„Þetta má ekki fá að halda áfram“

Spreng­ingin á versl­un­ar­mark­aði í Karrada göt­unni í Bagdad, hefur þegar dregið 165 til dauða, og eru tugir til við­bótar alvar­lega slas­aðir. Þriggja daga þjóð­ar­sorg hefur verið lýst yfir í land­inu. Íslamska ríkið er talið bera ábyrgð á spreng­ing­unni.

Örvænt­ing. Reiði og yfir­þyrm­andi sorg. Þannig er við­brögðum aðstand­enda fórn­ar­lamba spreng­ing­ar­innar í Karrada, þéttasta versl­un­ar­svæð­is­ins í Bagdad, höf­uð­borgar Íraks. Önnur sprengja til við­bótar sprakk í úthverfi borg­ar­innar, skömmu eftir spren­ing­una í Karrada. Samtals hafa 213 látið lífið í þessum tveimur spreng­ingum, og eru margir til við­bótar eru alvar­lega slas­aðir.

Aftur og aftur

Samkvæmt umfjöllun breska rík­is­út­varps­ins BBC hafa aðstand­endur í örvænt­ingu sagt að stjórn­völd geti ekki látið þessar spreng­ingar halda áfram. Á þessu ári hefur íslamska ríkið lýst yfir ábyrgð á sjö aðskildum spreng­ingum í Íraksem hafa leitt til dauða yfir 300 ein­stak­linga, til við­bótar við þá sem lét­ust í spreng­ing­unum um helg­ina.

Fyrsta mann­skæða spreng­ingin, sem beind­ist gegn almenn­ingi, var 28. febr­úar þegar 70 lét­ust í tveimur sjálfs­morðsárásum í Sadr City. Viku seinna, 6. mars, lét­ust 47 í Hilla.

Tuttugu dögum síðar lét­ust 32 í sjálfs­morðsárás sem beind­ist að börnum sem voru að spila fót­bolta, í Iskand­ariya. Árásin var harð­lega for­dæmd og hún sögð sýna að með­limir íslamska rík­is­ins væru til­búnir að ganga lengra og fremja hrika­legri glæpi en flest önnur hryðju­verka­sam­tök.

Næsta mann­skæða árás var 1. maí, þegar tvær bíla­sprengjur leiddu til dauða 33 ein­stak­linga í suð­ur­hluta Samawa. Tíu dögum síðar, 11. maí, sprungu aftur tvær bíla­sprengjur í Bagdad sem leiddu til þess að 93 létu lífið. Sex dögum síðar lét­ust 69 í fjórum aðskildum bíla­sprengjum. Hinn 9. júní lét­ust svo 30 til við­bótar í tveimur sjálfs­morðsárásum.

Grýttu bílalest ráðamanna

Reiðir íbúar Bagdad grýttu bíla­lest Haiders Abadis for­sæt­is­ráð­herra í gær, þegar hann fór að kanna aðstæður eftir sprengju­til­ræðið í borg­inni í gær­kvöld. Þeir sök­uðu for­sæt­is­ráð­herr­ann um að svíkja lof­orð um aukna örygg­is­gæslu og taka sjálfan sig fram yfir almenn­ing. Afleið­ingin birt­ist í síend­ur­teknum hræði­legum glæpum.

Írak er auð­linda­ríkt land, en inn­viðir þess eru í molum, eftir þrá­lát stríði. Und­an­farin ár hafa orðið fram­farir við upp­bygg­ingu öryggis, og hafa stjórn­völd lagt mikið upp úr því að sann­færa almenn­ing um að það sé ekk­ert að ótt­ast, þegar kemur að dag­legu lífi. Íbúarnir, sem eru ríf­lega 37 millj­ónir, eigi að geta lifað eðli­legu lífi í öllum stærstum borgum lands­ins. En síend­ur­teknar spreng­ingar á þessu ári, eru að grafa undan örygg­is­vit­und almenn­ings og sá árangur sem náðst hefur, gæti þurrkast út og leitt til enn meiri glund­roða í land­inu.

Bandaríkjamenn fari ekki frá ókláruðu verki

Þrýst hefur verið á banda­rísk stjórn­völd, að und­an­förnu, að fylgja upp­bygg­ing­ar­starf­inu í Írak enn meira eftir. Allt frá inn­rásinni í landið, árið 2003, hafa Banda­ríkja­menn verið með mann­afla í land­inu, en hafa reynt að koma stjórnun á upp­bygg­ing­ar­starf­inu í hendur heima­manna og stjórn­valda í Írak, einkum og sér í lagi í seinni tíð. Það hefur ekki gengið vel, og eins og áður segir, þá er nú talin mikil hætta á því að tíðar spreng­ingar íslamska rík­is­ins, einkum í Bagdad, muni grafa undan því upp­bygg­ing­ar­starfi sem þegar hefur náðst fram.

Barack Obama, Banda­ríkja­for­seti, hefur sagt að stjórn­völd í Banda­ríkj­unum hafi skyldum að gegna, en þurfi um leið að virða sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt Íraka. Þeir muni ráða örlögum sínum, á end­anum, en alþjóð­legt upp­bygg­ing­ar­starf, með Banda­ríkja­menn í for­svari, verði að vera við­var­andi og taka mið af því hvernig þróun mála er á hverjum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár