Áhyggjuefni að 52% eigenda Skeljungs eiga líka fjórðungshlut í N1

Eignirnar eru í N1 og í Skeljungi.
Eign­irnar eru í N1 og í Skelj­ungi. Mynd: Anton Brink

Eign tveggja líf­eyr­is­sjóða í bæði N1 og Skelj­ungi getur haft skað­leg áhrif á sam­keppni á elds­neyt­is­mark­aðnum. Þetta kemur fram í skýrslu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um sam­keppni á olíu­mark­aði.

52% eig­enda Skelj­ungs eiga líka 24% hlut í N1. Þetta kemur í ljós þegar dregnar eru saman upp­lýs­ingar um 20 stærstu eig­end­urna í hvoru félagi fyrir sig. Þessir eig­endur eru Arion banki, líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi, líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Stapi líf­eyr­is­sjóður og Söfn­un­ar­sjóður líf­eyr­is­rétt­inda.

„Umrædd eigna­tengsl hafa þau áhrif að meiri­hluti eig­enda Skelj­ungs hefur beinan hag af því að fyr­ir­tækið keppi ekki jafn mikið við N1 eins og aðra keppi­nauta á mark­aðnum,“ segir í skýrsl­unni.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir að við mat á áhrifum tengsla eins og þess­ara skipti ekki meg­in­máli hvers kyns fyr­ir­tæki sé um að ræða. Horfa þurfi til þess hvernig og hversu mikil eign­ar­tengslin séu, með til­liti til mögu­leika til áhrifa í félag­inu með skipan stjórn­ar­manna og svo fram­vegis.

Líklegt er að eign Gildis og LSR geti haft skað­leg­ust áhrif á sam­keppni á elds­neyt­is­mark­aðnum. Meg­in­á­stæða þess er að LSR er annar stærsti hlut­haf­inn í báðum olíu­fé­lögum og Gildi er þriðji stærsti hlut­haf­inn í báðum. „Augljóst er að báðir lífeyr­is­sjóðirnir hafa í því ljósi möguleika á að hafa áhrif á stefnu við­kom­andi fyr­ir­tækja, en vakin er athygli á því að sjóðirnir eiga viðlíka hluti í báðum félögunum,“ segir í skýrsl­unni.

Dæmi er tekið af því að fyrir hvern seldan lítra sem Skelj­ungur missir yfir til N1, svo sem vegna verð­hækk­unar sem leiðir til þess að við­skipta­vinir færa sig yfir, þá vinna þessir tveir hlut­hafar, Gildi og LSR, upp 60% af tap­inu vegna eign­ar­hluta sinna í N1. Ef þau ættu ekki í báðum félögum væru áhrifin af verð­hækk­un­inni þau að hlut­hafar Skelj­ungs gætu ekki end­ur­heimt tapið nema með því að lækka verðin aftur. Það er því ljóst, segir Sam­keppn­is­eft­ir­litið, að hvatar þess­ara eig­enda til að stuðla að sam­keppni eru tak­mark­aðir.

Stjórn­un­ar­tengsl á milli fyr­ir­tækja á elds­neyt­is­mark­aði eru ekki mikil í dag, en Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur engu að síður að það skap­ist ákveðin hætta á því að hags­muna­á­rekstrar sem hljót­ist af því að sömu aðilar komi að stjórnun tveggja eða fleiri fyr­ir­tækja leiði til tak­mörk­unar eða skað­legra áhrifa á sam­keppni, almenn­ingi til tjóns. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár