Kröfum yfirvalda vísað frá í Landsrétti því fólkið er ekki lengur í sóttkví

Lands­réttur vís­aði kröfum sótt­varna­læknis frá í dag sökum þess að ekki eru lengur taldir lögvarðir hags­munir til staðar í mál­unum sem um ræðir. Ein­stak­ling­arnir sem skylda átti í sótt­varna­hús eru enda lausir úr sótt­kví.

Landsréttur tók málin fyrir í dag og vísaði þeim frá af því að fólkið sem höfðaði málin er ekki lengur í sóttkví.
Lands­réttur tók málin fyrir í dag og vís­aði þeim frá af því að fólkið sem höfð­aði málin er ekki lengur í sótt­kví. Mynd: Bára Huld Beck

Lands­réttur hefur vísað frá kröfu sótt­varna­læknis um að úrskurðum Hér­aðs­dóms Reykja­víkur vegna skyldu­dvalar í sótt­varna­húsi verði snúið við.

Fram kemur á vef Frétta­blaðs­ins, sem fyrst sagði frá, að kröfu sótt­varna­læknis hafi verið vísað frá vegna skorts á lög­vörðum hags­munum – enda er fólkið sem málin snúa að búið að fara í seinni landamæra­skimun og er laust úr sótt­kví.

Til við­bótar segir frá því í frétt á Vísi að dóm­arar í Lands­rétti hafi vísað til þess að yfir­völd hefðu brugð­ist við úrskurði hér­aðs­dóms með því að leyfa fólki á sótt­kví­ar­hót­el­inu að yfir­gefa það, ef það hefði aðstöðu til að ljúka sótt­kví ann­ars staðar.

Frávísun Lands­réttar þýðir því að úrskurður Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í mál­unum stendur óhögguð, án þess að þessi mál hafi fengið efn­is­lega með­ferð í Lands­rétti.

Nið­ur­staða Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í einu mál­anna hefur verið birt opin­ber­lega. Hana má nálg­ast hér. Í úrskurð­inum segir skýr­lega að laga­stoð skorti fyrir þeirri ráð­stöfun að skikka alla sem hingað koma frá skil­greindum háá­hættu­svæðum í sótt­varna­hús.

Dómurinn taldi því óhjá­kvæmi­legt að fella ákvörðun um skyldu­sótt­kví í sótt­varna­húsi úr gildi, en talið var að ein­stak­ling­ur­inn sem fór með málið fyrir dóm­ara hefði sýnt fram á það með full­nægj­andi hætti að geta sjálfur og á eigin vegum full­nægt þeirri laga­skyldu sem á honum hvíldi að sæta sótt­kví.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár