Snögg fjölgun smita í Þýskalandi

Þýska­land og Suður-Kórea eru í hópi landa sem glíma nú við skyndi­lega fjölgun nýrra smita af COVID-19. Þetta hefur gerst í kjöl­far þess að ákveðnum aðgerðum til að hindra útbreiðsl­una hefur verið aflétt.

Angela Merkel kanslari Þýskalands.
Angela Merkel kansl­ari Þýska­lands. Mynd: EPA

Síðasta sól­ar­hring­inn greindust 933 ný til­felli COVID-19 í Þýska­landi. Það er stórt stökk frá því sól­ar­hring­inn á undan þegar ný smit voru 357. Frá upp­hafi far­ald­urs­ins hafa 170.508 smit greinst í land­inu.

Svokölluð R-tala veirunnar, sem segir til um hversu marga hver sýktur ein­stak­lingur smitar að með­al­tali, hefur verið yfir 1 síð­ustu þrjá daga í Þýska­landi. Það þýðir að hver og einn sem hefur sýkst er að smita fleiri en einn annan að með­al­tali.

Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, hefur varað við því að ef R-talan fari yfir 1 í ein­hvern tíma myndi heil­brigð­is­kerfið að lokum ekki ráða við álagið.

Sótt­varna­stofnun Þýska­lands, Robert Koch-stofn­unin, segir of snemmt að álykta sem svo að –önnur bylgja far­ald­urs­ins sé skollin á í land­inu. Til þess þurfi að líða lengri tími. Hins vegar verði nú og næstu daga, í kjöl­far fjölg­unar til­fella, að rann­saka nákvæm­lega þró­un­ina.

[links]Þýska­land hefur gert ákveðnar til­slak­anir á aðgerðum sínum vegna COVID-19. Merkel sagði í gær að þrátt fyrir það væri mik­il­vægt að fólk héldi áfram per­sónu­legum aðgerðum á borð við að halda fjar­lægð sín á milli og við­hafa ítar­legt hrein­læti.

Nokkur hópsmit hafa orðið í Þýska­landi síð­ustu daga. Þau hafa til dæmis orðið í þremur kjöt­vinnslum þar sem á bil­inu 100-350 til­felli hafa greinst í hverri fyrir sig.

Staðfest er að yfir 4,1 milljón manna hafa smit­ast af nýju kór­ónu­veirunni um allan heim. Að minnsta kosti 286 þús­und hafa lát­ist vegna COVID-19.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár