Landsbankinn varð af sex milljörðum hið minnsta

Hópurinn sem keypti hlut Lands­bank­ans í Borgun hefur fengið rúm­lega allt kaup­verðið til baka á tveimur og hálfu ári. Auk þess hefur virði hlut­ar­ins nær þre­fald­ast. Rík­is­bank­inn, og þar með skatt­greið­endur, hafa orðið af millj­örðum króna vegna söl­unnar.

Ef Lands­bank­inn hefði haldið 31,2 pró­sent eign­ar­hlut sínum í Borgun, í stað þess að selja hann haustið 2014, væri virði hlut­ar­ins að minnsta kosti um 5,9 millj­arða króna virði, sam­kvæmt síð­asta verð­mati sem gert var á hlutnum. Auk þess hefði bank­inn fengið rúm­lega 2,4 millj­arða króna greidda í arð. Sam­an­lagt hefði hlut­ur­inn því getað skilað bank­anum að minnsta kosti 8,3 millj­örðum króna ef hann hefði verið seldur nú og Lands­bank­inn notið síð­ustu þriggja arð­greiðslna sem greiddar hafa verið út úr Borgun.

Þess í stað var hlut­ur­inn seldur á 2,2 millj­arða króna í nóv­em­ber 2014, á bak­við luktar dyr til hóps einka­fjár­festa sem hafa ávaxtað pund sitt ævin­týra­lega á ein­ungis tveimur og hálfu ári. Lands­bank­inn hefur því orðið af rúm­lega sex millj­örðum króna vegna söl­unnar.

Lokað ferli

Þegar Lands­bank­inn seldi Borgun var kaup­and­inn Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun. Kaupin áttu sér þann aðdrag­anda að maður að nafni Magnús Magn­ús­son, með heim­il­is­festi á Möltu, setti sig í sam­band við rík­is­bank­ann og fal­að­ist eftir eign­ar­hlutnum fyrir hönd fjár­festa. Á meðal þeirra sem stóðu að kaup­enda­hópnum voru stjórn­endur Borgunar.

Hópurinn fékk að kaupa 31,2 pró­sent hlut­inn á tæp­lega 2,2 millj­arða króna án þess að hann væri settur í opið sölu­ferli. Í fyrstu vörðu stjórn­endur Lands­bank­ans söl­una og það að hlut­ur­inn hafi ekki verið boð­inn út í opnu sölu­ferli. Það breytt­ist þó fljót­lega, sér­stak­lega þegar í ljós kom að á meðal eigna Borgunar var hlutur í Vísa Europe, sem var keyptur af Visa Inc. skömmu síðar. Þessi eign­ar­hlutur var marga millj­arða króna virði en hafði ekki verið metin þannig við söl­una á eign­ar­hlut Lands­bank­ans.

Enn fremur var ekki gerður neinn fyr­ir­vari í kaup­samn­ingnum um við­bót­ar­greiðslur vegna val­réttar Borg­unar vegna mögu­legrar sölu Visa Europe til Visa Inc.

Þrír stærstu aðil­arnir sem stóðu að Eign­ar­halds­fé­lag­inu Borgun voru gamla útgerð­ar­fyr­ir­tækið Stálskip, félagið P126 ehf. (eig­andi er félag í Lúx­em­borg og eig­andi þess er Einar Sveins­son, föð­ur­bróðir Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra) og félagið Pétur Stef­áns­son ehf. (Í eigu Péturs Stef­áns­sonar). Einhver við­skipti hafa síðan verið með hluti í Borgun frá því að Lands­bank­inn seldi sinn hlut.

Ofan­greind þrjú félög eiga þó enn í dag Eign­ar­halds­fé­lagið Borgun sem á enn 30,9 pró­sent hlut í greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­inu Borgun. Þetta er því þeir aðilar sem hafa hagn­ast mest á kaup­unum á hlut rík­is­bank­ans í Borgun.

Stjórn­endur og starfs­menn Borgunar seldu hluta af eign sinni til Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borgunar í ágúst 2015, á verði sem er langt undir virði fyr­ir­tæk­is­ins í dag. Félag stjórn­enda og starfs­manna Borgunar, BPS ehf., á í dag 3,5 pró­sent hlut í Borgun.

Mjög góður rekstur

Rekstur Borgunar hefur gengið ótrú­lega vel á und­an­förnum árum. Hagnaður árs­ins af reglu­legri starf­semi var undir einum millj­arði króna árið 2013. Í fyrra var hann rúm­lega 1,6 millj­arðar króna. En hlut­deildin í söl­unni á Visa Europe skiptir auð­vitað mestu máli þegar virð­is­aukn­ing fyr­ir­tæk­is­ins er metin. Sá lottó­vinn­ingur skil­aði Borgun 6,2 millj­örðum króna. Þrátt fyrir hana hefur virði Borgunar samt sem áður auk­ist umtals­vert.

Nýju eig­end­urnir hafa heldur betur notið þessa. Sam­tals verða greiddir 7,7 millj­arðar króna í arð­greiðslur til eig­enda Borg­unar vegna síð­ustu þriggja ára.

Salan á Borgun kostaði Steinþór Pálsson á endanun starf bankastjóra Landsbankans.
Salan á Borgun kost­aði Steinþór Pálsson á end­anun starf banka­stjóra Lands­bank­ans.

Ef Lands­bank­inn, sem er nán­ast að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins, hefði haldið 31,2 pró­sent hlut sínum í fyr­ir­tæk­inu hefði hlut­deild hans í umræddum arð­greiðslum numið 2,4 millj­örðum króna.

Í ljósi þess að hlutur Lands­bank­ans var seldur í nóv­em­ber 2014 fyrir 2.184 millj­ónir króna hafa arð­greiðsl­urnar sem runnið hafa til nýrra eig­enda að hlutnum frá því að hann var seldur verið 218 millj­ónir króna fram yfir það sem greitt var fyrir hlut rík­is­bank­ans haustið 2014. Þeir eru búnir að fá allt sitt til baka auk 218 millj­óna króna og eiga enn hlut­inn í Borgun. Virði hans hefur einnig hækkað mikið.

Eignarhluturinn hækkað mikið í verði

Borgun er ekki skráð á markað og því ekk­ert opin­bert mark­aðsvirði til fyrir fyr­ir­tækið. Stjórn Borgunar lét hins vegar vinna verð­mat á fyr­ir­tæk­inu fyrir rúmu ári síðan. KPMG vann það mat og komst að þeirri nið­ur­stöðu að virði fyr­ir­tæk­is­ins væri 19 til 26 millj­arðar króna.

Í umfjöllun Morg­un­blaðs­ins, sem greindi frá mat­inu, sagði að efri mörk verð­mats­ins tækju fullt til­lit til þeirra áhrifa sem KPMG taldi að salan á Visa Europe myndi hafa á tekjur Borgunar. Ef miðað er við neðstu mörk mats­ins, þar sem ekki er tekið til­lit til áhrifa af söl­unni á Visa Europe, er virði þess hlutar sem Lands­bank­inn seldi í Borgun 5,9 millj­arðar króna. Ef horft er á efri mörk mats­ins er virði hlut­ar­ins 8,1 millj­arður króna.

Borgun hefur ekki birt árs­reikn­ing fyrir árið 2016 og því hefur ekki verið gert opin­bert hver eig­in­fjár­staða fyr­ir­tæk­is­ins er. Í árs­lok 2015 var eigin fé Borgunar hins vegar bók­fært 10,6 millj­arðar króna. Þar mun­aði mestu um fjár­eignir sem færðar voru til sölu á gang­virði – en þar var átt við hlut­deild Borgunar í söl­unni á Visa Europe – sem bók­færðar voru á 5,4 millj­arða króna. Ef sú eign var dregin frá eigin fé fyr­ir­tæk­is­ins var það 5,2 millj­arðar króna.

Í til­kynn­ingu sem stjórn Borgunar sendi frá sér nýverið kom fram að salan á Visa Europe hafi á end­anum skilað fyr­ir­tæk­inu enn hærri upp­hæð en bók­færð var í árs­reikn­ingi 2015, eða 6,2 millj­örðum króna. Til við­bótar hagn­að­ist fyr­ir­tækið um 1,6 millj­arða króna af reglu­legri starf­semi en greiddi tæp­lega 2,2 millj­arða króna í arð til eig­enda sinna vegna frammi­stöðu árs­ins 2015. Því má ætla að bók­fært eigið fé fyrir arð­greiðslu vegna árs­ins 2016 hafi verið hærra en það var í árs­lok 2015. Þegar búið er að gera ráð fyrir útgreiðslu arðs vegna síð­asta árs sé eigið féð að minnsta kosti rúm­lega sex millj­arðar króna.

Fjár­festar styðj­ast meðal ann­ars við svo­kallað V/I hlut­fall (e. Price to book ratio) þegar þeir meta fjár­fest­ingar. Til að finna það út er mark­aðsvirði félags deilt í eigið fé þess.

Til að mark­aðsvirði Borgunar sé í neðri mörkum þess verð­mats sem KPMG gerði fyrir ári síðan, þegar búið er að taka ágóð­ann vegna sölu á Visa Europe út, þarf V/I hlut­fallið að vera tæp­lega 3,2.

Í Banda­ríkj­unum eru þrjú stærstu greiðslu­korta­fyr­ir­tækin – Visa, Mastercard og American Express – öll skráð á mark­að. Þau upp­lýsa því öll um helstu atriði í sínum rekstri í sam­ræmi við til­kynn­ing­ar­skyldu mark­að­ar­ins. Sem stendur er V/I hlut­fallið, þ.e. mark­aðsvirði deilt í eigið fé, hjá Visa 7,8, hjá Mastercard er það 20,85 og hjá American Express er það 3,4.

Annar mæli­kvarði til að meta virði fjár­fest­inga er svo­kallað V/H hlut­fall (e. Price Earnings Ratio). Hlut­fallið segir til um hversu langan tíma það tekur að greiða upp núver­andi mark­aðsvirði félags­ins sem verið er að kaupa miðað við óbreyttan hagnað þess. Ef miðað er við lægri mörk síð­asta birta verð­mats á Borgun er V/H hlut­fall fyr­ir­tæk­is­ins tæp­lega 12. Til sam­an­burðar má nefna að nefna að V/H hlut­fall skráðra greiðslu­korta­fyr­ir­tækja í Banda­ríkj­unum er á bil­inu 13,44 til 30.

Landsbankinn reynir að sækja skaðabætur

Rík­is­end­ur­skoðun birti í fyrra­haust svarta skýrslu um eigna­sölu Lands­bank­ans á und­an­förnum árum. Salan á hlut bank­ans í Borgun leikur þar aðal­hlut­verk. Í kjöl­far birt­ingu skýrsl­unnar missti Steinþór Pálsson, sem hafði verið banka­stjóri Lands­bank­ans frá 2010, starf sitt.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar kom fram að erfitt væri að meta þá fjár­hæð sem Lands­bank­inn fór á mis við þar sem hagn­aður Borgunar varð að nokkru leyti til eftir sölu eign­ar­hlut­ar­ins. Við­mæl­endur Kjarnans sem þekkja til máls­ins segja þó að sú fjár­hæð sé að minnsta kosti sú sem er rakin hér að ofan.

Banka­ráð Lands­­bank­ans til­kynnti í ágúst 2016 að ákveðið hefði verið að höfða mál fyrir dóm­stólum vegna söl­unnar á 31,2 pró­­sent eign­­ar­hlut bank­ans í Borgun hf. á árinu 2014. Þann 30. des­em­ber 2016 sendi Lands­bank­inn frá sér til­kynn­ingu þar sem greint var frá því að bank­inn hefði stefnt Borgun hf., for­stjóra Borg­unar hf., BPS ehf. og Eign­ar­halds­fé­lag­inu Borgun slf. vegna söl­unnar. Í til­kynn­ing­unni segir: „Málið er höfðað til við­ur­kenn­ingar á skaða­bóta­skyldu stefndu. Það er mat bank­ans að hann hafi orðið af sölu­hagn­aði við sölu á 31,2 pró­sent hlut sínum í Borgun hf. árið 2014. Bank­inn fékk ekki upp­lýs­ingar sem stefndu bjuggu yfir um að Borgun hf. ætti hlut í Visa Europe Ltd. og rétt­indi sem fylgdu hlutn­um, þ.á.m. mögu­lega hlut­deild í sölu­hagn­aði Visa Europe Ltd. við nýt­ingu sölu­réttar í val­rétt­ar­samn­ingi Visa Inc. og Visa Europe Ltd.“

Miðað við ofan­greint verða ansi háar upp­hæðir undir hjá Lands­bank­anum, og skatt­greið­endum eig­endum hans, í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár