Ásmundur kvartar yfir rasista-stimpli frá Samfylkingu

Ásmundur Frið­riks­son spurði Oddnýju Harð­ar­dóttur út í Sam­fylk­ing­ar­fólk sem hefði kallað hann ras­ista á þingi í dag. Oddný sagð­ist ekki segja sínu fólki fyrir verkum, en áhersla væri lögð á mann­virð­ingu og mannúð.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, kvart­aði undan Sam­fylk­ing­ar­fólki sem hefur kallað hann ras­ista í ræðu á Alþingi nú síð­degis. Hann beindi fyr­ir­spurn til Oddnýjar Harð­ar­dóttur, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, og spurði hvort þetta væri sú leið sem Sam­fylk­ingin vildi fara.

„Í lok þings­ins í vor, rétt fyrir hlé, þá kall­aði for­mað­ur­inn mig Donald Trump og lýsti mér sem ein­hverjum ras­ista í því sam­bandi. Hún hefur hrósað Semu Erlu Serdar fyrir að kalla mig ras­ista á opin­berum vett­vangi og henni fannst það vel að verki staðið,“ sagði Ásmundur meðal ann­ars. Hann tal­aði líka um nýleg ummæli rit­ara Sam­fylk­ing­ar­innar, Óskars Steins Jónínu Ómars­sonar, um fram­bjóð­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi og fann að því að hann sjálfur hefði verið kall­aður ras­isti, Ragn­heiður Elín Árna­dóttir dug­laus og Árni Johnsen dæmdur þjófur. Hann sagði þessa umræðu á vegum Sam­fylk­ing­ar­innar sýna breyttar áherslur og spurði hvort þetta væri inn­legg flokks­ins í sann­gjarn­ari umræðu í þjóð­fé­lag­inu.

Oddný svar­aði Ásmundi á þing­inu og sagði: „Engum hef ég hrósað fyrir að kalla hátt­virtan þing­mann ras­ista. Í Sam­fylk­ing­unni ríkir mál­frelsi og for­mað­ur­inn segir félögum ekki til hvað þau megi segja og hvað ekki.“

Hún sagði að hún legði áherslu á að mannúð og mann­virð­ing væri alltaf í fyr­ir­rúmi, og þing­menn þurfi ekki síst að gæta orða sinna. Þegar Ásmundur hafi velt því fyrir sér hvort ekki þyrfti að kanna bak­grunn þeirra múslima sem búi á Íslandi, til að kanna tengsl við hryðju­verk, hafi margir orðið reiðir og sárir. „Ein­hverjir skildu hátt­virtan þing­mann svo að hann væri að hvetja til mis­mun­unar og ýta undir for­dóma.“

Hún sagði það geta reynst sumum freist­ing í aðdrag­anda kosn­inga að tala inn í ótt­ann við hið óþekkta. „Við sem á Alþingi sitjum eigum að gæta hags­muna allra, óháð trú, og var­ast að ýta undir hatur og for­dóma.“

Vildi snúa flóttamönnum við í Leifsstöð

Um miðjan jan­úar í fyrra spurði Ásmundur að því á Face­book síðu sinni hvort bak­grunnur múslima á Íslandi hafi verið kann­að­ur, og hvort ein­hverjir þeirra hafi farið í þjálf­un­ar­búðir hryðju­verka­manna eða barist í löndum þar sem „óöld ríkir meðal múslima.“ Hann sagð­ist í kjöl­farið vera að vekja umræðu um þessi mál. „Ég velti því fyrir mér hvort við þurfum að hafa áhyggjur af því að hér leyn­ist slíkt fólk. Ég hef ekki hug­mynd um það. Mér finnst að við eigum að taka umræð­una um það. Hvað við viljum gera og hvernig við viljum standa að þessu,“ sagði hann í við­tali við Vísi.

Ásmundur gerði hryðju­verkin í Kaup­manna­höfn svo að umtals­efni í febr­úar í fyrra. „Nú lýsa trú­bræður morð­ingj­ans yfir stuðn­ingi við hann. Í nágranna­löndum okkar er opin umræða um þá hættu sem steðjar að hinum frjálsa heimi og þjóð­fé­lögum vegna fjölg­unar á árásum ein­stak­linga og hvers konar öfga­hópa. Hér á landi á engin slík umræða sér stað og spurn­ingin hvað við ætlum lengi að skila auðu í þeirri umræðu um öryggi íbú­anna.“ Ásmundur sagði að á Íslandi hefð­ust menn öðru­vísi að. „Þeir sem vekja athygli á hætt­unni sem steðjar að nágrönnum okkar eru skotnir niður og ataðir auri í sam­fé­lags­um­ræð­unni sem aldrei kemst á það stig að rætt sé um mál­efn­ið.“

Í byrjun mars á þessu ári sagði hann svo „Það er mik­il­vægt að við skoðum það hvort það sé nauð­syn­legt á þess­ari stundu að flótta­mönn­um, eða hæl­is­leit­end­um, sé snú­ið við í Kefla­vík og þeir sendir aftur til síns heima....Flótta­manna­straum­ur­inn er stór­kost­legt vanda­mál eins og við höfum heyrt á und­an­förn­um ­mán­uð­um. Svíar og Danir hafa lokað landa­mærum sínum til að ­tak­marka komu flótta­manna og til að geta fylgst með því hverj­ir koma til lands­ins. Aust­ur­rík­is­menn og Balk­an­löndin hafa fund­að ­sér­stak­lega vegna vanda Schen­gen-­svæð­is­ins en Grikk­land er galop­ið og þar streymir flótta­fólk inn sem aldrei fyrr og á þá greiða ­leið inn í Schen­gen-lönd­in.“

Ásmundur greiddi atkvæði gegn nýjum útlend­inga­lögum í vor, einn tveggja þing­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár