Þrír virkjunarkostir dregnir til baka - notuðu gömul kort af þjóðgarði

Orku­stofnun hefur dregið til baka þrjá virkj­un­ar­kosti af þeim 50 sem búið var að senda til verk­efn­is­stjórnar þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar. Þetta kemur fram í frétt á vef Orku­stofn­unar.

Virkj­an­irnar eru Arn­ar­dals­virkjun, Helm­ings­virkjun og Vetr­ar­veita í Hálslóni. Allar þrjár til­lög­urnar eru inni í Vatna­jök­uls­þjóð­garði. Hjör­leifur Finnsson, þjóð­garðs­vörður í Vatna­jök­uls­þjóð­garði, benti á þetta í fréttum Rúv í síð­ustu viku.

Ástæða þess að þessar þrjár virkj­anir fóru í hóp þeirra virkj­un­ar­kosta sem fóru fyrir verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar er sú að Orku­stofnun not­aði ekki nýj­ustu kort af Vatna­jök­uls­þjóð­garði við vinnslu á virkj­un­ar­kost­unum. Korta­grunn­ur­inn sem var not­aður kom frá Umhverf­is­stofnun og inni­hélt ekki nýj­ustu upp­lýs­ingar um breyt­ingar á mörkum Vatna­jök­uls­þjóð­garðs.

Land­varða­fé­lagið for­dæmdi Orku­stofnun líka fyrir að leggja til virkj­anir innan og í jaðri þjóð­garðs og ann­arra frið­lýstra vernd­ar­svæða og benti á að fram­kvæmdir af því tagi gengu gegn nátt­úru­vernd­ar­lögum og lögum um Vatna­jök­uls­þjóð­garð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár