Hann gengur alltaf með mér, dauðinn

Íris Ólöf Sigurjóns­dóttir myndlistar­kona sagði upp störfum sextug eftir að hafa fengið krabba­mein tvisvar sinnum og ákvað að láta drauminn rætast og vinna að myndlist, sama hvað.

Hillbilly hitti Írisi Ólöfu á sýningu hennar í Menningar­húsinu Bergi á Dalvík. Það er árla mánudags­morguns, frídags verslunar­manna, og menningar­húsið tekið úr lás sérstak­lega fyrir viðtalið. Mikil ró ríkir innan veggja hússins en fyrir utan það hleypur ungur hlaupari hring eftir hring, þeytist framhjá gluggunum og dregur aldrei úr hraðanum.

Talandi um andstæður. Andstæður er titill sýningarinnar sem Hillbilly er mætt til að skoða. Lista­maðurinn Íris Ólöf veltir fyrir sér hinu harða og hinu mjúka, takmörkunum og frelsi, að takmarka mjúka efnið í harða efninu. „Karl og kona, Hjöri og Íris,“ segir Íris og vísar í manninn sinn Hjörleif Hjartarson, og hún heldur áfram: „Norðrið og suðrið, ég er svolítið mikið þar. Alltaf að berjast, alltaf að flytja mig um set, finna jafnvægi, það getur verið erfitt að vera á báðum stöðum. Er í Svarfaðardal á sumrin, Reykjavík á veturna,“ bætir Íris við. 

Lét drauminn rætast sextug

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Mest lesið undanfarið ár