Segja vindorku henta vel sem þriðja stoð í orkubúskap Íslands

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra vill breyta ramma­á­ætlun svo hún henti betur vind­orku­kostum og hægt verði að móta skýra stefnu í vind­orku­málum. Ráðherra telur að skyn­sam­leg upp­bygg­ing vind­orku fari vel saman við vax­andi raf­orku­þörf sam­fé­lags­ins.

Umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyti hefur kynnt í sam­ráðs­gátt áform um breyt­ingar á lögum um ramma­á­ætlun. Núver­andi ramma­á­ætlun þykir ekki henta gagn­vart vind­orku vegna sér­stöðu hennar. Ráðu­neytið leggur því til að lög­unum verði breytt svo hægt sé að móta skýra stefnu hins opin­bera um vind­orku hér á landi og leyf­is­veit­ing­ar­kerfi hennar.

Rammaáæltun henti ekki vindorkukostum

[links]Núver­andi lög um ramma­á­ætlun eru talin henta frekar hefð­bundn­ari virkj­un­ar­kostum en vind­orku­kostum. Sem auð­lind er vind­ur­inn nokkurn veg­inn óþrjótandi, ólíkt öðrum orku­kostum og tak­markast helst af því landrými sem til staðar er.

Vind­ur­inn er jafn­framt ekki jafn stað­bund­inn orku­kostur og hefð­bundn­ari virkj­un­ar­kostir enda hægt að hagnýta hann á flestum stöðum lands­ins. Þessi orku­kostur krefst því almennt styttri und­irbúnings- og fram­kvæmdatíma en vatns­afls- eða jarð­varma­virkj­anir. Enn fremur er tiltölulega auð­velt að taka niður og fjar­lægja slík mann­virki af virkj­un­ar­stað sé tekin ákvörðun um að hætta starf­semi.

Því stefnir umhverfis- og auð­linda­ráð­herra á að leggja fram laga­frum­varp um breyt­ingar á máls­með­ferð og með­höndlun ramma­á­ætl­unar, á þann hátt að tekið sé mið af séreðli vind­orkunnar sem orku­kosts.

Með þeirri breyt­ingu megi gera mats- og ákvarð­ana­ferlið með vind­orku­kosti mark­viss­ara, ein­fald­ara og skjótara en nú er. Auk þess felst í breyt­ing­unni að slíkt ferli þurfi að byggj­ast á skýrri opin­berri stefnumörkun um stað­setn­ingu vind­orku­virkj­ana á Íslandi.[adspot]

Samkvæmt ráð­herra kæmi slík stefna í veg fyrir að vind­orku­ver bygg­ist upp á stöðum þar sem þau eru ekki æski­leg, til dæmis vegna náttúrufars, sjónmeng­unar eða kostn­að­ar­samra teng­inga við raf­orku­netið.

Fer vel saman við vaxandi raforkuþörf samfélagsins

Hingað til hefur vind­orka verið lítið notuð til raf­orku­fram­leiðslu hér á landi en gætt hefur vax­andi áhuga á und­an­förnum árum á slíkum fram­kvæmd­um.

Í áformum ráð­herra segir að vind­orka henti vel sem þriðja stoðin í orkubúskap Íslands á móti vatns­afli og jarð­varma. Megi það meðal ann­ars rekja til stefnu og áforma stjórnvalda um auk­inn hraða í orku­skiptum og almennrar aukn­ingar raf­orku­notk­unar hjá heim­ilum og minni fyr­ir­tækjum.

„Skyn­sam­leg upp­bygg­ing vind­orku fer því vel saman við vax­andi raf­orkuþörf samfélags­ins, auknar áherslur á orkuöryggi, betri nýtingu flutn­ings- og dreifi­kerfi raf­orku sem og stað­bundnar lausnir í orkumálum,“ segir í áformunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár