Einræðistaktar vekja upp vondar minningar í Paragvæ

Mót­mæl­endur brenndu þing­húsið í Asunción, höf­uð­borg Paragvæ, á laug­ar­dag­inn síð­ast­lið­inn eftir að öld­unga­deild þings­ins sam­þykkti fyrir luktum dyrum stjórn­ar­skrár­breyt­ingar sem munu leyfa Horacio Cartes, sitj­andi for­seta, að bjóða sig fram til end­ur­kjörs.

And­stæð­ingar Horacio Cartes sök­uðu hann um valda­rán þegar 25 öld­unga­deild­ar­þing­menn – bæði úr hinum ráð­andi hægri­flokki, Partido Colorado, og vinstri­flokknum Frente Guasú, sem er flokkur fyrr­ver­andi for­seta lands­ins, Fernando Lugo – sam­þykktu stjórn­ar­skrár­breyt­ing­ar­til­lögu þess efnis að leyfa sitj­andi og fyrr­ver­andi for­setum lands­ins að bjóða sig fram til end­ur­kjörs. Tillagan var sam­þykkt á sér­stökum fundi á bak­við luktar dyr og þarf nú sam­þykki und­ir­deildar þings­ins, þar sem Partido Colorado hefur 44 af 80 sætum, áður en hægt verður að setja hana í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Samþykkt til­lög­unnar leysti úr læð­ingi fjölda­mót­mæli þar sem hluti þing­húss lands­ins var brennt niður og einn mót­mæl­andi, Rodrigo Quintana, leið­togi vinstri­flokks­ins PLRA í smá­bænum La Colmena, lét lífið eftir að hafa verið skot­inn til bana af lög­reglu­manni sem kvaðst hafa haldið að skot­vopn sitt hafi verið hlaðið með gúmmí­kúlum. Í kjöl­far mót­mæl­anna hefur rík­is­stjórn Cartes boðað til samn­inga­fundar við stjórn­ar­and­stöð­una eftir að Sam­ein­uðu þjóð­irnar, Banda­ríkin og Vatíkanið hvöttu til sam­ræðna. Eins og stendur hafa fleiri full­trúar stjórn­ar­and­stöð­unnar hafnað fund­ar­boð­inu og hefur for­seti öld­ung­ar­deilar þings­ins, Robert Acevedo, kraf­ist þess að stjórn­ar­skrár­breyt­ing­ar­til­lagan verði felld úr gildi áður en samn­inga­við­ræður geta haf­ist. Cartes hefur frestað kosn­ingu um til­lög­una í neðri deild þings­ins þangað til samn­inga­við­ræður hafa átt sér stað.

[adspot]

Í skugga Stroessner

Þegar Alfredo Stroessner var steypt af stóli árið 1989 í valdaráni skipu­lagt af parag­væska hernum hafði hann gegnt emb­ætti for­seta lands­ins í 35 ár. Valdatíð Stroessner, sem kölluð er „El Stronato“, ein­kennd­ist af öfga­hægris­sinn­aðri harð­stjórn þar sem póli­tískir and­stæð­ingar og frum­byggjar voru meðal þeirra sem voru ofsóttir en fleiri þús­und manns hurfu, voru drepnir og urðu fyrir pynt­ingum. Stroessner var hins vegar þekktur fyrir að veita stríðs­glæpa­mönnum þriðja rík­is­ins hæli og sótt­ist Paragvæ á þessum tíma eftir nánum tengslum við Banda­ríkin enda var landið ekki í stjórn­mála­sam­bandi við nein sós­í­alist­a­ríki – Paragvæ er ennþá eitt af örfáum ríkjum sem við­ur­kenna Taívan í stað Kína.

Eftir því sem stjórn­ar­skráin sem var í gildi þegar Stroessner var hrak­inn frá völdum ein­kennd­ist af því að hafa verið sam­þykkt í ein­ræði var haf­ist handa með hönnun nýrrar stjórn­ar­skrár sem var sam­þykkt árið 1992. Samkvæmt henni er for­setum ein­ungis heim­ilt að sitja í eitt fimm ára kjör­tíma­bil og er þetta ákvæði talið vera beint við­bragð við ein­ræði Stroessner og hræðslu við mis­notkun á völdum for­seta­emb­ætt­is­ins.

Ólíklegir bandamenn

Afleið­ingar banns­ins við end­ur­kjöri lýsa sér á ýmsan hátt en það skerðir sjálf­krafa póli­tíska getu sitj­andi for­seta til að hafa áhrif á vali á eft­ir­báti sínum sem og lang­tíma­stefnu flokks­ins, sem í flestum til­fellum er Partido Colorado en flokk­ur­inn hefur verið við stjórn­völ­inn 66 af síð­ustu 70 árum. Cartes, Lugo, og for­seti Paragvæ á undan Lugo, Nicanor Duarte Frutos, styðja allir stjórn­ar­skrár­breyt­ingar enda myndu þær leyfa þeim að bjóða sig fram til end­ur­kjörs; þeir Lugo og Duarte Frutos reyndu sjálfir að koma á slíkum breyt­ingum þegar þeir voru við völd. Þá eru stjórn­mála­flokkar í Paragvæ að miklu leyti klofnir þegar kemur að þessu máli en hópar innan flokk­ana annað hvort styðja eða styðja ekki stjórn­ar­skrár­breyt­ingar eftir því hvort fram­bjóð­andi þeirra hefur gegnt emb­ætti eða ekki. Það bætir ekki úr skák að það er óljóst sam­kvæmt stjórn­ar­skránni hvort bannið við end­ur­kjöri eigi við ef for­seti klárar ekki kjör­tíma­bilið sitt; Fernando Lugo var vikið úr emb­ætti árið 2012 og talað er um að Cartes gæti mögu­lega boðið sig fram aftur ef hann segir af sér að minnsta kosti sex mán­uðum áður en kjör­tíma­bili hans lýkur.

Skoð­ana­kann­anir sýna að um 77% Paragvæa eru and­vígir stjórn­ar­skrár­breyt­ingum sem myndu leyfa end­ur­kjör til for­seta­emb­ættis. Þó er mik­il­vægt að nefna að það þýðir ekki endi­lega að sama hlut­fall sé and­vígt því að koma á breyt­ingum í þrepum sem myndu að lokum gefa mögu­leika á end­ur­kjöri; það eru fleiri en ein leið að koma á slíkum breyt­ingum og ekki er ólík­legt að eitt af því sem fór mest fyrir brjóstið hjá mót­mæl­endum voru þau alræð­is­legu vinnu­brögð sem ein­kenndu sam­þykkt öld­unga­deild­ar­innar. Hin gíf­ur­legu við­brögð meðal almenn­ings við atburði síð­ustu vikna gefur til kynna að spurn­ingin um end­ur­kjör er enn mjög við­kvæmt mál­efni í parag­væskum stjórn­málum.

Efna­hagur Paragvæ hefur verið á mik­illi sigl­ingu síð­ustu ár og hefur landið stimplað sig inn sem fram­leiðslu­mið­stöð fyrir Brasilíu og Argent­ínu, eins konar „Kína Suður-Ameríku“, þökk sé hlut­falls­lega mun lægri launa­kostn­aði og sköttum en það sem ger­ist í nágrannaris­unum tveimur. Þessi upp­sveifla hefur gerst á sama tíma og Brasilía og Argent­ína hafa verið í efna­hags­legri lægð og hefur Cartes eðli­lega reynt að nýta góð­ærið til að ná end­ur­kjöri. Ójöfn­uður í Paragvæ er hins vegar einn sá hæsti í heim­inum og hvernig svo sem ræt­ist úr end­ur­kjörsum­ræð­unni þá bíður for­seta lands­ins gríð­ar­stórt verk­efni að láta mik­inn hag­vöxt skila sér í bættum lífs­kjörum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár