Kjarninn og Nútíminn í samstarfi: Hvetjum ungt fólk til að kjósa

Yngstu kjós­end­urnir skila sér síður á kjör­stað, sam­kvæmt rann­sóknum. Kosn­inga­þátt­taka á Íslandi fer minnk­andi. Sam­starfs­verk­efni Kjarnans og Nútímans hvetur ungt fólk til að nota atkvæð­is­rétt sinn.

Kjarninn og Nútíminn hafa sett af stað sam­fé­lags­miðla­her­ferð­ina #Kjósum þar sem ungt fólk er hvatt til að nýta atkvæð­is­rétt sinn í for­seta­kosn­ing­unum næsta laug­ar­dag. Til að vekja athygli á her­ferð­inni fékkst lands­þekkt fólk til að koma fram í skemmti­legu mynd­bandi þar sem skila­boðin eru skýr: Hvert atkvæði skiptir máli.

Í nýlegum rann­sóknum hefur verið sýnt fram á að kjör­sókn ungs fólks hefur minnkað hraðar á und­an­förnum árum en meðal þeirra sem eldri eru. Séu nið­ur­stöður íslensku kosn­inga­rann­sókn­ar­innar á kosn­inga­hegðun Íslend­inga í síð­ustu fjórum Alþing­is­kosn­ingum skoð­aðar, þá sést að yngstu ald­urs­hóp­arnir draga kjör­sókn­ar­hlut­fallið niður.

Hvar kýs ég?

Þinn kjör­staður er að öllum lík­indum í næsta nágrenni. Hægt er að finna þinn kjör­stað og kjör­dæmi hér á kosn­ing.is. Ef þú kemst ekki á kjör­stað á laug­ar­dag­inn getur þú kosið utan kjör­fundar hjá sýslu­mönnum um allt land. Upp­lýs­ingar um hvar utan­kjör­fundur er hald­inn eru að finna á vef sýslu­manna hér.

[adspot]

Færri kjósa í forsetakosningum

Sé með­al­tal kjör­sóknar í kosn­ing­unum 2003, 2007, 2009 og 2013 skoðað sést að ald­urs­hóp­ur­inn 18-24 ára skilar sér síst á kjör­stað. Að með­al­tali svör­uðu 82,0 pró­sent á aldr­inum 18 til 24 ára sem tóku þátt í kosn­inga­rann­sókn­inni þessi ár að þau hefðu kosið í Alþing­is­kosn­ingum. Miðað við fólk á 35 til 64 ára þar sem með­al­hlut­fall þeirra sem sögð­ust hafa kosið var 91,8 pró­sent.

Í síð­ustu for­seta­kosn­ingum hefur kjör­sókn verið mun dræm­ari en kjör­sókn í Alþing­is­kosn­ingum. Í for­seta­kosn­ing­unum 2012 kusu aðeins 69,3 pró­sent þeirra sem voru á kjör­skrá, sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar. Árið 2004 kusu enn færri eða 62,9 pró­sent. Til sam­an­burðar kusu 81,5 pró­sent í Alþing­is­kosn­ingum 2013 og enn fleiri árið 2009 eða 85,1 pró­sent kosn­inga­bærra manna.

Sam­starfs­verk­efni Kjarnans og Nútímans var sett af stað á sam­fé­lags­miðlum í dag og stendur fram að kosn­ingum með umræðu­merk­inu #Kjósum. Öllum er frjálst að nota mynd­bandið og umræðu­merkið #Kjósum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár