„Alvarleg aðför að frjálsri fjölmiðlun og gróf atlaga að fréttamanni“

Stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands hefur sent bréf til fram­kvæmda­stjóra Árvakurs og lýst yfir óánægju með birt­ingu aug­lýs­ingar Samherja á mbl.is.

Formaður Blaða­manna­fé­lags Íslands (BÍ), Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, sendi bréf um helg­ina, fyrir hönd stjórnar BÍ, á Harald Johann­es­sen, fram­kvæmda­stjóra Árvakurs, og Magnús Krist­jáns­son, þar sem stjórnin lýsti óánægju með birt­ingu aug­lýs­ingar Samherja sem hún lýsir sem hluta „af ófræg­ing­ar­her­ferð gegn Helga Seljan og félögum hans í Kveik“.

Þetta kemur fram á vef félags­ins en í bréf­inu segir að á fjöl­miðlum séu skörp skil milli aug­lýs­inga­deilda og rit­stjórna en með þess­ari aug­lýs­ingu hafi verið stigið yfir þá línu því her­ferð Samherja sé ekki aðeins her­ferð gegn einum frétta­manni eða einni rit­stjórn heldur bein­ist hún gegn öllum blaða­mönnum og öllum rit­stjórnum, þar á meðal blaða­mönnum á mbl.is

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að stór aug­lýs­inga­borði hefði birst á mbl.is, sem oft er mest lesni frétta­vefur lands­ins, sem á stóð „Ábyrgð­ar­leysi í Efsta­leiti“. Aug­lýs­ingin var frá útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Samherja og ef ýtt var á hlekk­inn þá var farið inn á Youtube-síðu fyr­ir­tæk­is­ins og á nýtt mynd­band sem það hafði gert um Helga Seljan, blaða­mann hjá frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik, og RÚV.

[adspot]

Um er að ræða þrett­ánda mynd­bandið sem Samherji hefur látið fram­leiða til að draga úr trú­verð­ug­leika þeirra sem stóðu að umfjöllun um athæfi fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu sem sýnd var í nóv­em­ber 2019. Helsta skot­mark fyr­ir­tæk­is­ins í mynd­bönd­unum er, auk Helga, Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ar­inn sem er í lyk­il­hlut­verki í rann­sóknum á hendur Samherji á Íslandi og í Namibíu.

[links]Í nýja mynd­band­inu er kvartað yfir að nið­ur­staða siða­nefndar RÚV í nýlegu kæru­máli Samherja á hendur á annan tug starfs­manna fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins, þar sem Helgi var tal­inn hafa verið brot­legur við siða­reglur vegna fjög­urra ummæla sem hann hafi látið falla á sam­fé­lags­miðlum, muni ekki hafa þær afleið­ingar að Helga verði gert að hætta umfjöllun um Samherja.

Í texta sem fylgir mynd­bandi að í ljósi nið­ur­stöðu siða­nefnd­ar­innar sé „óhjá­kvæmi­legt að draga þá ályktun að frétta­mað­ur­inn hafi verið van­hæfur til að fjalla um Samherja vegna per­sónu­legrar afstöðu gegn fyr­ir­tæk­inu og stjórn­endum þess“. Í mynd­band­inu, sem er í kost­aðri dreif­ingu á Youtube, er einnig kvartað yfir því að RÚV birti „ekki jákvæðar fréttir um Samherja og neitar að fjalla um mis­tök sín gagn­vart fyr­ir­tæk­inu“.

Auglýsingin liður í ófrægingarherferð Samherja gegn Helga Seljan

Í bréfi stjórnar BÍ til Árvakurs segir að aug­lýs­ingin á mbl.is sem er tengd á mynd­band Samherja hafi þann eina til­gang að reyna að þvinga fram bann við því að Helgi Seljan fjalli um mál­efni fyr­ir­tæk­is­ins og sé því mark­mið þess að þagga niður í þeim frétta­manni sem hve mest hefur haft mál­efni fyr­ir­tæk­is­ins til umfjöll­unar. „Slíkt er alvar­leg aðför að frjálsri fjöl­miðlun og gróf atlaga að frétta­manni þar sem vegið er að starfs­heiðri hans. Auk­in­heldur er aug­lýs­ingin liður í ófræg­ing­ar­her­ferð Samherja gegn Helga Seljan og sam­starfs­fé­lögum hans þar sem því er marg­ít­rekað rang­lega haldið fram að vinnu­brögðum hafi verið ábóta­vant við gerð frétta um fyr­ir­tækið og stjórn­endur þess,“ segir í bréf­inu.

Stjórnin fer þess því á leit við stjórn­endur Árvakurs að þeir taki til­lit til þeirra sjón­ar­miða sem hér eru talin upp, komi sú staða upp aftur að aug­lýsandi óskar eftir birt­ingu aug­lýs­ingar þar sem vegið er að starfs­heiðri frétta­manns eða frétta­manna. Enn­fremur óskar félagið eftir því að full­trúi fyr­ir­tæk­is­ins mæti á umræðu­fund með félags­mönnum sem hald­inn verður á fimmtu­dags­kvöld í næstu viku, þar sem umræðu­efnið er meðal ann­ars sið­ferði­leg álita­efni í tengslum við birt­ingu aug­lýs­inga í íslenskum miðlum og ábyrgð fjöl­miðla.

Bréf stjórnar BÍ til Haraldar Johannessen, framkvæmdastjóra Árvakurs og Magnúsar Kristjánssonar auglýsingastjóra.

Reykja­vík 1. maí 2021

Stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands lýsir óánægju með ákvörðun stjórn­enda Ávakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, um birt­ingu aug­lýs­ingar frá fyr­ir­tæk­inu Samherja á vef mbl.is dag­ana 23. - 28. apríl sl.. Aug­lýs­ingin er liður í áróð­urs­her­ferð Samherja gegn Helga Seljan, frétta­manni á RÚV, og sam­starfs­fé­lögum hans, sem staðið hefur linnu­laust í eitt og hálft ár.

Á fjöl­miðlum eru skörp skil milli aug­lýs­inga­deilda og rit­stjórna en með þess­ari aug­lýs­ingu var stigið yfir þá línu því her­ferð Samherja er ekki aðeins her­ferð gegn einum frétta­manni eða einni rit­stjórn heldur bein­ist hún gegn öllum blaða­mönnum og öllum rit­stjórnum, þar á meðal blaða­mönnum á mbl.is

Aug­lýs­ingin á mbl.is er tengd á mynd­band Samherja sem hefur þann eina til­gang að reyna að þvinga fram bann við því að Helgi Seljan fjalli um mál­efni fyr­ir­tæk­is­ins og er því mark­mið þess að þagga niður í þeim frétta­manni sem hve mest hefur haft mál­efni fyr­ir­tæk­is­ins til umfjöll­unar. Slíkt er alvar­leg aðför að frjálsri fjöl­miðlun og gróf atlaga að frétta­manni þar sem vegið er að starfs­heiðri hans. Auk­in­heldur er aug­lýs­ingin liður í ófræg­ing­ar­her­ferð Samherja gegn Helga Seljan og sam­starfs­fé­lögum hans þar sem því er marg­ít­rekað rang­lega haldið fram að vinnu­brögðum hafi verið ábóta­vant við gerð frétta um fyr­ir­tækið og stjórn­endur þess.

Þá bendum við jafn­framt á siða­reglur SÍA um aug­lýs­inga­gerð og mark­aðs­skila­boð. Í þeim segir í 12. grein: „Í aug­lýs­ingum má ekki hall­mæla neinum ein­stak­lingi eða hópi ein­stak­linga, fyr­ir­tæki, [...] með það fyrir augum að kalla fram opin­ber­lega fyr­ir­litn­ingu eða hæðni.“

Birting aug­lýs­ing­ar­innar á mbl.is vekur enn­fremur upp spurn­ingar um stöðu blaða­manna sem starfa á mbl.is og hafa í sínum störfum ætíð í heiðri siða­reglur Blaða­manna­fé­lags Íslands. Í þeim segir meðal ann­ars, í 1. grein, að „blaða­maður leit­ast við að gera ekk­ert það, sem til van­virðu má telja fyrir stétt sína eða stétt­ar­fé­lag, blað eða frétta­stofu. Honum ber að forð­ast hvað­eina sem rýrt gæti álit almenn­ings á starfi blaða­manns eða skert hags­muni stétt­ar­innar. Blaða­maður skal jafnan sýna dreng­skap í skiptum sínum við starfs­fé­laga.“ Markmið og inn­tak aug­lýs­ing­ar­innar setur blaða­menn mbl.is í óvið­un­andi stöðu því þeir þurfa að sitja undir því að efni sem þeir skrifa, jafn­vel undir nafni, birt­ist sam­hliða aug­lýs­ingu Samherja.

Stjórn Blaða­manna­fé­lag Íslands fer þess því á leit við stjórn­endur Árvakurs að þeir taki til­lit til þeirra sjón­ar­miða sem hér eru talin upp, komi sú staða upp aftur að aug­lýsandi óskar eftir birt­ingu aug­lýs­ingar þar sem vegið er að starfs­heiðri frétta­manns eða frétta­manna. Enn­fremur óskar félagið eftir því að full­trúi fyr­ir­tæk­is­ins mæti á umræðu­fund með félags­mönnum sem hald­inn verður á fimmtu­dags­kvöld í næstu viku, þar sem umræðu­efnið er meðal ann­ars sið­ferði­leg álita­efni í tengslum við birt­ingu aug­lýs­inga í íslenskum miðlum og ábyrgð fjöl­miðla.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem mál tengd Samherja koma á borð stjórnar Blaða­manna­fé­lags Íslands. Félagið sendi frá sér ályktun síð­asta sumar enda eru fjöl­miðlar hryggjar­stykkið í lýð­ræð­is­legri umræðu og þegar að þeim er vegið með órök­studdum dylgjum er vegið að tján­ing­ar­frels­inu sjálfu og gerð til­raun til þess að grafa undan einu mik­il­væg­asta hlut­verki blaða­mennsk­unnar, aðhalds­hlut­verk­inu.

Fyrir hönd stjórnar Blaða­manna­fé­lags Íslands,

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir for­maður

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár