Menn smituðust af minkum

Fólk er talið hafa borið kór­ónu­veiruna inn í minkabú í Hollandi. Mink­arnir sýkt­ust og smit­uðu svo að minnsta kosti tvo starfs­menn. Engin grunur hefur vaknað um kór­ónu­veirusmit i minkum eða öðrum dýrum hér á landi.

Minkar eru ræktaðir á búum víða um heim, m .a. á Íslandi, vegna feldsins.
Minkar eru rækt­aðir á búum víða um heim, m .a. á Íslandi, vegna felds­ins. Mynd: Djurrattsalliansen

Minkar smit­uðu tvo menn af nýju kór­ónu­veirunni í Hollandi nýverið. Um fyrstu stað­festu smit úr minkum í menn er að ræða í heims­far­aldri COVID-19.

Nýja kór­ónu­veiran SARS-CoV-2 hefur fund­ist í minkum á fjórum af 155 minka­búum sem starf­rækt eru í Hollandi. Þetta kom fram í bréfi sem land­bún­að­ar­ráð­herra lands­ins, Carola Schouten, sendi til þings­ins fyrir viku þar sem greint var frá smit­unum tveimur. Í bréf­inu kom fram að hættan á smiti úr dýrum í menn utan minka­bú­anna væri „hverf­andi“. Sýktu búin hafa verið ein­angruð.

Ráð­herr­ann sagði í bréfi sínu að sýkt mann­eskja hefði upp­haf­lega borið smit inn í þrjú minka­bú­anna. Verið er að rann­saka hvernig smit barst í það fjórða.

[adspot]

Í frétt Reuters um málið er haft eftir yfir­manni smit­sjúk­dóma­stofn­unar Hollands (RIVM) að þekkt sé að menn hafi smitað ketti og nokkrar aðrar dýra­teg­undir af COVID-19. En í þessu til­felli er dýr (minkur) að smita menn og það sé næstum ein­stakt.

Upp komst í apríl að minkar sem rækt­aðir voru á búi í nágrenni Eind­hoven hefðu sýkst af nýju kór­ónu­veirunni. Nokkur dýr höfðu veikst og sýnt ýmis­konar ein­kenni, m.a. í önd­un­ar­færum. Í kjöl­farið voru tekin sýni. Þá kom í ljós að mink­arnir voru sýktir af veirunni. Í frétt AFP segir að menn­irnir tveir, sem voru starfs­menn á búunum, hafi smit­ast áður en vitað var að minkar gætu borið veiruna. Því hafi þeir ekki verið í við­eig­andi hlífð­ar­fatn­aði við störf sín.

Níu minkabú eru starf­rækt á Íslandi. Ekki hefur verið talin ástæða til að vara sér­stak­lega við umgengni við minka þar sem eng­inn grunur hefur verið um smit í minkum eða öðrum dýrum hér á landi, segir í svari Mat­væla­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans um hvort til ein­hverra ráð­staf­ana hafi verið gripið vegna sýk­inga á minka­búum í Hollandi.

Þar sem eng­inn grunur hafi komið upp um Sars-CoV-2 smit í minkum eða öðrum dýrum á Íslandi hefur ekki verið talin ástæða til að taka sýni úr dýr­unum.

Á heima­síðu MAST er að finna spurn­ingar og svör um smit­varnir í umgengni við við dýr. Sömu var­úð­ar­ráð­staf­anir gilda varð­andi minka og önnur dýr.

Segja búin gróðrarstíu fyrir sjúkdóma

Í kjöl­far frétta af smit­unum á minka­bú­unum í Hollandi hafa dýra­vernd­un­ar­sam­tök hvatt stjórn­völd í land­inu til að flýta lokun allra minka­búa eins og þegar er stefnt að en þó ekki fyrr en árið 2024. Dýra­vernd­un­ar­sam­tökin PETA segja að minkabú, þar sem finna megi veik, hrædd [links]og særð dýr, séu gróðr­ar­stía fyrir sjúk­dóma og minna á að bæði SARS og nýju kór­ónu­veiruna megi rekja til náinna sam­skipta manna og villtra dýra á mörk­uðum þar sem lif­andi og dauð dýr eru seld.

Jón Magnús Jóhann­es­son, deild­ar­læknir á Land­spít­al­anum, skrifar í svari á Vís­inda­vefnum við spurn­ingu um upp­runa SARS CoV-2, nýju kór­ónu­veirunnar að um 75 pró­sent af nýlegum smit­sjúk­dómum hafa borist frá dýrum í menn. Þar af eiga 70 pró­sent upp­runa sinn í villtum dýrum. Allir heims­far­aldrar frá upp­hafi 20. aldar hafa komið frá dýrum. Spænska veikin, svo dæmi sé tekið, átti lík­lega upp­runa sinn úr eld­is­fuglum. Svínaflensan sem geis­aði árið 2009 kom lík­lega einnig úr fuglum en með svín sem lík­legan milli­hýsil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár