Landsbankinn má ekki upplýsa hvort Steinþór eigi enn hlut í bankanum

Stjórn­endur og starfs­menn Lands­bank­ans, sem fengu gef­ins hlut í honum, máttu selja hluti sína frá og með sept­em­ber 2016. Bankinn hefur boð­ist til að kaupa tvö pró­sent hlut í sjálfum sér. Ekki fæst upp­lýst hvort fyrr­ver­andi banka­stjóri eigi enn hlut.

Lands­bank­inn telur sig ekki geta svarað því hvort Steinþór Pálsson, fyrr­ver­andi banka­stjóri bank­ans, eigi enn hluti í bank­anum eða ekki. Samkvæmt síð­asta birta árs­reikn­ingi Lands­bank­ans átti Steinþór 345.228 hluti í bank­anum og var tíundi stærsti hlut­hafi bank­ans. Sá reikn­ingur sýndi stöð­una í lok árs 2016, Þá var rúmur mán­uður síðan að Steinþór lét af störfum hjá Lands­bank­anum.

Stjórn­endur og starfs­menn Lands­bank­ans fengu hluti sína í Lands­bank­anum gef­ins. Íslenska ríkið samdi um það í samn­ingi um fjár­hags­legt upp­gjör við kröfu­hafa gamla Lands­banka Íslands. Íslenska ríkið á í dag 98,2 pró­sent hlut í Lands­bank­anum en aðrir eig­endur, að mestu núver­andi og fyrr­ver­andi stjórn­endur og starfs­menn, eiga sam­an­lagt 1,8 pró­sent hlut. Alls eru hlut­hafar 1.003 tals­ins.

Veitir ekki umframupplýsingar

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til Lands­bank­ans um hvort Steinþór hefði selt hluti sína þegar hann lét af störfum og ef svo væri, hver hefði keypt hlut­inn. Í svari rík­is­bank­ans segir að hann veiti ekki upp­lýs­ingar um ein­staka hlut­hafa umfram það sem kemur fram í árs­reikn­ingi hans. „Í árs­reikn­ingi Lands­bank­ans kemur fram hverjir eru 10 stærstu hlut­hafar bank­ans. Upp­lýs­ingar um 10 stærstu hlut­hafa eru einnig birtar á vef bank­ans. Samkvæmt lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki ber að upp­færa á vef fjár­mála­fyr­ir­tækis lista yfir hlut­hafa sem eiga yfir 1% eign­ar­hlut innan 4 daga frá því að breyt­ing á sér stað. Bankinn birtir ekki frek­ari upp­lýs­ingar um ein­staka hlut­hafa á opin­berum vett­vangi.[...]Upp­lýs­ingar um alla hlut­hafa og hluta­fjár­eign þeirra eru í hluta­skrá bank­ans. Allir hlut­hafar og stjórn­völd hafa aðgang að henni og mega kynna sér efni hennar. Þá fylgja upp­lýs­ingar um hluta­fjár­eign allra hlut­hafa með árs­reikn­ingi þegar hann er sendur til rík­is­skatt­stjóra.“

Samið um að gefa starfsfólki hlut

Þegar íslenska ríkið samdi við kröfu­hafa gamla Lands­bank­ans í des­em­ber 2009 um skipt­ingu eigna hans fékk ríkið 80 ­pró­senta hlut í nýja Lands­bank­an­um, sem ­stofn­aður var á rústum hins gamla. Þessi hlutur gat hækkað umtals­vert ef vel geng­i að inn­heimta tvö lána­söfn, sem hétu Pony og Pegasus.

Afrakstur þeirrar inn­heimt­u átti að renna til gamla Lands­bank­ans og hlutur rík­is­ins myndi vaxa upp að 98,2 pró­sentum ef end­ur­heimtir yrðu góð­ar. Þorra afgang­sins áttu starfs­menn nýja Lands­bank­ans að fá í verð­laun fyr­ir­ vel heppn­aða rukk­un. Stein­grímur J. ­Sig­fús­son, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, ­skrif­aði undir samn­ing­inn fyrir hönd ­ís­lenska rík­is­ins. ­Nið­ur­staðan varð sú að end­ur­heimtir ­urðu með hæsta móti og starfs­menn­irn­ir ­fengu umræddan hlut gef­ins.

Á þeim hlutum sem runnu til starfs­manna bank­ans voru reyndar kvaðir um að ekki mætti fram­­selja hlut­ina fyrr en 1. sept­­em­ber 2016 en gert hafði verið ráð fyrir að búið yrði að ­skrá hluta­bréf í bank­­anum á skipu­­legan verð­bréfa­­markað fyrir þann tíma. Svo er hins vegar ekki og ekki fyr­ir­sjá­an­legt í nán­ustu fram­tíð að skrán­ing muni eiga sér stað, þótt að heim­ild sé til þess að selja stóran hluta í Lands­bank­anum á fjár­lögum.

Landsbankinn kaupir eigið hlutafé

Í sept­em­ber 2016 ákvað banka­ráð Lands­bank­ans að nýta heim­ild til að kaupa eigið hluta­fé. Til­gang­ur­inn er að lækka eigin fé bank­ans og gefa hlut­höfum hans mögu­leika á að selja hluti sína. Alls býðst bank­inn til að kaupa um tveggja pró­senta hlut í sjálfum sér, sem verð­metin er á 5,2 millj­arða króna miðað við bók­fært verð eigin fjár, í þremur lot­um. Síð­asta lotan fór fram í febr­úar síð­ast­liðnum. Á meðal þeirra sem geta selt eign­ar­hlut sinn í þessum lotum eru núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn Lands­bank­ans sem fengu hluta­bréf gef­ins.

Í síð­ustu end­ur­kaupa­lot­unni, sem lauk 24. febr­úar síð­ast­lið­inn, bauðst Lands­bank­inn til að kaupa hvern hlut á geng­inu 10,6226 krónur. Miðað við það verð er virði hlutar Stein­þórs um 3,7 millj­ónir króna.

Fékk þrjá mánuði greidda við uppsögn

Tilkynnt var um starfs­lok Stein­þórs 30. nóv­em­ber 2016. Tíu dögum áður hafði Rík­is­end­ur­skoðun birt skýrslu um fjöl­margar eigna­sölur Lands­bank­ans á árunum 2010 til 2016 og gagn­rýndi þær þar harð­lega. Á meðal þeirra var salan á eign­ar­hlut Lands­bank­ans í Borgun, sem mik­ill styr hefur staðið um.

Gagn­rýnin á bank­ann og stjórn­endur hans náði hámarki í mars 2016, þegar banka­ráð Lands­bank­ans greindi frá því að Banka­sýsla rík­is­ins hafi farið fram á það við sig að Stein­þóri yrði sagt upp störfum vegna Borg­un­ar­máls­ins. Enn fremur hafi stofn­unin farið fram á að for­maður og vara­for­maður banka­ráðs­ins myndu víkja. Ráðið varð ekki við því að segja upp banka­stjóra Lands­bank­ans. Þess í stað til­kynntu fimm af sjö banka­ráðs­mönnum Lands­bank­ans að þeir myndu ekki gefa kost á sér til end­ur­kjörs. Banka­sýslan hafn­aði því síðar að upp­sögn Stein­þórs hafi verið til skoð­unar hjá henni.

[links]Í ljósi þeirrar stöðu sem uppi hafði ver­ið, og þeirrar orð­spors­á­hættu sem Lands­bank­anum hafði verið skapað vegna Borg­un­ar­máls­ins, barst Rík­is­end­ur­skoðun form­legar og óform­legar beiðnir frá ein­staka þing­mönn­um, Lands­bank­anum sjálfum og Banka­sýslu rík­is­ins um að taka eigna­sölur bank­ans síð­ustu ár til skoð­un­ar. Rík­is­end­ur­skoðun varð við þeirri beiðni og ákvað að skoða alla eigna­sölu Lands­bank­ans frá árinu 2010 til 2016.

Nið­ur­staða Rík­is­end­ur­skoð­unar var síðan kynnt í nóv­em­ber. Þar voru gerðar fjöl­margar athuga­semdir við sölu Lands­bank­ans á mörgum eignum á umræddu tíma­bili. Einkum er kast­ljós­inu beint að sölu­ferli sex eigna. Söl­urnar hafi farið fram í lok­uðu ferli og í sumum til­vikum hafi feng­ist „lægra verð fyrir eign­ar­hlut­ina en vænta mátti miðað við verð­mætin sem þeir geymd­u.“

Þrátt fyrir mik­inn þrýst­ing þá aftók Steinþór það með öllu að hann myndi hætta störfum í kjöl­far birt­ingu skýrsl­unnar. Það breytt­ist þó snögg­lega og tíu dögum eftir að hún kom út var til­kynnt að hann hefði kom­ist að sam­komu­lagi við bank­ann um að láta af störfum. Í árs­reikn­ingi Lands­bank­ans fyrir árið 2016 kemur fram að laun og hlunn­indi Stein­þórs, ásamt mót­fram­lagi í líf­eyr­is­sjóð, hafi verið 24,8 millj­ónir króna í fyrra. Miðað við ell­efu mán­aða starfs­tíma á árinu var með­al­tal launa og hlunn­inda því 2,3 millj­ónir króna.

Heild­ar­greiðslur til Stein­þórs á árinu 2016 voru hins vegar 31,9 millj­ónir króna sam­kvæmt árs­reikn­ingnum. Ástæða þess er sú að hann fékk við­bót­ar­greiðslur við starfs­lok sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ingi sem voru að fullu færðar til gjalda á árinu 2016. Munurinn á heild­ar­greiðslu og launa­greiðslum er 7,1 milljón króna. Miðað við það hefur greiddur upp­sagn­ar­frestur Stein­þórs verið rúm­lega þrír mán­uðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár