Varaseðlabankastjórar gerast ritstjórar

Kalkofn­inn er nýr vett­vangur fyrir greinar um verk­efni og verk­svið Seðla­banka Íslands sem finna má á vef bank­ans. Kalkofn­inum er ætlað að höfða til almenn­ings, atvinnu­lífs, fjöl­miðla og fræða­sam­fé­lags.

Seðlabankinn stendur við Kalkofnsveg sem kenndur er við kalkofn sem þar var í notkun á síðari hluta 19. aldar.
Seðla­bank­inn stendur við Kalkofnsveg sem kenndur er við kalkofn sem þar var í notkun á síð­ari hluta 19. aldar. Mynd: Seðlabanki Íslands

Seðla­bank­inn hefur hleypt af stokk­unum nýrri vef­út­gáfu sem ber heitið Kalkofn­inn. Í til­kynn­ingu á vef bank­ans, nokk­urs konar kynn­ing­ar­grein rit­stjóra, segir að Kalkofn­inum sé ætlað að vera vett­vangur fyrir stuttar og aðgengi­legar greinar um verk­efni og verk­svið Seðla­bank­ans. „Hér mun sér­fræð­ingum og stjórn­endum bank­ans gef­ast tæki­færi til að fjalla um það sem efst er á baugi í starf­semi bank­ans og vekja athygli á, draga saman og skýra grein­ingar bank­ans, breyt­ingar á lög­gjöf og kröfur til eft­ir­lits­skyldra aðila,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Útgáf­unni er rit­stýrt af vara­seðla­banka­stjórum Seðla­banka Íslands en þeir eru Gunnar Jak­obs­son, vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika, Rannveig Sig­urð­ar­dóttir, vara­seðla­banka­stjóri pen­inga­stefnu, og Unnur Gunn­ars­dóttir, vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­eft­ir­lits. Mark­miðið með útgáfu Kalkofns­ins er að stuðla frekar að vand­aðri og upp­lýstri umræðu um mál­efna­svið Seðla­bank­ans, auka fram­boð á aðgengi­legu efni um starf­semi og verk­efni bank­ans, vekja athygli á útgáfum hans og vera vett­vangur fyrir stjórn­endur og starfs­fólk til að setja fram áhuga­vert efni sem teng­ist sér­sviði þeirra innan bank­ans.

Nú þegar búið að birta grein í Kalkofninum

Útgáfu­starf­semi bank­ans er nú þegar umfangs­mikil, líkt og segir í til­kynn­ing­unni. Fjórum sinnum á ári gefur bank­inn út Pen­inga­mál þar sem gert er grein fyrir horfum í efna­hags- og pen­inga­málum. Fjár­mála­stöð­ug­leiki er rit sem kemur út tvisvar á ári en þar er birt yfir­lit yfir stöðu fjár­mála­kerf­is­ins. Einu sinni á ári kemur út ritið Fjár­mála­eft­ir­lit þar sem skýrt er frá því hvernig Seðla­bank­inn vinnur að þeim verk­efnum sem honum eru falin á sviði fjár­mála­eft­ir­lits. Þá eru ótalin ýmis rit, skýrslur og erindi sem bank­inn gefur út.

„Kalkofn­inn, sem við und­ir­rituð höfum tekið að okkur að rit­stýra, er eðli­leg við­bót við útgáfuflóru Seðla­bank­ans en grein­unum sem hér birt­ast er ætlað að höfða til almenn­ings, atvinnu­lífs, fjöl­miðla og fræða­sam­fé­lags. Það er einnig von okkar að þetta muni hvetja starfs­fólk Seðla­bank­ans til að fjalla um áhuga­verð efni sem teng­ist sér­sviði þess og auðga þannig umræðu um efna­hags­mál og fjár­mála­mark­að­inn,“ segir í áður­nefndri til­kynn­ingu sem und­ir­rituð er af rit­stjórum Kalkofns­ins.

Nú þegar hefur fyrsta grein Kalkofns­ins litið dags­ins ljós, en hún ber heitið Sviðs­mynda­grein­ingar vegna lofts­lags­á­hættu. Hún er rituð af Sigurði Frey Jón­atans­syni sem er sér­fræð­ingur á sviði fjár­mála­stöð­ug­leika hjá Seðla­bank­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár