Kristján Þór ekki talinn vanhæfur í málum sem varða Síldarvinnsluna

Þótt sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra hafi lýst því yfir að hann meti hæfi sitt í málum sem tengj­ast Samherja, og hann hafi vikið sæti við með­ferð slíkra þá er hann tal­inn hæfur til að fjalla um mál tengd fyr­ir­tæki sem Samherji á 49,9 pró­sent hlut í.

Kristján Þór Júlíusson er sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son er sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Það er mat sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins að Kristján Þór Júl­í­us­son, ráð­herra mála­flokk­anna, sé ekki van­hæfur til með­ferðar mála sem varða Síld­ar­vinnsl­una, sem er í beint og óbeint í 49,9 pró­sent eigu Samherja. Einn úrskurður hefur verið kveð­inn upp í máli þar sem Síld­ar­vinnslan var aðili frá því að Kristján Þór tók við emb­ætt­inu í lok árs 2017 og varð­aði það veiði­leyf­is­svipt­ingu.

Þetta kemur fram í svörum ráðu­neyt­isins við spurn­ingum þriggja nefnd­ar­manna í stjórn­sýslu- og eft­ir­lits­nefnd vegna frum­kvæð­is­at­hug­unar á hæfi Krist­jáns Þórs í ljósi stöðu hans gagn­vart Samherja. Nefnd­ar­menn­irnir þrír eru Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ingar, og Andrés Ingi Jónsson, óháður þing­maður.

Eftir að Kristján Þór tók við sem ráð­herra sjáv­ar­út­vegs­mála kom fram gagn­rýni vegna tengsla hans við Samherja og Þorstein Má Bald­vins­son, for­stjóra og eins aðal­eig­anda þess fyr­ir­tækis. Kristján Þór hafði setið í stjórn Samherja, þar af í eitt ár sem stjórn­ar­for­maður, á árunum 1996 til 2000. Hann fór auk þess tví­vegis sem háseti á mak­ríl­veiðar á vegum Samherja, ann­ars vegar sum­arið 2010 og hins vegar sum­arið 2012, og þáði laun fyrir. Samherji styrki einnig fram­boð Krist­jáns Þórs í próf­kjöri innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins árin 2007 og 2013. 

Segist ekkert hafa fundað með Samherjamönnum

Kristján Þór birti stöðu­upp­færslu á Facebook 12. des­em­ber 2017 þar sem hann sagði að sér væri „ljúft og skylt að upp­lýsa að við Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, höfum þekkst síðan við vorum ungir menn“. Þar sagði einnig að hann teldi sig „hæfan til þess að taka ákvarð­anir um mál­efni sem snerta sjáv­ar­út­veg­inn á Íslandi í heild sinni. Komi upp mál sem snerta Samherja mun ég að sjálf­sögðu meta hæfi mitt í ljósi fram­an­greinds líkt og allir stjórn­mála­menn þurfa að gera þegar fjöl­skyldu-, vina- og kunn­ingja­tengsl gætu haft áhrif á afstöðu til ein­stakra mála“.

[adspot]Í svörum Krist­jáns Þórs til nefnd­ar­innar seg­ist hann ekki hafa fundað með for­svars­mönnum Samherja, setið sam­ráðs­fundi eða átt óform­lega fundi með þeim frá því að hann tók við emb­ætti, hvorki innan né utan ráðu­neyt­is­ins.

Þegar Kristján Þór kom fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í jan­úar sagði hann að það væri erfitt að greina á milli þess hvenær maður væri að tala við vin og hvenær maður væri að tala við for­svars­mann fyr­ir­tæk­is. Þetta væri einn og sami mað­ur­inn. Þessi orð lét hann falla þegar ráð­herr­ann var spurður út í sím­tal sem hann átti við Þor­stein Má þegar mál­efni Sam­herja komust í hámæli í fyrra­haust. Það sím­tal, þar sem Krist­ján Þór spurði Þor­stein Má meðal ann­ars hvernig hann hefði það, hefur verið harð­lega gagn­rýnt af mörg­um, meðal ann­ars af þing­mönnum stjórn­ar­and­stöð­unn­ar.

Samherji kynnti Síldarvinnsluna sem hluta af samstæðunni

Hæfi Krist­jáns Þórs kom á ný til umræðu eftir að Sam­herj­a­málið svo­kall­aða var opin­berað í nóv­em­ber þegar Kveik­­ur, Stund­in, Wikileaks og Al Jazeera birtu umfjöllun sína um við­­skipta­hætti Sam­herja í Namibíu og víðar þar sem fjallað var um meintar mút­u­greiðsl­­ur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­­göngu. 

Þor­steinn Már sagði af sér tíma­bundið sem for­stjóri í kjöl­far þeirrar umfjöll­unar, en hann tók aftur við því starfi fyrir skemmstu.

Greint var frá því 20. des­em­ber síð­ast­lið­inn að Krist­ján Þór hefði ákveðið á grund­velli stjórn­sýslu­laga að víkja sæti við með­­­ferð og töku ákvarð­ana í fjórum stjórn­­­sýslu­kærum tengdum Sam­herja. Það gerði hann, að eigin sögn vegna þess að það skipti ekki síst máli að sá sem taki ákvörð­un í mál­unum líti á sitt hæfi heldur líka hvernig hún muni horfa við borg­ur­un­um.

[links]Í Sam­herj­a­skjöl­unum, sem Wikileaks birti sam­hliða umfjöllun áður­nefndra fjöl­miðla, voru líka upp­lýs­ingar um Síld­ar­vinnsl­una. Samherji á, beint og óbeint, 49,9 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni en sam­kvæmt lögum þarf sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki að eiga yfir 50 pró­sent í öðru slíku til að þau telj­ist tengd. Þor­steinn Már var stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar um ára­bil, en sagði af sér eftir að Sam­herj­a­málið kom upp seint á síð­asta ári.

Í skjöl­unum kom fram að fyrr­ver­andi for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar og fram­kvæmda­stjóri við­skipta­þró­unar voru að kynna Síld­ar­vinnsl­una sem upp­sjáv­ar­hluta Sam­herja á fundum erlendis á árunum 2011 og 2012.

Væru þessi tvö fyr­ir­tæki, og önnur sem halda á kvóta og eru í þeirra eigu, skil­greind sem tengd þá væri sam­an­lögð afla­hlut­­deild þeirra um 16,6 pró­­sent sam­kvæmt tölum frá því í sept­em­ber, eða langt yfir lög­bundnu tólf pró­sent hámarki, sem var sett til að koma í veg fyrir að of mikið af afla­heim­ildum myndi safn­ast á fárra hend­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár