Mikil fjölgun ferðamanna skilar sér líka í auknu álagi á Landspítalanum

Mikil fjölgun hefur orðið á komum og inn­lögnum ósjúkra­tryggðs fólks á Land­spít­al­ann und­an­farin ár. Lang­flestir eru erlendir ferða­menn og auk­inn fjöldi ferða­manna hefur því áhrif á eft­ir­spurn og kröfur til heil­brigð­is­þjón­ust­unnar. Þetta kemur fram í grein Maríu Heim­is­dóttur, fram­kvæmda­stjóra fjár­mála­sviðs Land­spít­al­ans, í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðs­ins.

„Árið 2010 leit­uðu alls 2167 ósjúkra­tryggðir til dag- og göngu­deilda spít­al­ans, þar á meðal bráða­mót­töku, en árið 2014 hafði þeim fjölgað um 44%, voru 3122,“ skrifar María. Hún segir að í flokk ósjúkra­tryggðra falli ekki bara erlendir ferða­menn heldur líka þeir sem hafa búið á Íslandi skemur en sex mán­uði og njóta því ekki trygg­inga­verndar, og líka sjúk­lingar frá Færeyjum og Græn­landi sem vísað er til Land­spít­al­ans. En engu að síður er fjölg­unin að lang­mestu leyti vegna auk­ins fjölda ferða­manna hér á landi.

[quote font="0" align="right"]Ósjúkra­tryggðum á Land­spít­al­anum fjölg­aði um 44% frá 2010 til 2014[/quote]

„Á sama tíma fjölg­aði inn­lögnum þessa hóps um 19% (úr 283 í 336). Eðli máls­ins sam­kvæmt leita lang­flestir erlendir ferða­menn þjón­ustu yfir sum­a­mán­uð­ina - þegar mönnun er oft naum vegna sum­ar­leyfa. Árið 2014 áttu 46% af inn­lögnum ósjúkra­tryggðra sér stað á þriggja mán­aða tíma, júlí-sept­em­ber.“ Áhrif­anna af fjölda ferða­manna gætir því enn meira heldur en fjölda­töl­urnar segja til um, að sögn Maríu, vegna þess að mönn­unin á þessum tíma er lítil. „Hugs­an­lega þyrfti að end­ur­skoða mönnun og annan við­búnað yfir þau tíma­bil þar sem álagið er mest,“ segir hún.

Tekjurnar af þjónustunni aukist um 99%


Tekjur spít­al­ans af þjón­ustu við ósjúkra­tryggða hafa vaxið veru­lega á þessu sama tíma­bili, frá 2010 til 2014, eða um 99% á föstu verð­lagi. Tekj­urnar voru 167 millj­ónir króna árið 2010 í 385 millj­ónir króna í fyrra. Í þeim tölum eru samn­ingar um komu sjúk­linga frá Færeyjum og Græn­landi á spít­al­ann.

„Þó svo þessar tekjur séu vissu­lega umtals­verðar og vax­andi er þjón­usta við erlenda sjúk­linga að með­al­tali tíma­frek­ari og kostn­aðra­sam­ari en almennt ger­ist,“ segir María. Þetta er meðal ann­ars vegna þess að umsýslan er meiri. Oft þarf að kalla til túlka og sam­skipti taka lengri tíma en ann­ars, hafa þarf sam­ráð við lækna sjúk­linga heima fyrir og það getur verið tíma­frekt og ef þeir upp­fylla skimun­ar­skil­merki vegna ónæmra bakt­ería þarf að taka úr sjúk­lingum sýni og hafa þá í ein­angrun. Auk þess þarf að skrá upp­lýs­ingar vegna trygg­inga­mála og oft að aðstoða við heim­ferð.

Þá er inn­heimta erfið og dýr að sögn Maríu, en tekið hefur verið á skrán­ingu og gerð reikn­inga, sem eru gefnir út á ensku og þeim fylgt sér­stak­lega eftir.

„Að sjálf­sögðu er það keppi­kefli allra að veita sem besta þjón­ustu óháð því hvaðan sjúk­ling­ur­inn kemur en huga þarf sér­stak­lega að ákveðnum þáttum [...] gagn­vart þessum sjúk­linga­hópi, ekki síst ef fjölgun ferða­manna heldur áfram á sömu braut. Tryggja verður að bæði heima­menn og hinir erlendu gestir hafi áfram aðgang að góðri og öruggri þjón­ustu.“ Þá segir María það lyk­il­at­riði að tryggja að þjón­usta við erlenda ferða­menn standi undir sér og kalli ekki á nið­ur­greiðslu frá skatt­greið­endum. „Ef vel er að málum staðið geta falist í þessu tæki­færi fyrir veit­endur þjón­ust­unnar og aukið fram­boð á þjón­ustu fyrir heild­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár