Bjarni: Gríðarlega kostnaðarsamt að hækka lífeyrisgreiðslur til jafns við lægstu laun

Það væri gríð­ar­lega kostn­að­ar­söm aðferð að hækka líf­eyr­is­greiðslur til jafns við launa­hækk­anir, segir Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra. Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði Bjarna um stöðu aldr­aðra, öryrkja og atvinnu­lausra í óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn á Alþingi fyrr í dag.

„Hvernig hyggst rík­is­stjórnin tryggja að aldr­aðir njóti ávinn­ings með sama hætti og nú er verið að semja um á almennum vinnu­mark­aði? Mun rík­is­stjórnin tryggja að aldr­aðir muni fara upp í 300 þús. kr. á samn­ings­tíma­bil­inu? Hvernig verður með örorku­líf­eyr­is­þega, mun rík­is­stjórnin tryggja jafn­stöðu þeirra að þessu leyti? Munu atvinnu­leys­is­bætur hækka líka með sama hætti? Hvert verður með öðrum orðum fram­lag rík­is­stjórn­ar­innar til þess að styðja við þá sem eru á neðri hluta tekju­stig­ans í þessum aðgerðum öllum?“ spurði Árni Páll Bjarna.


Bjarni sagði að verið væri að lækka lægsta skatt­þrepið og tryggja að ávinn­ingur af breyt­ingum á skatt­kerf­inu nái til allra. „Varðandi bætur þá vísa ég til þess að við höfum lög­bundið ákveðið fyr­ir­komu­lag um það hvernig þær eiga að taka breyt­ingum í sam­ræmi við ýmist verð­lags- eða launa­breyt­ingar í þjóð­fé­lag­inu. Það er þá næsta verk­efni að fara yfir útfærsl­una á því,“ sagði Bjarni.


Árni Páll svar­aði að vissu­lega væri ákveðið fyr­ir­komu­lag um hvernig bætur hækki, en að við svo miklar hækk­anir lægstu launa eins og nú væri samið um þyrfti sér­staka ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar til að láta það end­ur­spegl­ast í kjörum líf­eyr­is­þega.

Hann spurði Bjarna einnig um það hvers vegna ekki væri gripið til þess að hafa per­sónu­af­slátt breyti­legan, og lækk­andi með hækk­andi tekjum. „Sú aðgerð mundi nýt­ast mjög vel lág­tekju­fólki og mun nýt­ast líf­eyr­is­þegum með algjör­lega for­dæma­lausum hætti.

„Það er að sjálf­sögðu mikið félags­legt til­lit byggt inn í kerfið í dag með per­sónu­af­slætt­inum og því sem við stefnum á með þessum breyt­ingum að vera með tveggja þrepa kerfi. Skatt­byrðin er lang­minnst neðst og hún fer hækk­andi eftir því sem launin hækka og heldur áfram að hækka þótt launin séu komin upp í ofur­laun,“ svar­aði Bjarni.

Hann sagði að fyrr­ver­andi rík­is­stjórn hafi ekki litið svo á að bóta­flokkar jafn­giltu launa­flokkum, það væri þá breyt­ing sem Árni Páll væri að boða. „Bætur taka breyt­ingum sam­kvæmt lög­bundnu fyr­ir­komu­lagi og ef það stendur til að gera frek­ari breyt­ingar en við höfum lög­bundið þá er það alveg rétt, þá þarf að taka sjálf­stæða sér­staka ákvörðun um það. En geta okkar til þess að gera mun betur eins og að fara með líf­eyr­is­greiðslur upp í 300 þús. kr. er að sjálf­sögðu tak­mörkuð af stöðu rík­is­fjár­mál­anna hverju sinni. Það væri gríð­ar­lega kostn­að­ar­söm aðferð sem hátt­virtur þing­maður er að boða hér.“

Árni Páll gerði þessa umræðu þeirra að umtals­efni á Facebook-síðu sinni í dag, þar sem hann sagði að Bjarni hefði í raun verið að boða að öryrkjar, aldr­aðir og atvinnu­lausir yrðu látnir sitja eftir í aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar.



Öryrkjar, aldr­aðir og atvinnu­lausir verða látnir sitja eftir í aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar á vinnu­mark­aði. Þetta stað...

Posted by Árni Páll on Friday, May 29, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár