Brot á þingskapalögum ef nefndin hefði kosið um formennsku Bergþórs

Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Ari Trausti Guð­munds­son, þing­maður Vinstri grænna, segj­ast hafa stutt frá­vísun til­lög­unnar vegna þess að kosn­ing um að setja af for­mann nefndar sam­ræm­ist ekki þing­skap­a­lögum.

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, lagði fram til­lögu þess efnis á fundi umhverfis- og sam­göngu­nefndar í dag að greidd yrðu atkvæði um for­mann nefnd­ar­innar Bergþór Ólason, þing­mann Mið­flokks­ins. Helga Vala lagði fram til­lög­una með stuðn­ingi Hönnu Katrínar Frið­riks­son, þing­manns Við­reisnar og Rósu Björk Brynj­ólfs­dóttur þing­manns Vinstri grænna. Þeirri til­lögu var hins vegar vísað frá af meiri­hluta nefnd­ar­inn­ar. Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Ari Trausti Guð­munds­son, þing­maður Vinstri grænna, studdu frá­vísun til­lög­unnar vegna þess að þau telja að kosn­ingin hefði verið brot við þing­skap­a­lög.

Lá ekki fyrir tillaga um nýjan formann

[links]Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lagði fram frá­vís­un­ar­til­lög­una en hún var studd af Líneik Önnu, Vil­hjálmi Árna­syni, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Ara Trausta , og þeim Berg­þóri og Karli Gauta Hjalta­syni. Jón Gunn­ars­son sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið að þetta væri ekki mál sem leyst væri á vett­vangi nefnd­ar­innar. „Þetta þarf að leysa á vett­vangi þing­flokks­for­manna. Þetta bygg­ir á sam­komu­lagi þing­flokka og það er ekki nefnd­ar­inn­ar að taka á því máli,“ út­skýr­ir Jón. Í kjöl­far frá­vís­un­ar­til­lögu meiri­hlut­ans var til­lögu Helgu Völu vísað til þing­flokks­for­manna.

Líneik Anna segir í sam­tali við Kjarnann að til­laga Helgu Völu hafi snú­ist um að kjósa um að setja af starf­andi for­mann en að ekki hafi legið fyrir til­laga um nýjan for­mann. Hún segir að slík kosn­ing sam­ræm­ist ekki þing­skap­a­lögum og því hefði hún stutt frá­vís­un­ar­til­lög­una. Aðspurð segir Líneik ekki vilja tjá sig um það opin­ber­lega hvort hún styðji Bergþór sem for­mann nefnd­ar­innar.

Alvarlegt skref ef nefndin hefði brotið þingskapalög

Ari Trausti tekur í sama streng og Líneik í sam­tali við Kjarnann. Hann segir að nefnd­inni sé heim­ilt að kjósa nýjan for­mann en hefði atkvæða­greiðsla farið fram um hvort að víkja ætti sitj­andi for­manni án þess að til­laga lægi fyrir um nýjan for­mann væri það brot á þing­skap­a­lögum. Hann segir að ef nefndin hefði brotið þing­skap­a­lög þá hefði það verið alvar­legt skref. Hann segir því frá­vís­un­ar­til­lög­una hafa snú­ist um réttaró­viss­una um þing­sköpin.

Ari Trausti segir það jafn­framt hafa komið skýrt fram í hans máli að það sé í höndum minni­hlut­ans að ákveða hvort að sam­komu­lag­inu sem stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir gerðu með sér verði sagt upp. Hann bætir þó við að hans mati sitji Bergþór ekki í skjóli meiri­hlut­ans.

Þingflokksformenn stjórnarandstöðunnar verða að ákveða hvort samkomulaginu verði breytt

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir gerðu með sér sam­komu­lag varð­andi þau þrjú for­manns­sæti sem stjórn­ar­and­stöð­unni féllu í skaut. Mið­flokk­ur­inn fer með for­mennsku í umhverfis- og sam­göngu­nefnd, Sam­fylk­ingin með for­mennsku í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd og Píratar í vel­ferð­ar­nefnd.

Mið­flokk­ur­inn getur því valið annan þing­mann úr sínum röðum í stað Bergþórs en ef ekki þá situr Bergþór áfram í for­manns­stólnum. Annars geta stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir sagt upp sam­komu­lag­inu en þá má reikna með því að for­mennsku ann­arra stjórn­ar­and­stöðu­flokka komi einnig til skoð­unar í því sam­hengi.

Þolandinn þarf alltaf víkja en aldrei gerandinn

Björn Leví Gunn­ar­son, þing­maður Pírata, situr í umhverfis- og sam­göngu­nefnd sem áheyrn­ar­full­trúi. Það þýðir að hann geti tekið undir bók­anir en hann getur ekki kosið með til­lögum. Greint var frá því í dag að Björn Leví hefði farið af fundi nefnd­ar­in­anr áður en honum lauk í morgun. Björn Leví segir í sam­tali við Kjarnann að hann geti alveg starfað með fólki sem sé honum ósam­mála upp að ein­hverju marki en hann seg­ist ekki enn vita hvernig hann geti háttað sínu sam­starfi við Bergþór.

Björn Leví segir jafn­framt að afstaða hans gagn­vart ofbeld­is­málum sé svipuð og gagn­vart ein­elt­is­málum. Hann segir það óþol­andi að í þeim málum virð­ist þol­and­inn alltaf þurfa að víkja en ger­and­inn aldrei.

Uppfært: Helga Vala Helga­dóttir áréttar í sam­tali við Kjarnann að hún hafi fengið upp­lýs­ingar frá skrif­stofu Alþingis um að kosn­ingin væri tæk áður en hún lagði fram til­lög­una á fundi nefnd­ar­innar. Hún segir jafn­framt að minni­hlut­inn hafi lagt til tvo aðra mögu­leika, að nýr for­maður yrði kos­inn á fund­inum eða í þriðja lagi að fund­inum yrði slitið og mögu­legar lausnir skoð­aðar fyrir næsta fund. Helga Vala segir að í stað þeirra til­lagna hafi meiri­hlut­inn lagt fram frá­vís­un­ar­til­lögu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár