Segir Sjálfstæðisflokkinn hafa verið veika hlekkinn í ríkisstjórninni

Fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir flokk­inn ábyrgan fyrir því að rík­is­stjórnin féll, ekki sam­starfs­flokk­anna. Þingmenn hafi ekki getað staðið við stjórn­ar­sátt­mál­ann og ráð­herrar hans hafi klúðrað lyk­il­málum.

Þorsteinn Pálsson.
Þor­steinn Pálsson.

Þor­steinn Pálsson, fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og áhrifa­maður innan Við­reisnar, segir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi ekki getað staðið við stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar sem féll fyrr í mán­uð­inum né það sem Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafði samið við sam­starfs­flokk­anna um. „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var veiki hlekk­ur­inn í þessu stjórn­ar­sam­starfi.“ Þetta kemur fram í við­tali við Þorstein í þætt­inum Rit­stjór­arnir sem er á dag­skrá sjón­varps­stöðv­ar­innar Hring­brautar í kvöld.

Þar segir Þor­steinn: „Það voru þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem nán­ast í öllum málum hlupu út og suður. Þeir gátu ekki staðið við stjórn­ar­sátt­mál­ann og gátu ekki staðið við það sem for­maður flokks­ins hafði samið um við aðra í rík­is­stjórn­inni. Það var líka ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem klúðr­aði mál­inu sem felldi loks rík­is­stjórn­ina - og sami ráð­herra hafði raunar áður klúðrað skipun dóm­ara við nýtt milli­dóms­stig. Og nú hefur for­ystu­maður innan þing­flokks­ins upp­lýst að þing­menn hans hafi verið búnir að ákveða það að fella fjár­laga­frum­varpið og þar með rík­is­stjórn­ina fyrir jól.“

Gagnrýndi flokkinn líka harðlega í sumar

Þetta eru ekki fyrstu gagn­rýnu ummæli Þor­steins á þessu ári um flokk­inn sem hann veitti eitt sinn for­mennsku. Í sumar skrif­aði hann grein á Kjarnann þar sem hann sagði Viðreisn og Bjarta fram­tíð vera að koma stórum málum á dag­skrá. „Með hæfi­legri ein­földun má segja að við myndun þess­arar stjórnar hafi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn aðeins farið fram á skatta­lækk­anir en óbreytt ástand að öðru leyti. Við­reisn og Björt fram­tíð vildu setja á dag­skrá breyt­ingar í land­bún­að­ar­mál­um, nýjar hug­myndir um veiði­leyfagjöld, rót­tæka end­ur­skipan á gjald­mið­ils- og pen­inga­málum og þjóð­ar­at­kvæði um hvort halda eigi áfram aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­band­ið,“ skrif­aði Þor­steinn. Þessi skrif fóru ekki vel í Sjálf­stæð­is­menn.

Mörg erfið mál voru framundan

Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar, sem var sam­steypu­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar, sprakk aðfara­nótt 15. sept­em­ber vegna alvar­legs trún­að­ar­brests. Björt fram­tíð sleit sam­starf­inu í kjöl­far þess að í jós kom að faðir for­sæt­is­ráð­herra, Bene­dikt Sveins­son, skrif­aði undir með­mæla­bréf með beiðni Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, sem er dæmdur barn­a­níð­ingur, um að hann fengi upp­reist æru. Sam­tals voru 87 pró­sent stjórn­ar­manna hjá Bjartri fram­tíð hlynntir því að slíta sam­starf­inu. Sjálf­stæð­is­menn hafa gagn­rýnt litlu flokk­anna fyrir að hafa skort styrk til að standa í lapp­irnar við erf­iðar aðstæður og ásakað þá um að hafa látið bága stöðu í skoð­ana­könn­unum taka sig á taugum.

Töluverð tog­streita hafði þó verið í stjórn­ar­sam­starf­inu frá upp­hafi og mörg mál sem upp komu reynd­ust rík­is­stjórn­inni erfið. Má þar nefna skýrslu­mál Bjarna Bene­dikts­sonar, sjó­manna­verk­fallið, skipun dóm­ara við Lands­rétt og lausn á erf­iðri stöðu sauð­fjár­bænda.

Á kom­andi vetri stóð svo til að takast á um lyk­il­kerf­is­breyt­ingar í íslensku sam­fé­lagi. Um land­bún­að­ar­kerfið og hvort ráð­ast ætti í upp­kaup á offram­leiðslu fyrir rík­isfé, um breyt­ingar á gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi og end­ur­skoðun á umgjörð pen­inga­mála- og gjald­miðla­stefn­unnar. Þá var fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar veru­lega umdeilt, sér­stak­lega innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Allt voru þetta mál sem myndu reyna veru­lega á saumana sem héldu rík­is­stjórn­inni saman.

Þegar rík­is­stjórnin sprakk glímdi hún við for­dæma­lausar óvin­sældir ef miðað er við þann stutta tíma sem hún hafði setið. Einungis 27 pró­sent þjóð­ar­innar sagð­ist styðja hana og þær óvin­sældir bitn­uðu fyrst og síð­ast á litlu flokk­unum tveimur, Bjartri fram­tíð og Viðreisn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár