Kaupþing á 173,9 milljarða í krónum og 663,8 milljarða í erlendum myntum

Bókfært virði slita­bús Kaup­þings nam 837,7 millj­örðum króna og jókst um tæp­lega 38 millj­arða á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Handbært fé nemur um 408 millj­örðum króna og jókst um sjö millj­arða á fyrstu sex mán­uðum árs­ins.

Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi slita­bús Kaup­þings, fyrir fyrstu sex mán­uði árs­ins, sem birtur var í dag. Árs­hluta­reikn­ing­ur­inn er end­ur­skoð­aður af Ernst & Young ehf.

Slita­stjórn Kaup­þings hef­ur sent Seðla­banka Íslands form­lega beiðni um und­anþágu frá gjald­eyr­is­höft­um, til þess að geta fram­fylgt því sam­komu­lagi sem gert var milli hluta kröfu­hafa og sér­staks fram­kvæmda­hóps stjórn­valda um los­un fjár­magns­hafta. Kröfu­hafar Glitnis hafa sam­þykkt að greiða 200 millj­arða í stöð­ug­leika­fram­lag í rík­is­sjóð.

Um­sókn­in um und­an­þágu er byggð á til­lögu kröfu­hafa, og eru helstu atriði hennar, eins og þær birt­ust á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins í júní síð­ast­liðnum, eft­ir­far­andi:

„Kröfu­hafar í slitabú Kaup­þings myndu beita sér fyrir því að slita­búið leggi til stöð­ug­leika­fram­lag til íslenskra stjórn­valda sem myndi fel­ast í:




    • útgáfu og afhend­ingu veð­tryggðs skulda­bréfs í íslenskum krónum að fjár­hæð 84 millj­arða króna að nafn­virði, sem myndi lækka árlega í sam­ræmi við raun­veru­leg útgjöld (að und­an­skildum hvers konar hvata­kerfum) Kaup­þings árin 2015, 2016 og 2017 í íslenskum krónum, sem greidd væru inn­lendum íslenskum aðilum (þ.m.t. allar minni­háttar greiðslur í íslenskum krónum til inn­lendra kröfu­hafa í tengslum við nauða­samn­ing­inn) en sam­an­lögð heild­ar­fjár­hæð allra slíkra lækk­ana yrði hámörkuð við 5 millj­arða íslenskra króna,

    • fram­sal eigna, rétt­inda og krafna bús­ins á hendur til­teknum inn­lendum íslenskum gagn­að­ilum (þ.m.t. öðrum íslenskum slita­búum) að nafn­verði u.þ.b. 114,8 millj­arða íslenskra króna (hér eftir nefnd „fram­seld rétt­indi“) og

    • fram­sal allra fjár­hæða í íslenskum krónum sem Kaupþing myndi end­ur­heimta að því er varðar ágrein­ings­kröfur á hendur inn­lendum aðilum og allar kröfur á hendur inn­lendum aðilum sem að öðrum kosti telj­ast til þeirra fram­seldu rétt­inda sem nefnd eru að ofan, en ekki var hægt að fram­selja með beinum hætti (þessi fjár­hæð væri til greiðslu að frá­dregnum öllum fjár­hæðum í íslenskum krónum sem Kaupþing greiddi inn­lendum aðilum í tengslum við kröfur á hendur Kaup­þingi).



  • Skil­málar veð­tryggða skulda­bréfs­ins myndu verða eft­ir­far­andi:



    • skal greið­ast með tveimur jöfnum afborg­unum ann­ars vegar á þeim degi þegar liðin eru tvö ár og hins vegar á þeim degi þegar liðin eru þrjú ár frá útgáfu þess,

    • 5.5% vextir og

    • það skal tryggt með veði í skulda­bréfum gefnum út í evrum til með­al­langs tíma, svoköll­uðum EMTN-skulda­bréfum sem mögu­lega Arion banki hf. gefur út til Kaup­þings (verð­mæti veðs­ins verður ekki lægra en sem nemur 115% af útistand­andi höf­uð­stól veð­tryggða skulda­bréfs­ins).“




Í árs­hluta­reikn­ingnum nú sést að eignir í íslenskum krónum eru 173,9 millj­arðar, en í evrum og öðrum erlendum myntum, 663,8 millj­arðar króna. Kröfur á hendur Kaup­þingi nema 2.806,3 millj­örðum króna og lækkuð þær um tæp­lega 20 millj­arða á fyrstu sex mán­uðum árs­ins.

[caption id="attachment_21804" align="alignnone" width="735"] Um 87 pró­sent eign­ar­hlutur slita­bús Kaup­þings í Arion banka, er stærsti hluti krónu­eigna búss­ins. Eitt af því sem til greina kemur, sem hluti af áætlun um losun fjár­magns­haft, er að íslenska ríkið eign­ist að stóru leyti Arion banka og þar með krónu­eignir slita­bús Kaup­þings. Mynd: Anton.[/caption]

Arion.banki..Sm.ra.tib.
Arion.banki..Sm.ra.tib.

Hrein virð­is­breyt­ing eigna nam rúmum 44 millj­örðum

Bókfært virði eigna Kaup­þings í lok júní 2015 nam 837,7 millj­örðum króna og jókst um 37,9 millj­arða eða um 4,7 pró­sent á fyrri helm­ingi árs­ins. Mælt í evrum jókst verð­mæti eigna­safns­ins um 507 millj­ónir eða um 9,8 pró­sent. Hrein virð­is­breyt­ing eigna var jákvæð á tíma­bil­inu og nam 44,4 millj­örðum króna. Til við­bótar bók­færðum eignum voru í lok tíma­bils­ins, 19,7 millj­arðar króna geymdir á vörslu­reikn­ing til að mæta umdeildum seint fram­komnum for­gangs­kröfum sam­an­borið við 19,2 millj­arða í lok árs 2014.

Handbært fé Kaup­þings stóð í 408,8 millj­örðum króna við lok tíma­bils­ins og jókst um 7 millj­arða eða um 1,8j pró­sent. Mælt í evrum, hækk­aði hand­bært fé um 174 millj­ónir eða um 6,7 pró­sent. Af 837,7 millj­arða króna heild­ar­eignum, eru eignir í erlendum gjald­miðlum metnar á 663,8 millj­arða króna en eignir í íslenskum krónum eru metnar á 173,9 millj­arða.

Rekstr­ar­kostn­aður nemur 0,7% af bók­færðu virði eigna

Rekstr­ar­kostn­aður Kaup­þings á fyrri helm­ing árs­ins nam 2,8 millj­örðum króna sam­an­borið við 2,7 millj­arða króna á sama tíma­bili í fyrra. Rúmlega helm­ingur rekstr­ar­kostn­að­ar­ins, eða um 1,5 millj­arður króna er vegna aðkeyptrar erlendrar sér­fræði­ráð­gjafar. Rekstr­ar­kostn­aður Kaup­þings á árs­grund­velli nam 0,7% af bók­færðu virði eigna og er hlut­fallið óbreytt frá fyrra ári. Til við­bótar rekstr­ar­kostn­aði er gjald­færður virð­is­auka­skattur vegna fyrri tíma­bila sam­kvæmt úrskurði rík­is­skatt­stjóra að fjár­hæð 1,7 millj­arður, að því er segir í til­kynn­ingu frá Kaup­þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár