Stjórnarandstaða kjarklaus gagnvart Icesave, skuldalækkun og kröfuhöfum

Enn er rætt um frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar um lög á kjara­deilur og frestun á verk­föllum hjúkr­un­ar­fræð­inga og félaga innan BHM á þing­inu, jafn­vel þótt ekki sé enn búið að mæla fyrir frum­varp­inu. Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra, var fyrstur stjórn­ar­liða til að tjá sig um málið undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta. Hann brást ókvæða við gagn­rýni stjórn­ar­and­stöð­unnar, sem hefur sagt málið sví­v­irðu, frá­leitt og ein­hverjir talað um kjark­leysi stjórn­ar­innar. Gunnar Bragi hóf ræðu sína á að segja það gaman að sjá að stjórn­ar­and­staðan nyti þess að vera í sviðs­ljós­inu því það hefði hún ekki gert þegar hún sjálf hafi sett lög á verk­fall flug­virkja. Gunnari Braga var svo mjög heitt í hamsi þegar hann sagði eft­ir­far­andi, en gríð­ar­lega mikið var kallað fram í fyrir honum eins og heyra má í þessu mynd­bandi.

„Svo tala menn um kjark­leysi hér. Hver var það sem þorði að standa uppi í hár­inu á kröfu­höf­unum? Ekki hátt­virtur þing­maður Össur Skarp­héð­ins­son. Hver var það sem þorði að taka á Icesave? Ekki hátt­virtur þing­maður Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir. Og hver þorði að lækka lán heim­il­anna? Ekki Sam­fylk­ing og ekki Vinstri græn. Hvar er kjark­ur­inn? Hvar er kjark­ur­inn? Hræsni stjórn­ar­and­stöð­unnar er það sem stendur upp úr og hefur alltaf gert.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár