Íslendingar verði að geta borið höfuðið hátt í útlöndum

Forseti Íslands segir að Íslend­ingar verði að geta borið höf­uðið hátt í útlöndum, ekki síst þau sem hafi notið trausts til trún­að­ar­starfa fyrir land og þjóð.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Ef við, sem komum fram í þágu Íslands, eigum að geta lofað frum­kvæði og dugnað í útvegi og öðrum greinum íslensks atvinnu­lífs, verðum við að sjá í verki að þar sé unnið af heil­indum. Þeirri heild­ar­mynd er vel hægt að halda við, sé vilji fyrir hendi.“

Þetta sagði Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, þegar hann ávarp­aði starfs­fólk álvers­ins í Straums­vík síð­ast­lið­inn föstu­dag. Með þessum orðum er hægt að draga þá ályktun að hann hafi meðal ann­ars verið að vísa í Sam­herj­a­málið þó hann nefni fyr­ir­tækið ekki sér­stak­lega.

Óverjandi framferði

Hann sagði að það væri engum til góðs að skapa fals­mynd eða þegja þunnu hljóði þegar órétt­læti og grá­lyndi blasi við. „Ýmsar sögur eru til af erlendum stórrisum, sem hösl­uðu sér völl á nýjum stað og fóru offari, léku inn­fædda grátt, með blekk­ingum, svikum og mútum. Þannig fram­ferði er auð­vitað óverj­andi.“

Guðni sagði enn fremur að Íslend­ingar yrðu að geta borið höf­uðið hátt í útlöndum, ekki síst þau sem hefðu notið trausts til trún­að­ar­starfa fyrir land og þjóð.

[adspot]

Hitti nýjan sendiherra Namibíu

„Við viljum eiga okkar flagg­skip og lofa þá sem þar eru á stjórn­palli, fólk í heimi menn­ingar og mennta, íþrótta og lista, fólk í heimi hátækni og nýsköp­unar, fólk í heimi iðn­aðar og útvegs. Lengi höfum við stært okkur af for­ystu­hlut­verki til sjávar, þekk­ingu okkar og reynslu og vilja til að vinna með öðrum, öllum til hags­bóta,“ sagði hann.

Guðni nefndi það sér­stak­lega að þetta hefði hann einmitt gert nýlega í heim­sóknum ytra og þegar hann tók á móti nýjum sendi­herra Namibíu, George Mbanga Liswaniso, í lok októ­ber síð­ast­lið­ins.

Í frétt for­seta­emb­ætt­is­ins um málið segir að rætt hafi verið um sam­eig­in­lega hags­muni Íslands og Namibíu á alþjóða­vett­vangi og hafi sjónum einkum verið beint að mengun haf­anna, plasti og öðrum úrgangi sem spillir líf­rík­inu. Þá hafi enn fremur verið rætt um árangur Namib­íu­manna og frum­kvæði í jafn­rétt­is­málum, og mögu­leika á sam­starfi ríkj­anna í þeim efnum. Loks hafi verið rætt um fisk­veiðar undan ströndum Namibíu og fram­tíð­ar­horfur þar í þágu heima­manna.

Hægt er að lesa ávarp for­set­ans í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár