Blessuð þokan

Ári eftir stríðslok fæddist Kristín Steins­dóttir sem ólst upp á Seyðis­firði þar sem lífið var litað af stríðinu löngu eftir að því lauk. Foreldrar hennar og eldri systkini upplifðu það og sjálf lék hún stríðs­leiki í byrgi sem hafði verið byggt uppi á fjalli. Í bókinni Yfir bænum heima segir hún sögu stór­fjölskyldu sem gerist í seinni heims­styrjöldinni.

Yfir bænum heima er þrítugasta og þriðja skáldsaga Kristínar Steins­dóttur en í ár eru 33 ár síðan hún gaf út sína fyrstu bók, Fransk­brauð með sultu. Það var árið 1987 og fyrir hana hlaut Kristín Íslensku barna­bóka­verðlaunin. Hún skrifaði mikið fyrir börn og unglinga en langaði þá að skrifa fyrir fullorðna og hefur nú gert það um árabil. 

Sagan sem kom út í lok október er fjölskyldu­saga sem gerist á Seyðis­firði í seinni heims­styrjöldinni en sjálf er Kristín fædd þar og uppalin.

Foreldrar mínir upplifðu stríðs­árin á Seyðis­firði, eldri systkini, nágrannar, frændur og frænkur líka. Sjálf er ég fædd ári eftir að seinni heims­styrjöldinni lauk en samt fannst mér eins og stríðinu hefði aldrei lokið. Það lifði með okkur í enda­lausum sögum og leikjum í gömlum loftvarna­byrgjum í hlíðunum heima. Stundum var upplifunin svo sterk að ég heyrði hvininn frá flugvélum og loftvarna­byssum. Og sprengjurnar féllu allt í kringum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2020

MenningJólabókaflóðið 2020

Nútíma­afinn hlustar á Fræbbblana og Q4U

Gerður Kristný segir að það sé gaman að vera íslenskur rithöfundur vegna þess að við sitjum hér að bókmennta­þjóð. Hún segir að sér hætti til að yrkja mjög dramatíska ljóða­bálka og að það sé mikil hvíld í því að semja léttar, skemmtilegar en raunsæjar barna­bækur eins og nýjustu bókina, Iðunn og afi pönk. Gerður segir að líta eigi á lestur barna eins og hvert annað frístunda­starf.
MenningJólabókaflóðið 2020

Konan sem elskaði fossinn

Sigríður Tómasdóttir frá Brattholti var mikið náttúru­barn og dýravinur en átti erfitt með mannleg samskipti. Sigríður er þekktust fyrir baráttu sína gegn áformum um að virkja Gullfoss og gekk svo langt að hóta að enda líf sitt með því að kasta sér í fossinn ef hann fengi ekki að vera í friði. Konan sem elskaði fossinn er söguleg skáldsaga eftir Eyrúnu Inga­dóttur sem skrifaði fyrst um Siggu frá Brattholti fyrir þrjátíu árum. Hún segir mikilvægt að vekja athygli á baráttu­konum fyrri tíma.

11 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár