„Frelsisdagurinn“ eða „dagur öngþveitis“ runninn upp

Þess er vænst að tugir þús­unda manna á Englandi muni snúa aftur til vinnu í dag eftir heima­vinnu síð­ustu mán­aða. Í dag er „frels­is­dag­ur­inn“ – miklar aflétt­ingar hafa átt sér stað en aðrir ótt­ast „dag öng­þveitis“.

Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands, er í sóttkví eftir að heilbrigðisráðherrann greindist með COVID-19.
Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, er í sótt­kví eftir að heil­brigð­is­ráð­herr­ann greind­ist með COVID-19. Mynd: EPA

Dagsins í dag hefur verið beðið með nokk­urri óþreyju á Englandi og hefur vikum saman verið kall­aður „frels­is­dag­ur­inn“. En aðrir eru ekki eins spenntir. Telja ekki tíma­bært að fagna frels­inu sem aflétt­ing inn­an­lands­að­gerða í land­inu hefur í för með sér. For­sæt­is­ráð­herr­ann Boris Johnson, sem er sjálfur í sótt­kví í dag eftir að heil­brigð­is­ráð­herr­ann greind­ist með COVID-19, hvetur fólk til að fara áfram með gát þrátt fyrir að lög og reglur er snúa að hegðun fólks í heims­far­aldr­inum séu ekki lengur til staðar.

Engar tak­mark­anir eru nú á því hversu margir mega koma saman. Næt­ur­klúbbar opn­uðu á mið­nætti og ekki þarf lengur að bíða eftir að fá þjón­ustu á borðin á veit­inga­stöðum og börum. Grímu­skyldan er aflögð þótt áfram sé hvatt til að bera grímur á ákveðnum stöðum.

Um 50 þús­und greinst nú dag­lega með veiruna í Bret­landi. Vís­inda­menn telja að dag­legur fjöldi smita gæti orðið í kringum 200 þús­und síðar í sumar.

Á sama tíma og „frels­is­dag­ur­inn“ er runn­inn upp á Englandi hafa stjórn­völd í Frakk­landi sagt að ekki sé úti­lokað að aftur verði gripið til aðgerða þar í landi haldi smitum áfram að fjölga líkt og verið hefur und­an­farið. Í gær, sunnu­dag, greindust yfir 12.500 smit í Frakk­landi og höfðu þá ný smit verið yfir 10 þús­und þrjá daga í röð. Þar líkt og víð­ast ann­ars staðar er delta-veiran alls­ráð­andi.

Stjórn­völd í Frakk­landi eru ekki sér­stak­lega lukku­leg með nýj­ustu ákvarð­anir kollega sinna í Bret­landi sem sett hafa á hert­ari ferða­tak­mark­anir á ferða­menn frá Frakk­landi.

En þar sem yfir 68 pró­sent full­orð­inna íbúa Bret­lands eru nú full­bólu­sett er gert ráð fyrir að sjúkra­húsinn­lagnir, alvar­leg veik­indi og dauðs­föll af völdum COVID-19 verði mun færri en í bylgjum far­ald­urs­ins hingað til.

Boris Johnson sagði í mynd­bandi sem hann birti á Twitter í gær að hann teldi nú rétta tíma­punkt­inn til að færa sig yfir á loka­stig aflétt­inga á Englandi.

„Ef við gerum það ekki núna þá þurfum við að spyrja okkur, hvenær þá?“ sagði Johnson og að í haust og vetur myndi veiran geta nýtt sér kald­ara veður. Það gerði hún vissu­lega síð­asta haust þegar stórar bylgjur far­ald­urs­ins hellt­ust yfir Evrópu og Banda­ríkin. „En við verðum að gera þetta var­lega. Við verðum að muna að þessi veira er því miður enn þarna úti. Til­fellum er að fjölga og við sjáum að delta-afbrigðið er gríð­ar­lega smit­andi.“

Verka­manna­flokk­ur­inn fylgir Johnson ekki að máli í þessum efnum og skugga­ráð­herra hans í heil­brigð­is­málum segir „kæru­leysi“ að afnema grímu­skyldu. Hann varar við „dögum öng­þveitis“ framundan í lest­ar­kerf­unum þar sem fjöldi fólks myndi nú snúa aftur til vinnu mán­uðum eftir að það fór heim að vinna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár