Tuttugu einstaklingar skulda LÍN 663 milljónir

Þeir tutt­ugu ein­stak­lingar sem skulda Lána­sjóði íslenskra náms­manna mest, og hafa klárað nám og hafið end­ur­greiðslur, skulda sam­an­lagt 663 millj­ónir króna. Hæsta ein­staka lánið er 47,2 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í árs­skýrslu LÍN.

Tólf af þessum tutt­ugu ein­stak­lingum luku dokt­ors­námi, þar af sjö í Banda­ríkj­unum og fimm í Bret­landi. Hinir átta luku meist­ara­námi, sjö í Banda­ríkj­unum og einn í Bret­landi. Með­al­staða náms­lána­skuldar þeirra er í dag 33,1 millj­ónir króna, en sem fyrr segir er hæsta lánið 47,2 millj­ónir. Á síð­ustu átta árum hafa þessir ein­stak­lingar borgað um 19,5 millj­ónir króna af lánum sínum, sem gera um 2,4 millj­ónir á ári. Það þýðir að hver greið­andi greiddi um 120 þús­und krónur að með­al­tali á ári. Þó kemur fram í árs­skýrsl­unni að nokkrir þess­ara ein­stak­linga hafi ekk­ert borgað af náms­lána­skuldum sínum.

Tuttugu hæstu lánin hjá þeim sem eru enn í námi eða hafa nýlokið því og eru ekki byrj­aðir að borga til baka nema tæp­lega 507 millj­ónum króna. Átta þess­ara ein­stak­linga eru í dokt­ors­námi, fjórir í meist­ara­námi og tveir eru í grunn­námi í Englandi og Banda­ríkj­unum. Sex ein­stak­lingar eru í lækn­is­fræði­námi í Ung­verja­landi.

Ekki er óal­gengt að ein­stak­lingar skuldi meira en tutt­ugu millj­ónir króna í náms­lán og þeim fer fjölg­andi sem skulda þrjá­tíu millj­ónir eða meira.

Ójöfn dreifing lánsupphæða og þeir sem fá mest borga minna til baka


Fyr­ir­komu­lagið á end­ur­greiðslum náms­lána tryggir lága greiðslu­byrði, af því að greitt er ákveðið fast hlut­fall af tekjum. Í árs­skýrsl­unni kemur fram að að með­al­tali felst helm­ings eft­ir­gjöf á lánum sem eru á bil­inu 7,5 til 10 millj­ónir króna. „Fer sá rík­is­styrkur sem felst í náms­láni í formi affalla og hag­stæðra vaxta­kjara af lán­inu hækk­andi eftir því sem fjár­hæð náms­láns er hærri.“

Lána­sjóð­ur­inn lét gera skýrslu um fjár­hags­legar áhættur sínar og þar var meðal ann­ars skoðuð dreif­ing á láns­upp­hæðum. Í ljós koma að dreif­ingin er mjög ójöfn. Sá fimmt­ungur lán­þega sem skuldar mest hjá lána­sjóðnum skuldar sam­tals um 102 millj­arða, eða tæp­lega helm­ing af öllum útlánum. Upphæðin sem vænst er að fáist til baka er hins vegar 43 millj­arðar, eða um 42 pró­sent af heild­ar­skuld­inni. Efstu fimm pró­sentin skulda 37 millj­arða, en vænst er að um 11 millj­arðar eða 30 pró­sent fáist til baka.

Hins vegar eru skuldir þess fimmt­ungs sem skuldar minnst um sjö millj­arðar króna og 90 pró­sent af þeirri upp­hæð mun borg­ast til baka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár