Forríka forsetadóttirin: „Ég er ekki í felum“

Dóttir fyrr­ver­andi for­seta Angóla, millj­arða­mær­ing­ur­inn Isabel dos Santos, seg­ist ekki á flótta undan rétt­vís­inni. Stjórn­völd í heima­landi hennar hafa beðið alþjóða lög­regl­una, Interpol, um aðstoð við að hafa uppi á henni.

Isabel dos Santos er elsta dóttir fyrrverandi forseta Angóla.
Isabel dos Santos er elsta dóttir fyrr­ver­andi for­seta Angóla. Mynd: EPA

„Ég er ekki í felum. Ég er á sam­fé­lags­miðlum á hverjum degi. Öllum ætti að vera kunn­ugt hvar ég held mig,“ segir Isabel dos Santos, dóttir fyrr­ver­andi for­seta Angóla sem stjórn­völd báðu alþjóða lög­regl­una, Interpol, nýverið að gefa út hand­töku­skipun á. Dos Santos sagði í einka­við­tali við þýska fjöl­mið­il­inn Deutsche Welle fyrir helgi að sér hefði ekki form­lega verið til­kynnt um hand­töku­skip­un­ina og að hún hefði hingað til verið fús til sam­starfs við yfir­völd. „Þegar portú­gölsk yfir­völd hafa kallað mig til þá hef ég alltaf mætt á réttum tíma og gefið skýrslu. Ég á ekki í neinum vand­ræðum með að hjálpa [yfir­völdum] að kom­ast að sann­leik­anum. En ég geri ráð fyrir að sak­sókn­ari í Angóla vilji í raun ekki að ég gefi vitn­is­burð fyrir dómi.“

[adspot]

Isabel dos Santos er elsta barn Jose Eduardo dos Santos sem var for­seti Angóla í tæpa fjóra ára­tugi. Hún er talin hafa efn­ast mjög á ætt­ar­tengslum sínum og kom­ist að kjöt­kötl­unum í Angóla fyrir hans til­stilli. En síð­ustu ár hefur hún verið sökuð um svik og spill­ingu og er nú eft­ir­lýst fyrir marg­vís­lega meinta glæpi, m.a. fjár­drátt og pen­inga­þvætti.

Núver­andi stjórn­völd lands­ins sök­uðu hana árið 2020 um að hafa fært tugi millj­óna banda­ríkja­doll­ara úr sjóðum rík­is­ins til fyr­ir­tækja sem hún og eig­in­maður hennar héldu um stjórn­ar­taumana í. Þau eru einnig sökuð um að hafa kom­ist yfir hluti sína í þessum fyrrum rík­is­fyr­ir­tækjum með aðstoð föður hennar. Meðal fyr­ir­tækj­anna sem hún er talin hafa hagn­ast á með þessum milli­færslum er olíu­ris­inn Sonangol. Út úr því fyr­ir­tæki er hún svo sökuð um hafa fært pen­inga á banka­reikn­inga í skatta­skjólum.

[links]Dos Santos er umfjöll­un­ar­efni Lúanda-skjal­anna, sem lekið var til Samtaka rann­sókn­ar­blaða­manna, ICIJ, árið 2020 og fréttir í kjöl­farið birtar upp úr í fjöl­miðlum víða um heim. Helstu nið­ur­stöður þeirra eru að í tvo ára­tugi voru stunduð inn­herj­a­við­skipti sem gerðu Isabel dos Santos að rík­ustu konu Afríku en hið olíu- og dem­ant­sauð­uga Angóla að einu fátæk­asta ríki ver­aldar.

Í við­tal­inu við DW segir dos Santos að skjöl­unum hafi verið lekið til að koma höggi á fjöl­skyldu hennar.

„Miklu magni af röngum upp­lýs­ingum var dreift með Lúanda-skjöl­unum,“ segir hún. „Og að baki lek­anum er skrif­stofa rík­is­sak­sókn­ara Angóla og angólska ríkið sem réði hóp blaða­manna til að dreifa upp­lýs­ing­unum.“

Hún seg­ist vilja aðstoða svo að sann­leik­ur­inn komi fram. „Fólk þarf að vita að hin svo­kall­aði Lúanda-leki eru pant­aðar lygar. Þetta er sam­særi gegn mér og minni fjöl­skyldu.“

Vefur fyrirtækja með tengsl við skattaskjól

Í Lúanda-skjöl­unum var afhjúp­aður vefur meira en 400 fyr­ir­tækja og dótt­ur­fyr­ir­tækja í 41 landi sem tengj­ast dos Santos og eig­in­manni hennar heitnum, Sindika Dokolo, þar af eru 94 í skatta­skjólum. Dokolo lést árið 2021 í köf­un­ar­slysi.

Margir fjár­mála­ráð­gjafar og fyr­ir­tæki á Vest­ur­löndum aðstoð­uðu við að færa til pen­inga, stofna félög og end­ur­skoða reikn­inga. Þessir aðilar veittu sumir ráð­gjöf um hvernig væri hægt að skjóta fé undan skatti á meðan aðrir þótt­ust ekki taka eftir neinu mis­jöfnu sem margt benti til að væri í gangi.

Skjölin sýna einnig hvernig Isabel dos Santos keypti banka á meðan aðrar fjár­mála­stofn­anir og trygg­inga­fé­lög neit­uðu að stunda við­skipti við hana því þeim þótti ekki ljóst hvaðan auður hennar kæmi. Að hún hafi ginnt stjórn­völd og stjórn­endur fyr­ir­tækja á Vest­ur­löndum til að setja pen­inga í verk­efni sín og þrýst á upp­bygg­ing­ar­verk­efni sem varð til þess að þús­undir fátækra Angóla­manna misstu heim­ili sín við strönd­ina.

Þá er hún sam­kvæmt skjöl­unum sögð hafa beint hund­ruðum millj­ónum doll­ara sem fengnar voru að láni eða með samn­ingum til eigin fyr­ir­tækja og tengdra aðila, m.a. með því að milli­færa 38 millj­ónir doll­ara frá rík­is­rekna olíu­fyr­ir­tæk­inu Sanangol inn á reikn­ing í Dubaí, aðeins nokkrum klukku­tímum eftir að for­set­inn hafði rekið hana úr starfi stjórn­ar­for­manns.

DW ræðir einnig við Ana Gomes, portú­galskan stjórn­mála­mann og fyrr­ver­andi full­trúa Evr­ópu­þings­ins. Hún segir rangt að Lúanda-skjölin hafi verið pöntuð af stjórn­völdum í Angóla. Þeim hafi verið lekið til sam­taka rann­sókn­ar­blaða­manna og tugir blaða­manna víða um heim hafi svo greint þau og birt úr þeim fréttir. Allar upp­lýs­ingar sem birt­ust hafi verið stað­festar.

Auðuga ríkið með fátæka fólkinu

Angóla er á vest­ur­strönd Afríku og er sjö­unda stærsta land álf­unnar að flat­ar­máli. Landa­mæri þess liggja að Namibíu, Austur-Kongó og Sambíu. Líkt og í mörgum öðrum Afr­íku­löndum voru landa­mærin dregin af nýlendu­herrum, Portú­gölum í þessu til­viki, sem fyrst komu sér þar fyrir á sext­ándu öld. Innan landamær­anna lentu margar og ólíkar þjóðir og er ríkið fékk sjálf­stæði árið 1975 braust út blóðug borg­ara­styrj­öld sem varði í 27 ár. Þúsundir féllu og efna­hagur lands­ins hrundi.

[adspot]

Dos Santos þver­tekur fyrir að hafa efn­ast af rík­is­eignum heima­lands síns. „Þegar ég var skipuð í stjórn Sonangol þá kom ég úr einak­geir­anum. Ég hafði þá þegar stjórnað mörgum öðrum fyr­ir­tækjum. Ég vil taka það skýrt fram: Mín fyr­ir­tæki voru ekki byggð upp fyrir almanna fé.“

Á síð­ustu árum hefur Isabel dos Santos verið í marg­vís­legum fyr­ir­tækja­rekstri, m.a. í banka­starf­semi, fjar­skiptum og tækni­geir­anum. Í við­tal­inu við DW seg­ist hún hafa fengið fé að láni til að byggja upp við­skipta­veldi sitt.

Fékk lánin vegna tengsla

Gomes heldur því hins vegar fram að dos Santos hafi fengið lán og geta nýtt almanna fé vegna fjöl­skyldu­tengsl­anna. Lánin hafi oft og tíðum verið „af vafasömum upp­runa“ og því haldið fram að í raun hafi verið um opin­bert fé að ræða.

„Hún var dóttir for­seta Angóla. Hún hefði aldrei haft aðgang að því fjár­magni sem hún hafði og þeirri stöðu sem hún fékk í þessum fyr­ir­tækjum ef hún hefði ekki verið dóttir for­set­ans.“

Dos Santos segir að dóms­kerfi Angóla sé byggt á sandi. Það sé ekki sjálf­stætt. Lög séu höfð að engu og marg­vís­leg mis­tök gerð í með­höndlun dóm­stóla. „Áður en ég lenti í þeirri stöðu sem ég er núna í vissi ég af þessu,“ segir hún.

Isabel Dos Santos tók millj­ónir á millj­ónir ofan að láni hjá portú­gölskum bönkum, segir Gomes. Hún hafi skilið eftir sig sviðna jörð. Það sé óásætt­an­legt að hún hafi enn ekki verið dregin til ábyrgðar, hvorki í Portúgal né Angóla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár