Yfir 70 þúsund skrifa undir endurreisn heilbrigðiskerfisins - stærsta söfnun í sögunni

Yfir sjö­tíu þús­und manns hafa nú skrifað undir und­ir­skrifta­söfnun Kára Stef­áns­sonar um end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins. 70.500 ein­stak­lingar hafa þegar þetta er skrifað sett nafn sitt við und­ir­skrifta­söfn­un­ina, og þar með er söfn­unin orðin sú stærsta í sög­unni þar sem skorað er á ráða­menn á Íslandi.

Lang­fjöl­menn­asta und­ir­skrifta­söfn­unin hingað til snérist um að halda Reykja­vík­ur­flug­velli í Vatns­mýr­inni og hún hét Hjartað í Vatns­mýr­inni. Undir hana skrif­uðu tæp­lega 70 þús­und manns, eða 69.809 manns, árið 2013.

Fleiri skrif­uðu þó undir und­ir­skrifta­söfnun til breskra stjórn­valda til að mót­mæla notkun hryðju­verka­laga til að frysta íslenskar eignir þar í landi eftir að bank­arnir féllu. Það var Indefence sem stóð fyrir þeirri söfnun, og um 83 þús­und und­ir­skriftir náð­ust.

Und­ir­skrifta­söfnun Kára hófst þann 22. jan­úar síð­ast­lið­inn. Kári boð­aði und­ir­skrift­ar­söfn­un­ina í des­em­ber síð­ast­liðnum í kjöl­far rit­deilu sem hann átti við Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra. Kári krefst þess að ríkið eyði ell­efu pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu í heil­brigð­is­mál.

Í til­kynn­ingu frá Kára vegna þessa kom fram að und­ir­skrifta­söfn­unin sé til stuðn­ings kröf­unni um end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins. Þar er eft­ir­far­andi haft eftir Kára: „Heil­brigð­is­kerfi er einn af horn­steinum nútíma­sam­fé­lags og sýnir vilja þess til þess að hlúa að þeim sem eru sjúkir og meiddir. Gott heil­brigð­is­kerfi end­ur­speglar sjálf­sagða sam­hygð en lélegt heil­brigð­is­kerfi óásætt­an­legan kulda gagn­vart þeim sem eru hjálpar þurfi. Það er okkar mat að á síð­asta ald­ar­fjórð­ungi hafi stjórn­völd vannært íslenskt heil­brigð­is­kerfi, að því marki að það sé ekki lengur þess megn­ugt að sinna hlut­verki sínu sem skyldi.

Það hefur ekki fylgt fram­þróun í lækn­is­fræði, hvorki hvað snertir notkun á tækja­bún­aði né bestu lyfjum og helstu stofn­anir þess eru hýstar á þann veg að það kemur í veg fyrir að hægt sé að veita nægi­lega mikla og góða þjón­ustu. Hnignun heil­brigð­is­kerf­is­ins hefur að mestu leyti verið óháð því hvaða stjórn­mála­flokkar hafa verið við völd vegna þess að hún hefur verið stöðug og sam­felld.

Íslend­ingar eyða því sem nemur 8.7% af vergri lands­fram­leiðslu í heil­brigð­is­mál og er það langt undir með­al­tali á Norð­ur­löndum. Það er mat þeirra sem gerst þekkja til að við þurfum að eyða allt að 11% af vergri lands­fram­leiðslu í heil­brigð­is­mál vegna þess að við erum fá og dreifð sem gerir þjón­ust­una dýr­ari en meðal stærri og þétt­býlli þjóða. Þar sem kjörnir full­trúar þjóð­ar­innar um ald­ar­fjórð­ungs­skeið hafa ekki haft að því frum­kvæði að fjár­magna heil­brigð­is­kerfið eins og skyldi, ætlum við und­ir­rituð að taka frum­kvæðið með eft­ir­far­andi kröfu."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár