Stjórnarmenn Arion eru útbrunnir, bankastjórinn síbrotamaður og stjórnandi „Quislingur“

Ráðandi öfl í Arion banka lögð­ust svo lágt að inn­lima AFL spari­sjóð með ofbeldi til að hylma yfir klúður yfir­manna bank­ans í upp­stokkun á fjár­hag hans. Þessi litla lána­stofnun sem varð til við sam­ein­ingu Spari­sjóðs Skaga­fjarðar og elstu pen­inga­stofn­unar lands­ins, Spari­sjóðs Siglu­fjarðar, mun nú renna inn í sjóði erlendra vog­un­ar­sjóða undir nafni Arion banka. Þetta segir Róbert Guð­finns­son, athafna­maður á Siglu­firði og maður árs­ins í íslensku við­skipta­lífi árið 2014 að mati tíma­rits­ins Frjálsrar versl­unar , í harð­orðum pistli á vef­síð­unni siglo.is sem ber heitið "Í minn­ingu spari­sjóðs".

Þar hellir hann sér yfir Arion banka, bæði almennt og vegna inn­limunar AFLs spari­sjóðs. Róbert segir meðal ann­ars að í stjórn Arion banka hafi settir útbrunnir ein­stak­lingar með tak­mark­aða getu til umbreyt­ingu sem þjóna vog­un­ar­sjóðum og að í banka­stjóra­stólnum sitji síbrota­maður (Hösk­uldur Ólafsson) sem „á feril í fyr­ir­tækjum sem ítrekað hafa verið í rann­sókn vegna brota á sam­keppn­is­lögum“. Yfir fyr­ir­tækja­svið­inu sé „Quislingur“ (Halldór Bjarkar Lúð­víks­son) sem hafi keypt sér frið­helgi hjá Sér­stökum sak­sókn­ara gegn því að vitna gegn fyrrum sam­starfs­mönnum sínum.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið heim­il­aði í gær sam­ein­ingu Arion banka og AFLs spari­sjóðs eftir að mat KPMG á lána­safni sjóðs­ins leiddi í ljós að staða hans er mun verri en fram kom í síð­asta árs­reikn­ingi. AFL þarf á veru­legu eig­in­fjár­fram­lagi að halda til að upp­fylla kröfur Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um eig­in­fjár­hlut­fall og því hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið nú end­ur­skoðað fyrri ákvörðun og heim­ilað Arion banka að sam­eina AFL spari­sjóð bank­anum þar sem spari­sjóð­ur­inn er tal­inn fjár­mála­fyr­ir­tæki á fallanda fæti.

Arion banki var langstærsti eig­andi stofn­fjárs með 99,3 pró­sent eign­ar­hlut fyrir inn­limun­ina.

[caption id="attachment_16717" align="alignnone" width="800"] Hösk­uldur Ólafsson, banka­stjóri Arion banka, er kall­aður síbrota­maður í pistli Róberts.[/caption]

Mun renna í sjóði vogunarsjóða


Þessi sam­ein­ing fer mjög fyrir brjóstið á Róberti, sem hefur sett millj­arða króna í upp­bygg­ingu á Siglu­firði á und­an­förnum árum og ger­breytt ásynd bæj­ar­ins.

Pistil hans má lesa í heild sinni hér að neðan:

"Und­an­farna mán­uði hefur það legið í loft­inu að Arion banki ætli sér að hrifsa til sín AFL Spari­sjóð, bóta­laust. Þessi litla lána­stofnun sem varð til við sam­ein­ingu Spari­sjóðs Skaga­fjarðar og elstu pen­inga­stofn­unar lands­ins, Spari­sjóðs Siglu­fjarðar, mun nú renna inn í sjóði erlendra vog­un­ar­sjóða undir nafni Arion banka. Síðasta rúma árið hafa þrjár stjórnir setið í AFLi spari­sjóði. Tvær stjórnir skip­aðir aðilum sem ætla mætti að hefðu verið óháðar Arion banka. Þann 24. apríl sl. skip­aði Arion banki sitt eigið fólk í stjórn AFLs með fjár­mála­stjóra Arion banka sem stjórn­ar­for­mann. Þessi ráð­stöfun var mjög sér­kenni­leg þar sem AFL Spari­sjóður er í mála­ferlum við aðal­eig­anda sinn, Arion banka, út af erlendum lánum sem talin eru ólög­leg sam­kvæmt lög­fræði­á­liti. Ef að þessi mála­ferli vinn­ast má ætla að það mynd­ist veru­legt óráð­stafað eigið fé í AFLi Spari­sjóði sem borga ætti út í sam­fé­lags­sjóði í Skaga­firði og á Siglu­firði. Með þess­ari aðgerð er Arion banki að koma sér undan þessu máli, því ekki mun bank­inn halda uppi mála­ferlum gegn sjálfum sér.

Eftir hrun íslensku bank­anna árið 2008 var því heitið að upp úr rúst­unum skyldi rísa heil­brigð­ara banka­kerfi með heið­ar­legum vinnu­brögðum. Fyrir mig sem upp­lifði efna­hags­runið úr fjar­lægð, búandi erlendis, þá átti ég von á að hæft fólk með mik­inn metnað og fram­tíð­ar­sýn tæki við í fjár­mála­geir­anum og betri tímar væru í vændum.
Að upp­lifa vinnu­brögð Arion banka í máli AFLs síð­ustu tvö árin gefa mér ekki til­efni til að ætla að sú sé raunin. Í stjórn Arion banka eru settir útbrunnir ein­stak­lingar með tak­mark­aða getu til umbreyt­inga og sitja þar ein­göngu til að mata krók­inn og þjóna vog­un­ar­sjóð­unum.

Í banka­stjóra­stóli Arion banka situr síbrota­maður sem á feril í fyr­ir­tækjum sem ítrekað hafa verið í rann­sókn vegna brota á sam­keppn­is­lögum.

Yfir fyr­ir­tækja­sviði Arion banka er ætl­aður “Quislingur” sem talið er að hafi keypt sér frið­helgi hjá Sér­stökum sak­sókn­ara gegn því að vitna gegn fyrrum sam­starfs­mönnum sínum.

Nú hafa þessir ráð­andi öfl í Arion banka lagst svo lágt að inn­lima lít­inn spari­sjóð með ofbeldi til að hylma yfir klúðri yfir­manna bank­ans í upp­stokkun á fjár­hag AFLs Spari­sjóðs. Þetta klúður Arion banka gæti skilið eftir í sam­fé­lags­sjóðum upp­hæðir sem um munar fyrir fólkið í byggð­unum ef að mála­ferlin vinn­ast.
Eftir upp­lifum eins og yfir­gang Arion banka í mál­efnum AFLs spari­sjóðs koma upp í huga mér orð ágæts drengs á örlaga­stundu: “Guð blessi Ísland”."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár