Píratar og Samfylking vilja að þjóðaratkvæðagreiðslu þurfi til að breyta stjórnarskrá

Þingmenn tveggja flokka á þingi hafa lagt fram frum­varp um breyt­ingar á því hvernig stjórn­ar­skránni er breytt. Þeir segja sína leið lýð­ræð­is­legri og komi í veg fyrir þrá­tefli í fram­tíð­inni.

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Tólf þing­menn Pírata og Sam­fylk­ingar hafa lagt fram frum­varp um breyt­ingu á stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins Íslands. Í frum­varp­inu er lagt til nýtt ferli við breyt­ingu á stjórn­ar­skrá. Í dag er fyr­ir­komu­lagið þannig að Alþingi þarf að sam­þykkja breyt­ingar á stjórn­ar­skrá. Í kjöl­farið skal rjúfa þing og boða til kosn­inga. Samþykki nýkjörið Alþingi breyt­ing­arnar taka þær gildi.

Í frum­varp­inu er lagt til að þessu fyr­ir­komu­lagi verði breytt þannig að þegar Alþingi hefur sam­þykkt frum­varp til breyt­inga á stjórn­ar­skrá skuli efnt til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um það.

Frum­varpið bygg­ist á hug­myndum stjórn­laga­ráðs eins og þær þró­uð­ust við með­ferð stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar fyrir kosn­ingar árið 2013. Í grein­ar­gerð þess segir að þó að sú breyt­ing hafi verið gerð að felld er brott krafa um að auk­inn meiri­hluti þings og þjóðar sam­þykki breyt­ing­arnar. „Telja flutn­ings­menn að ekki sé þörf á þessum háa þrös­k­uldi, enda hafi þing­heimur sýnt að hann umgang­ist breyt­ingar af þessu tagi af mik­illi var­færni og því ólík­legt að naumur meiri­hluti verði fyrir veru­lega umdeildum breyt­ingum.“

Tryggi almenningi síðasta orðið

Í grein­ar­gerð­inni segir einnig að því sé ætlað tví­þætt hlut­verk. Annars vegar að lög­festa leið til að breyta stjórn­ar­skránni sem er mun lýð­ræð­is­legri en mælt er fyrir um nú, þar sem und­ir­strikað verði skýrt og skor­in­ort að almenn­ingur sé stjórn­ar­skrár­gjafi og eigi ætíð síð­asta orðið í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

[adspot]Hins vegar vona flutn­ings­menn að sú leið til stjórn­ar­skrár­breyt­inga þeir eru að leggja til komi í veg fyrir að Alþingi fest­ist í þrá­tefli um breyt­ingar í fram­tíð­inni. „Und­an­far­inn ára­tug hefur verið gerð stór­merki­leg en oft og tíðum brokk­geng til­raun til heild­ar­end­ur­skoð­unar stjórn­ar­skrár­innar á grund­velli vinnu stjórn­laga­ráðs. Frumvarp þetta getur verið varða á þeirri leið. Verði það að lögum hefur Alþingi þau verk­færi sem þarf til að gera nauð­syn­legar breyt­ingar á stjórn­ar­skránni í mark­viss­ari skrefum en því hefur auðn­ast.“

Núverandi fyrirkomulag leiðir til þráteflis

Þing­menn­irnir telja að reynslan sýni að ókostir þess fyr­ir­komu­lags sem eru nú við lýði séu nokkrir. Í fyrsta lagi liggi meg­in­þungi umræðu um allar stjórn­ar­skrár­breyt­ingar við lok hvers kjör­tíma­bils eins og málum sé nú háttað. Þá séu störf þings­ins gjarnan tekin að þyngj­ast og hætt við að grund­vall­ar­breyt­ingar á stjórn­ar­skránni hljóti ekki þá athygli sem þeim ber.

Í öðru lagi sé ekki tryggð nein bein aðkoma almenn­ings með þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. „Segja má að með núver­andi fyr­ir­komu­lagi sé kosið um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar sam­hliða almennum þing­kosn­ingum, en reynslan hefur verið sú að kosn­ingar sem haldnar eru í kjöl­far slíks þing­rofs snú­ist ekki um inn­tak breyt­inga á stjórn­ar­skránni.“

Í þriðja lagi sýni reynsla und­an­far­inna ára að núver­andi fyr­ir­komu­lag hafi leitt til þrá­teflis á Alþingi um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar. „Hvort sem um er að ræða stærri eða smærri atriði hefur þing­inu ekki auðn­ast að gera var­an­legar breyt­ingar á stjórn­ar­skránni frá því að mann­rétt­inda­kafla var bætt við 1995 og kjör­dæma­mörkum breytt árið 1999.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár