„Stígur illa í spínatið“

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar and­mælir ummælum í grein Stefáns Ólafs­sonar, pró­fess­ors við HÍ og sér­fræð­ings hjá Efl­ing­u, um ferða­þjón­ust­una.

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, telur að Stefán Ólafsson, pró­fessor við HÍ, hafi stigið „illa í spínatið“ í grein sem birt­ist á Kjarn­anum í morgun. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu hans í dag.

Hann seg­ist í grunn­inn vera sam­mála því að rík­is­valdið eigi mögu­leika á því að stíga enn betur inn í aðstæð­urnar sem nú eru uppi í sam­fé­lag­inu vegna COVID-19 far­ald­urs­ins með vel ígrund­uðum aðgerðum. Skautun yfir ferða­þjón­ustu í því sam­hengi sé hins vegar und­ar­leg.

Stefán segir í grein sinni að ferða­þjón­ustan hafi vaxið of hratt á síð­ustu árum og vart verið sjálf­bær, enda hafi hún stólað á skatt­fríð­indi, erlent skamm­tíma­vinnu­afl í lág­launa­störfum og ofnotkun á nátt­úru­gæð­un­um.

Ljóst að vöxturinn myndi ekki halda svona áfram til eilífðarnóns

Jóhannes Þór bregst við þessu og segir að í fyrsta lagi hafi gríð­ar­legur vöxtur ferða­þjón­ust­unnar aldrei verið sjálf­bær til lengri tíma – um það geti þeir verið sam­mála. „Það lá hins vegar alveg eins aug­ljóst fyrir að vöxt­ur­inn myndi ekki halda svona áfram til eilífð­ar­nóns. Enda var þegar árið 2018 haf­inn fasi sam­þjöpp­unar og hag­ræð­ingar í grein­inni sem er það sem er eðli­legt að ger­ist eftir tíma­bil mik­ils vaxtar í atvinnu­grein. Þannig var ferða­þjón­usta þegar fyrir tveimur árum síðan komin á skýra leið til fram­tíðar í sjálf­bærum vexti í sam­ræmi við það sem ger­ist í heim­inum,“ skrifar hann.

[links]Í öðru lagi hafi ferða­þjón­ustan ekki búið við neins konar „skatt­fríð­indi“ umfram aðrar atvinnu­greinar. „Hér vísar Stefán vænt­an­lega til bullsins um „skatta­af­slátt“ vegna lægra þreps virð­is­auka­skatts sem hefur verið margoft og ítar­lega hrakið síð­ustu tvö ár. Í nær öllum nágranna- og sam­keppn­is­löndum okkar er ferða­þjón­usta í lægra þrepi virð­is­auka­skatts, og í mörgum þeirra er skatt­pró­sentan lægri en hér á landi. Hér er því um lyk­il­at­riði fyrir sam­keppn­is­hæfni atvinnu­grein­ar­innar að ræða sem skilar rík­inu í stað­inn meiri ávinn­ingi í öðrum tekjum.“

Í þriðja lagi sé erlent starfs­fólk um það bil einn þriðji hluti þeirra sem starfa í ferða­þjón­ustu en Íslend­ingar tveir þriðju hlutar. Jóhannes Þór segir að stór hluti erlends starfs­fólks­ins sé orðið svo rót­gró­inn og mik­il­vægur hluti sam­fé­lags­ins, rétt eins og Íslend­ing­arnir, að það sé minni­hluti starfs­fólks í ferða­þjón­ustu „erlent skamm­tíma­vinnu­afl“. Mikill meiri­hluti sé fólk sem búi árið um kring í íslensku sam­fé­lagi með fjöl­skyldur sínar.

Allur launaskalinn í ferðaþjónustu

Í fjórða lagi gagn­rýnir Jóhannes Þór orð Stefáns um að í ferða­þjón­ustu séu ein­ungis lág­launa­störf. „Stað­reyndin er að í ferða­þjón­ust­unni er allur launa­skal­inn alveg eins og í öðrum atvinnu­greinum og þar er t.d. fjöldi vel mennt­aðs og reynds starfs­fólks sem fær greitt fyrir vinnu sína í sam­ræmi við það. Ferða­þjón­ustan er hins vegar mann­afls­frek atvinnu­grein og mikið af störfum þar fyrir ómenntað starfs­fólk sem fær greitt sam­kvæmt því – það dregur með­al­talið auð­vitað niður. Lág­marks­laun á Íslandi eru samt sem áður þau hæstu innan OECD. Það er í sam­heng­inu athygl­is­vert að á sama tíma og Stefán gagn­rýnir ferða­þjón­ustu fyrir lág­launa­störf leggur hann til í stað­inn „mikla fjölgun starfa við umönnun“.“

Í fimmta lagi sé ekk­ert sem sýni fram á að ferða­þjón­usta hafi „ofnotað nátt­úru­gæði“ und­an­farin ár. Þvert á móti sé leitun að atvinnu­grein þar sem ríki meiri virð­ing fyrir nátt­úr­unni og skiln­ingur á því að nátt­úra Íslands sé auð­lind sem verði að varð­veita. „Það eru auð­vitað fjöl­mörg verk­efni í upp­bygg­ingu inn­viða sem við höfum þurft að bregð­ast við og það gekk hægar en þörf var á fyrstu ár vaxt­ar­ins. Síðustu ár hefur hins vegar orðið mikil brag­ar­bót á því með átaki ríkis, sveit­ar­fé­laga og atvinnu­grein­ar­innar, þó enn megi bæta við.

Sem málsvari ferða­þjón­ust­unnar hlýt ég að gera kröfu til þess að fræði­menn og aðrir sem nú tjá sig um ferða­þjón­ust­una og mál­efni tengd henni ýti ekki undir raka­lausa sleggju­dóma,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár