Sigríður Víðis nýr aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra

Sigríður Víðis Jóns­dóttir hefur verið ráðin aðstoð­ar­maður Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra.

Sigríður Víðis Jónsdóttir
Sigríður Víðis Jóns­dóttir Mynd: Umhverfis- og auðlindaráðaneytið

Sigríður Víðis Jóns­dóttir hefur verið ráðin aðstoð­ar­maður Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Þetta kemur fram í frétt ráðu­neyt­is­ins.

Sigríður mun hefja störf í áföngum í sumar, sam­hliða því að klára fæð­ing­ar­or­lof, og koma síðan alfarið til vinnu 1. sept­em­ber næst­kom­andi, sam­kvæmt frétt­inni. Hún verður aðstoð­ar­maður ráð­herrra ásamt Orra Páli Jóhanns­syni.

Sigríður er fædd og upp­alin á Akranesi. Hún er með BA-próf í heim­speki frá Háskóla Íslands, með mann­fræði sem auka­grein, og meist­ara­próf í þró­unar- og átaka­fræðum frá Uni­versity of East Anglia í Bret­landi.

Sigríður hefur síð­ast­liðin ár stýrt kynn­ing­ar­málum hjá UNICEF á Íslandi en hún hóf þar störf sem upp­lýs­inga­full­trúi árið 2011.

Á árunum 2000 til 2011 vann Sigríður sem blaða­maður, ýmist í lausa­mennsku, í fullu starfi eða með­fram námi. Hún vann frétta­skýr­ingar, við­töl, pistla og ferða­sögur víðs vegar frá í heim­inum og skrif­aði einnig verð­launa­bók­ina „Rík­is­fang: Ekkert“ um hóp palest­ínskra kvenna og barna sem flúðu Írak og end­uðu á Akranesi. Bókin var meðal ann­ars til­nefnd til Íslensku bók­mennta­verð­laun­anna og Fjöru­verð­laun­anna og hlaut verð­laun Hag­þenkis.

Maki Sigríðar er Leó Alex­ander Guð­munds­son, líf­fræð­ingur, og eiga þau tvö börn saman, Hauk 4 ára og Laufeyju 8 mán­aða.

Aðstoðarmaður þurfti að hætta

Sif Kon­ráðs­dóttir og Orri Páll Jóhanns­son voru ráðin aðstoð­ar­menn Guð­mundar Inga Guð­brands­son­ar, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra, þann 14. des­em­ber síð­ast­lið­inn en þann 16. febr­úar ákvað ráð­herra að Sif myndi hætta störfum í ráðu­neyt­inu. Hún var aðstoð­ar­maður ráð­herra í rúma tvo mán­uð­i.

Kjarn­inn birti við­tal við Ólöfu Rún Ásgeirs­dótt­ur, þol­anda í kyn­ferð­is­máli. Þar greindi hún frá því að hún væri ósátt við traust ráð­herr­ans á Sif. Ólöf hafi upp­lifað það sem sjálf­­stætt brot þegar Sif, þá rétt­­ar­­gæslu­­maður henn­­ar, hafi ekki greitt henni miska­bætur sem henni voru dæmdar vegna kyn­ferð­is­brots­ins. Ólöf þurfti að leita sér aðstoðar ann­­ars lög­­­manns til að inn­­heimta bæt­­urnar sem á end­­anum feng­ust greidd­­ar. „Mér fannst hún með þessu gera svo lítið úr brot­inu, þetta litla sem við fengum að geta ekki borgað okkur þetta strax. Ef ég myndi stela úr fyr­ir­tæk­inu sem ég er að vinna hjá, en seint og síðar meir borga það til baka, þá fengi ég ekk­ert að halda vinn­unn­i,“ sagði Ólöf í við­tal­in­u.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár