Fjögur atriði af erlendum vettvangi helgarinnar

Donald Trump er aftur kom­inn í kosn­inga­ham, hvað gerð­ist í Svíþjóð?, vopna­hlé í Úkraínu og óvissan með NATO.

Netverjar hafa varpað upp hinum ýmsu myndum af því hvernig landamæraveggur Donalds Trump muni líta út. IKEA-útgáfan verður að teljast vera ólíklegur kostur en kómísk er hún. Og praktísk.
Net­verjar hafa varpað upp hinum ýmsu myndum af því hvernig landamæra­veggur Donalds Trump muni líta út. IKEA-útgáfan verður að telj­ast vera ólík­legur kostur en kómísk er hún. Og praktísk.

Fjögur atriði standa upp úr í erlendum fréttum þessa helg­ina. Það ætti engan að undra að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti er upp­spretta flestra þeirra frétta sem bár­ust um helg­ina. Heim­ur­inn snýst hins vegar ekki aðeins um hann, þó virð­ist vera hans eigin skiln­ingur á ver­öld­inni.

Í Rúss­landi hafa stjórn­völd lýst yfir vopna­hléi í Úkraínu, í Írak hefur her­inn haf­ist handa við að end­ur­heimta stjórn á Mosúl í norð­an­verðu land­inu frá Íslamska rík­inu og í sinni fyrstu opin­beru heim­sókn til Evrópu ákvað Mike Pence, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, að draga stuðn­ing Banda­ríkj­anna við NATO enn frekar í efa.

Kosningafundur Donalds Trump í Flórída

Síðan Donald Trump varð for­seti hefur hann ekki eytt einni helgi í Hvíta hús­inu, mörgum í Washington til mik­illar furðu. Hann hefur kosið að dvelja á hinum stöðum í eigin eigu og slaka á eða sinna starf­inu þaðan. Þessa vik­una er hann í Flórída-ríki.

Til þess að reyna að rétta af hrak­farir sínar und­an­far­inna daga hélt hann stóran fund í Melbourne í Flórída sem hafði öll ein­kenni kosn­inga­bar­áttufundar. Fund­ur­inn er eins furðu­legur og þessir fundir ger­ast, og í stað þess að færa rök fyrir gerðum sínum bætti Trump í og fór með allskyns fleipur.

Sjón er sögu rík­ari.

[adspot]

Hvað gerðist eiginlega í Svíþjóð?

Eitt þeirra atriða sem mikið hefur verið gert úr á sam­fé­lags­miðlum um helg­ina eru orð Banda­ríkja­for­seta um Svíþjóð en svo virð­ist vera að hann haldi að þar hafi orðið hryðju­verka­árás á föstu­dags­kvöld, í það minnsta talar hann um ótil­greinda atburði í Svíþjóð í sömu andrá og hann nefnir staði þar sem hryðju­verk hafa verið framin síð­ustu miss­eri.

Net­verjar hafa klórað sér í hausnum vegna þessa. Margar kenn­ingar hafa komið fram, hver annarri fárán­legri. Ein­hverjir hafa velt því upp hvort Trump hafi átt við Melodi­festivalen, und­ankeppni Eurovision þar í landi sem var sjón­varpað á föstu­dag­inn. Enn aðrir hafa gert að því skóna að IKEA hafi verið fengið til þess að byggja vegg­inn á landa­mærum Banda­ríkj­anna við Mexíkó.

Vopnahlé í Úkraínu

Sergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, kynnti áform um að vopna­hléi verði komið á í Úkraínu og að það muni hefj­ast á mánu­dag. Lavrov var við­staddur fund utan­rík­is­ráð­herra Úkraínu, Þýska­lands og Frakk­lands í München um helg­ina þar sem vopna­hléið var ákveðið.

Rússar hafa stutt við bakið á upp­reisn­ar­mönnum í borg­ara­stríð­inu í Úkraínu sem staðið hefur síðan 2013. Upp­reisn­ar­menn hafa haldið stórum svæðum í aust­ur­hluta lands­ins með hjálp Rússa, sem nýttu sér ringul­reið­ina og upp­lausn­ina í Úkraínu og inn­lim­uðu Krím­skaga árið 2014. Vest­ur­lönd, meðal ann­ars Ísland, hafa beitt Rússa við­skipta­þving­unum vegna þessa.

Þetta skref Rússa nú talið vera til þess að sýna Vest­ur­löndum að Rússar vilji vinna með en ekki á móti nágrönnum sínum og um leið fá við­skipta­bann­inu hnekkt.

Pence dýpkar gjána

Evr­ópu­ríkin í Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO) hafa ekki fengið skýr svör um stefnu banda­rískra stjórn­valda eftir að Donald Trump tók við emb­ætti fyrir mán­uði síðan. Trump tal­aði mikið um NATO-sam­starfið í kosn­inga­bar­áttu sinni en hefur dregið úr gíf­ur­yrðum und­an­farna mán­uði. Eftir standa hin banda­lags­ríkin, engu nær um hver stefna Banda­ríkj­anna er.

Á fundi utan­rík­is­ráð­herra Evr­ópu­ríkja í München í gær var Mike Pence, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, staddur og ávarp­aði hann sam­kom­una. Án þess að fara ítar­lega í málið þá dýpkaði hann frekar gjána sem mynd­ast hefur milli ríkj­anna beggja vegna Atl­ants­hafs­ins.

Pence fór með sömu rullu og yfir­maður hans hefur áður farið með og ítrek­aði að Banda­ríkin myndu ganga harðar eftir því að aðild­ar­ríkin að NATO myndu borga sinn skerf í banda­lagið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár