Gústaf gagnrýnir Framsóknarflokkinn fyrir viðbrögð við skipun

Gústaf Adolf Níelsson gagn­rýnir Fram­sókn­ar­flokk­inn fyrir við­brögð við skipun hans sem full­trúa flokks­ins í mann­réttinda­ráð Reykja­vík­ur­borgar. Þetta gerir hann í pistli sem hann skrifar á Facebook-síðu sína.

„Ég dreg þá djörfu ályktun, að hin hörðu við­brögð þeirra, sem öðrum fremur elska tján­ing­ar­frelsið og fjöl­breyti­leik­ann, séu vegna þess að þeir vilja af öllum lífs og sál­ar­kröftum þagga niðrí mér. En þeim verður auð­vitað ekki að ósk sinni, jafn­vel þótt fjöl­miðlar dragi fram ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins í mis­jöfnu póli­tísku ástandi, en þó með hleypi­dómana á hrað­bergi,“ skrifar Gústaf meðal ann­ars. Hann seg­ist finna til með þeim ráð­herrum sem gagn­rýndu skip­un­ina.

Gústaf seg­ist hafa fengið „fjöl­margar vin­gjarn­legar sím­hring­ingar frá fólki hring­inn í kringum landið, auk tölvu­pósta og ann­arra send­inga, sem nútíma­tæknin bíður upp á.“ Þó hafi það tekið á að vera mið­dep­ill sam­fé­lags­um­ræð­unnar einn dag, „þar sem hæl­bítar og árar and­skot­ans ham­ast á manni.“

Þá seg­ist hann ætla að halda ótrauður áfram „og óhikað taka íslenska þjóð­menn­ingu fram­yfir lítt skil­greinda fjöl­menn­ingu. Ég held að ekk­ert sé að marka þetta „þjóð­menn­ing­armas" fram­sókn­ar­mann­anna, en von­andi halda þeir áfram að finna „stefn­una og grunn­gildin".

Kosningastjóri efast um tjáningarfrelsi


Margir leggja orð í belg á síðu Gústafs um málið. Þeirra á meðal er Svanur Guð­munds­son, sem var kosn­inga­stjóri Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina í kosn­ing­unum síð­ast­liðið vor og er eig­in­maður Guðfinnu Jóhönnu Guð­munds­dóttur borg­ar­full­trúa flokks­ins. Svanur seg­ist efast um að það „sé tján­ing­ar­frelsi hér á landi.“

 



Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár