Stærstu lífeyrissjóðirnir skiluðu góðri ávöxtun í fyrra

Líf­eyr­is­sjóðir ávöxt­uðu eignir sínar vel á árinu 2014. Þetta sést þegar upp­lýs­ingar frá sjóð­unum eru skoð­aðar. Árs­fundir sjóð­anna eru margir hverjir búnir eða verða haldnir á næst­unni. Ávöxt­un­ar­tölur liggja því fyrir í mörgum til­fellum. Samkvæmt nýlegu frétta­bréfi frá Lands­sam­tökum líf­eyr­is­sjóða kemur fram að raun­á­vöxtun (nafn­á­vöxtun að teknu til­liti til verð­bólgu) hafi verið 7,2 pró­sent hjá sjóð­unum öllu. Þar inni­falið eru sam­trygg­ingar- og sér­eign­ar­hlutar sjóð­anna. Þetta telst ásætt­an­leg ávöxtun á allan mæli­kvarða.

Tryggingarfræðileg staða batnar


Trygg­ing­ar­fræði­leg staða sjóð­anna styrkt­ist á árinu 2014 þar sem raun­á­vöxt­unin var langt umfram 3,5 pró­sent raun­á­vöxt­unar við­miðið sem notað til að verð­meta eignir og skuldir í trygg­inga­fræði­legum upp­gjörum sjóð­anna. Heild­ar­eignir líf­eyr­is­sjóða hækk­uðu um 10 pró­sent á árinu 2014 og námu 2.920 millj­örðum króna í lok árs 2014. Það jafn­gildir hálfri annarri lands­fram­leiðslu. Síðustu fimm ár (2010-2014) hafa verið ein­stak­lega góð hjá líf­eyr­is­sjóð­unum. Meðals raun­á­vöxt­unin nemur 5,1 pró­sent á því tíma­bili. Trygg­ing­ar­fræði­leg staða marga af sjóð­unum hefur því farið úr því að vera nei­kvæð í það að vera jákvæð.

Erlendu bréfin gáfu vel


Þegar rýnt er í ávöxt­un­ar­tölur sjóð­anna fyrir árið 2014 kemur í ljós að flestir eigna­flokkar skil­uðu jákvæðri raun­á­vöxtun á árinu. Erlend hluta­bréf skil­uðu góðri ávöxtun á árinu 2014, t.a.m. var raun­á­vöxtun erlendra bréfa hjá Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna (LIVE) 11,8 pró­sent. Vægi erlendra bréfa er mis­mun­andi eftir sjóðum en er í mörgum til­fellum nálægt 30 pró­sent af heild­ar­stærð. Ef ekki væri fyrir gjald­eyr­is­höftin er lík­legt að margir sjóðir myndu vilja hækka þetta hlut­fall til að dreifa áhætt­unni betur. Raun­á­vöxtun inn­lendra hluta­bréfa var góð hjá sjóð­unum á árinu 2014 eða um og yfir tíu pró­sent . Innlend skulda­bréf skil­uðu þokka­legri raun­á­vöxtun en þau eru oft yfir helm­ingur eigna­safns sjóð­anna.
Sjóður Skýring Raun­á­vöxtun 2014 í %
Þrír stærstu sjóð­irnir:    
LSR (Líf. starfsm. rík­is­ins), A+B deild Sam­trygg­ing 8,9%
Gildi líf­eyr­is­sjóðir Sam­trygg­ing 8,8%
LIVE (Líf. versl­un­arm) Sam­trygg­ing + sér­eign 8,7%
Nokkrir aðrir sjóðir:
Festa líf­eyr­is­sjóður sam­trygg­ing 6,7%
Líf­eyr­is­sjóður verk­fræð­inga sam­trygg­ing 6,3%
Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn sam­trygg­ing 6,2%
Stapi líf­eyr­is­sjóður sam­trygg­ing 6,2%
Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Frjálsi 1 5,6%
Meðaltal allra sjóða sam­trygg­ing + sér­eign 7,2%
Þar af sam­trygg­ing 7,4%
Þar af sér­eign 5,0%
Heimild: Lands­sam­tök líf­eyr­is­sjóða, upp­lýs­ingar frá af heima­síðum ein­stakra sjóða


Risarnir þrír báru af árið 2014


Þrír stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eru LSR, Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna og Gildi líf­eyr­is­sjóður. Allir skil­uðu þeir gríð­ar­lega góðri raun­á­vöxtun á árinu 2014. Raun­á­vöxt­unin var hæst hjá LSR (8,9 pró­sent) en var litlu lægri hjá Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna (8,7 pró­sent) og Gildi (8,8 pró­sent). Athygli vekur að ávöxtun hjá flestum af minni sjóð­unum var tals­vert lægri en hjá stóru sjóð­unum þremur. Ein skýr­ing er sú að eigna­skipt­ing sjóða er mis­mun­andi. Stóru sjóð­irnir eru t.d. hlut­falls­lega fyr­ir­ferð­ar­miklir á inn­lendum hluta­bréfa­mark­aði þar sem ávöxt­unin var góð á árinu 2014. Þrátt fyrir þetta er áber­andi hvað raun­á­vöxtun stóru sjóð­anna var miklu betri en þeirra minni á árinu 2014.

Mikil völd hjá stóru sjóðunum þremur


Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er algengt að stór fjár­fest­ing­ar­verk­efni lendi fyrr inná borði hjá stærstu líf­eyr­is­sjóðnum þremur heldur en minni sjóðum. Risarnir þrír eru því stundum í betri aðstöðu til að taka afstöðu til fjár­fest­ing­ar­verk­efna í sam­an­burði við smærri sjóð­ina. Þá er oft algent að litlu og milli­stóru sjóð­irnir bíði með að taka afstöðu til verk­efna þangað til stóru sjóð­irnir eru búnir að ákveða sig. Stjórn­endur stóru sjóð­anna þriggja eru ekki síst með mikil völd í atvinnu­líf­inu, af þessum ástæðum.

Sjóð­irnir þrír raða sér á listana yfir stærstu hlut­hafa í skráðu fyr­ir­tækj­unum í Kaup­höll­inni og þá eru sjóð­irnir í flestum til­fellum stærstu eig­endur ýmissa sjóða sem stofn­aðir hafa verið á síð­ustu árum til efl­ingar atvinnu­lífs­ins. Þessir sjóðir hafa fjár­fest mikið í fast­eigna­verk­efnum, í óskráðum fyr­ir­tækjum í atvinnu­líf­inu og í sprota­fyr­ir­tækjum.

Þrátt fyrir gott ár í fyrra, er margt í íslenska hag­kerf­inu sem er erfitt fyrir líf­eyr­is­sjóð­ina. Þar á meðal eru fjár­magns­höftin, en þau koma í veg fyrir nýfjár­fest­ingar erlendis og gera áhættu­stýr­ingu mun erf­ið­ari en ann­ars væri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár