Mynd: Úr safni.

Kórónuveiran sýkir Kauphöllina

Gengi nær allra félaga sem skráð eru á íslenskan hluta­bréfa­markað hefur lækkað mikið það sem af er ári, og sér­stak­lega síð­ast­lið­inn mánuð. Um er að ræða mesta sam­drátt frá því í hrun­inu.

Einungis tvö félög sem skráð eru í Kauphöll Íslands hafa hækkað í verði það sem af er ári.

Hin átján félögin sem skráð eru á aðal­l­ista Kaup­hall­ar­innar hafa lækkað í virði. Og tíu þeirra hafa lækkað um tæpan fimmt­ung eða meira í virði á árinu 2020.

Tvö hafa misst rúm­lega þriðj­ung af mark­aðsvirði sínu og eitt hefur rúm­lega helm­ing­ast í virði.

Úrvals­vísi­tala íslensku Kaup­hall­ar­inn­ar, sem er saman sett úr gengi þeirra tíu félaga á mark­aði sem hafa mestan selj­an­leika, hefur alls lækkað um 18,5 pró­sent á árinu 2020.

Það hafa því hund­ruð millj­arða króna af virði skráðra félaga í Kauphöll horfið á síð­ustu mán­uðum og um er að ræða mesta sam­drátt í mark­aðsvirði félag­anna á aðal­l­ist­anum frá því í eft­ir­köstum banka­hruns­ins.

Þau sem hafa hækkað

Tvö félög hafa hækkað virði í ár. Annað þeirra, Heima­vellir, er í yfir­töku­ferli og útskýrir það alls 29,2 pró­sent hækkun á bréfum þess. Mark­aðsvirði Heima­valla er 16,4 millj­arðar króna miðað við gengi bréfa í félag­inu við lok við­skipta í gær. Það hefur auk­ist um 3,7 millj­arða króna frá ára­mótum.

Sá aðili sem gerði yfir­tökutil­boðið er norska félagið Fredens­borg AS. Verðið er 1,5 krónur á hlut og því hljóðar yfir­tökutil­boðið í heild sinni upp á 17 millj­arða króna. Það er því hærra en núver­andi mark­aðsvirði Heima­valla.

Hitt félagið sem hefur hækkað í verði eru Hagar, stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæki á Íslandi, en yfir­stand­andi efna­hags­á­stand vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum hefur almennt haft jákvæð áhrif á veltu mat­vöru­versl­ana. Hagar eiga og reka 46 versl­anir innan fimm smá­sölu­fyr­ir­tækja og fjögur vöru­hús. Þar á meðal eru tvær af stærstu versl­un­ar­keðjum lands­ins, Bónus og Hagkaup. Þá rekur félagið 28 Olís­stöðvar um land allt auk 41 ÓB-stöðva.

Þau sem hafa unnið varnarsigra

Minnst hefur lækk­unin verið hjá Símanum, sem er nú 1,06 pró­sent minna virði en félagið var um ára­mót, þrátt fyrir að helsta sjón­varps­vara félags­ins, enski bolt­inn sé kom­inn á ís. Það hefur mögu­leg áhrif á aug­lýs­inga­sölu Símans auk þess sem hann ákvað að fella niður áskrift­ar­gjöld hjá þeim sem eru áskrif­endur að enska bolt­anum. Engin breyt­ing verður hins vegar á áskrift­ar­verði á svoköll­uðum Heim­il­i­s­pakka, en það var hækkað úr fimm þús­und krónum á mán­uði í sex þús­und í fyrra þegar enska bolt­anum var bætt við pakk­ann. Lang­flestir áskrif­endur að sjón­varps­þjón­ustu Símans eru með Heim­il­i­s­pakk­ann en þeir skipta tugum þús­unda.

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Brim, sem til­kynnti í vik­unni að það ætli að halda arð­greiðslu­á­formum upp á 1,9 millj­arða króna til streitu þrátt fyrir yfir­stand­andi ástand, hefur líka haldið virði sínu nokkuð stöð­ugu. Það hefur lækkað um 3,71 pró­sent. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur Brim ekki sótt um að nýta sér neitt þeirra úrræða sem stjórn­völd hafa boðið upp á vegna efna­hags­legra afleið­inga kór­ónu­veirunnar.

Hagar, sem reka meðal annars Bónus, er eina félagið í Kauphöll sem er ekki í yfirtökuferli sem hefur hækkað í virði það sem af er ári.
Hagar, sem reka meðal ann­ars Bónus, er eina félagið í Kauphöll sem er ekki í yfir­töku­ferli sem hefur hækkað í virði það sem af er ári.

Elds­neyt­is­sal­arnir Skelj­ungur og Festi, sem er líka á meðal stærstu smá­sölu­fyr­ir­tæki á land­inu, hafa lækkað um ann­ars vegar 6,09 pró­sent og hins vegar um 8,11 pró­sent í verði.

Marel, lang­verð­mætasta félagið í Kaup­höll­inni, hefur misst 9,25 pró­sent af verð­mæti sínu. Það er þó engin smá tala í ljósi þess hversu stórt félag Marel er. Mark­aðsvirðið fór yfir 500 millj­arða króna í stutta stund í jan­úar en er nú 422,5 millj­arðar króna. Það hefur því dreg­ist saman um rúm­lega eina Leið­rétt­ingu á örfáum vikum.

Origo hefur svo tapað 12,95 pró­sent af verð­gildi sínu.

Tryggingafélögin og fasteignarfélögin

Trygg­inga­fé­lögin þrjú sem skráð eru á markað hafa öll fallið veru­lega í verði, og má það rekja til, að minnsta kosti að hluta, að stór hluti af starf­semi þeirra allra er fjár­fest­ing­ar­starf­semi, en mark­aðir út um allan heim eiga veru­lega undir högg að sækja um þessar mundir.

Sjóva hefur unnið mestan varn­ar­sigur, en bréf í því félagið hafa fallið um 10,16 pró­sent. VÍS er ekki langt undan en mark­aðsvirði þess hefur dreg­ist saman um 13,75 pró­sent.

Mesta höggið hefur TM tekið. Mark­aðsvirði þess hefur fallið um 21,92 pró­sent eða um rúman fimmt­ung.

Fast­eign­ar­fé­lögin sem skráð eru á markað hafa líka fallið hratt í því ástandi sem nú er uppi, enda rekstur þeirra nátengdur ferða­þjón­ustu og því að atvinnu­lífið sé í nokkuð góðu standi. Reginn hefur lækkað um 20,15 pró­sent, Eik um 24,67 pró­sent og Reitir um heil 25,9 pró­sent.

Hin sem hafa farið illa út úr ástandinu

Fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Sýn hefur tapað 19,14 pró­sent af virði sínu það sem af er ári. Það bæt­ist ofan á 16,3 pró­sent sam­drátt í mark­aðsvirði félags­ins á árinu 2019. Mark­aðsvirðið er nú ein­ungis um 8,4 millj­arðar króna sem gerir Sýn að ódýrasta félag­inu í Kauphöll og því eina sem er undir tveggja stafa tölu af millj­örðum króna í virði.

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Iceland Seafood, sem sér­hæfir sig í sölu á sjáv­ar­af­urðum, hefur hríð­fallið í virði á árinu 2020, eða um 23,97 pró­sent.

Það bafa náðir bank­arnir sem skráðir eru á markað, Kvika banki (22,31 pró­sent) og Arion banki (36,04 pró­sent) einnig gert. Í til­felli Arion banka hefur sam­drátt­ur­inn í mark­aðsvirði raunar ein­ungis verið hlut­falls­lega meiri í einu félagi sem skráð er á markað, Icelandair.

Og þau sem hafa lækkað mest

Hið gríð­ar­lega fall í virði Arion banka má tengja við það að hann er mun umsvifa­meiri í útlánum en t.d. Kvika banki og fyr­ir­liggj­andi að við­skipta­vinir hans í ferða­þjón­ustu, og ýmsum öðrum geirum sem verða fyrir áhrifum vegna ástands­ins, muni lenda í erf­ið­leikum með að standa við skuld­bind­ingar sínar. Þá hafa stjórn­völd beint þeim skila­boðum til stóru við­skipta­bank­anna þriggja; Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka, að það sé ætl­ast til að þeir borgi hvorki út arð né ráð­ist í end­ur­kaup á eigin bréfum í ljósi þess að veru­lega hefur verið losað um hömlur á eigin fé þeirra til að mæta stöð­unni í atvinnu­líf­inu. Arion banki, sá eini af kerf­is­lega mik­il­vægu bönk­unum, hefur þó hingað til ein­ungis ákveðið að fresta tíu millj­arða króna arð­greiðslu vegna síð­asta árs í tvo mán­uði og stjórn hans end­ur­nýj­aði heim­ild til end­ur­kaupa á aðal­fundi bank­ans þann 17. mars. Mark­aðsvirði Arion banka er nú um 100 millj­arðar króna en til sam­an­burðar nam bók­fært eigið fé bank­ans 189 millj­örðum króna um síð­ustu ára­mót.

Eimskip hefur ekki siglt lygnan sjó undanfarin ár.
Eimskip hefur ekki siglt lygnan sjó und­an­farin ár.

Eimskip hafa líka farið ansi illa út úr síð­ustu þremur mán­uðum. Raunar hefur rekstur félags­ins verið þungur und­an­farin þrjú ár og hagn­aður þess dreg­ist saman ár frá ári. Þann 10. mars síð­ast­lið­inn virkj­aði sjáv­ar­út­vegs­ris­inn Samherji, sem var fyrir stærsti eig­andi Eimskips, yfir­töku­skyldu í félag­inu með því að fara yfir 30 pró­sent eign­ar­hlut. Tíu dögum síðar höfðu rekstr­ar­að­stæður Eimskips versnað til muna með lokun flestra lyk­il­mark­aða Íslands í heim­inum vegna bar­átt­unnar við kór­ónu­veirunar, og Samherji biðl­aði til Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­bank­ans um að hleypa sér undan yfir­töku­skyld­unni. Eft­ir­litið varð við þeirri beiðni á þriðju­dag.

Virði bréfa í Eimskip hafa fallið um 34,3 pró­sent það sem af er ári. Það þýðir að rúmur þriðj­ungur af mark­aðsvirði félags­ins er horf­inn.

Það félag sem fallið hefur mest í virði er eðli­lega Icelandair Group. Alls hafa hluta­bréf í félag­inu fallið um 50,99 pró­sent á þremur mán­uðum og virði þeirra nú er 3,7 krónur á hlut. Það þýðir að mark­aðsvirði Icelandair er nú ein­ungis 20,1 millj­arðar króna. Það var um 42 millj­arðar króna í lok síð­asta árs. Hæst reis það í apríl 2016 og fór þá í 191,5 millj­arð króna.

Starf­semi Icelandair er nú í lama­sessi og flota félags­ins hefur verið lagt tíma­bundið að mestu. Fyr­ir­tækið sagði upp 240 manns í síð­ustu viku og 92 pró­sent eft­ir­stand­andi starfs­manna þess voru fluttir í hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda, þar sem allt að 75 pró­sent af greiddum launum koma úr rík­is­sjóði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár