður Bjarna­dóttir, Róbert Marshall, Páll Jóhann Pálsson, Ásta Guðrún Helga­dóttir og Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir vilja að inn­an­rík­is­ráð­herra láti gera könnun á kost­unum við það að flytja flugið til Kefla­víkur og leggja mat á rekstr­ar­grund­völl og mögu­leg sókn­ar­færi Kefla­vík­ur­flug­vallar með til­liti til þró­un­ar­mögu­leika flug­vall­ar­ins og áhrifa á íbúa, ferða­þjón­ustu og atvinnu­líf á Suð­ur­nesjum. Þau vilja að Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra skili skýrslu með nið­ur­stöð­unum á vor­þingi 2016. 

Þing­menn­irnir ræða í grein­ar­gerð með til­lög­unni skýrsl­una sem gerð var flug­vall­ar­kostum fyrir Reykja­vík­ur­flug­völl, en Keflavík var ekki tekin með í þeirri athugun. „Að mati flutn­ings­manna er nauð­syn­legt að meta Kefla­vík­ur­flug­völl á sama hátt og þá flug­vall­ar­kosti sem metnir voru í skýrslu stýri­hóps­ins. Líklegt má telja að Kefla­vík­ur­flug­völlur kæmi vel út úr slíku mati með til­liti til þeirra þátta sem nefndir hafa verið hér að framan. Ljóst má vera að stofn­kostn­aður fyrir inn­an­lands­flug á Kefla­vík­ur­flug­velli yrði lægri en á öðrum stöðum sem metnir voru. Kefla­vík­ur­flug­völlur er stærsti flug­völlur lands­ins og þar eru flestir þeir inn­viðir sem þarf fyrir rekstur inn­an­lands­flugs. Meta þyrfti þó hvort rétt væri að byggja nýja flug­stöð sem sér­stak­lega mundi þjóna inn­an­lands­flugi. Aðrir inn­viðir, eins og flug­brautir, eru til staðar. Þá má telja lík­legt að sam­legð­ar­á­hrif með milli­landa­flugi mundi gera það að verkum að rekstr­ar­kostn­aður yrði minni en á sér­stökum inn­an­lands­flug­velli,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Í upp­haf­legu frétt­inni var sagt að þing­menn­irnir væru úr öllum flokkum nema Sjálf­stæð­is­flokki. Hið rétta er að eng­inn þing­maður úr Vinstri grænum er heldur meðal flutn­ings­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár