Steinþór hættir sem bankastjóri Landsbankans

Steinþór Pálsson hefur látið af störfum sem banka­stjóri Lands­bank­ans. Bankaráð Lands­bank­ans og Steinþór hafa kom­ist að sam­komu­lagi um að hann láti af störfum hjá bank­anum, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá bank­anum.

Steinþór hefur verið banka­stjóri frá 1. júní 2010. Hreiðar Bjarna­son fram­kvæmda­stjóri Fjármála og stað­geng­ill banka­stjóra hefur tekið við stjórn bank­ans. Staða banka­stjóra verður aug­lýst svo fljótt sem verða má.

„Ég hef verið í Lands­bank­anum í sex og hálft við­burða­ríkt ár. Gríð­ar­lega mikið hefur áunn­ist á þessum árum við að end­ur­reisa fjár­hag heim­ila og fyr­ir­tækja. Lands­bank­inn hefur tekið stakka­skiptum á þessu tíma og ég skil sáttur við mín störf. Fjár­hags­staða bank­ans er mjög traust og mark­aðs­hlut­deild bank­ans hefur vaxið. Ég kveð sam­starfs­fólk mitt með hlýjum hug og bar­áttu­kveðjum til fram­tíðar,“ segir Steinþór Pálsson í til­kynn­ing­unni.

Mikill styr hefur staðið um bank­ann, ekki síst vegna Borg­un­ar­máls­ins. Fyrir tíu dögum síðan birti Rík­is­end­ur­skoðun svo skýrslu um fjöl­margar eigna­sölur bank­ans á árunum 2010 til 2016 og gagn­rýndi þær harð­lega. Á meðal þeirra er salan á hlut í Borgun.

Gagn­rýnin á bank­ann og stjórn­endur hans náði hámarki í mars 2016, þegar banka­ráð Lands­bank­ans greindi frá því að Banka­sýsla rík­is­ins hafi farið fram á það við sig að Stein­þóri yrði sagt upp störfum vegna Borg­un­ar­máls­ins. Enn fremur hafi stofn­unin farið fram á að for­maður og vara­for­maður banka­ráðs­ins myndu víkja. Ráðið varð ekki við því að segja upp banka­stjóra Lands­bank­ans. Þess í stað til­kynntu fimm af sjö banka­ráðs­mönnum Lands­bank­ans að þeir myndu ekki gefa kost á sér til end­ur­kjörs. Banka­sýslan hafn­aði því síðar að upp­sögn Stein­þórs hafi verið til skoð­unar hjá henni.

Í ljósi þeirrar stöðu sem uppi hefur verið, og þeirrar orð­spors­á­hættu sem Lands­bank­anum hafði verið skapað vegna Borg­un­ar­máls­ins, barst Rík­is­end­ur­skoðun form­legar og óform­legar beiðnir frá ein­staka þing­mönnum, Lands­bank­anum sjálfum og Banka­sýslu rík­is­ins um að taka eigna­sölur bank­ans síð­ustu ár til skoð­unar. Rík­is­end­ur­skoðun varð við þeirri beiðni og ákvað að skoða alla eigna­sölu Lands­bank­ans frá árinu 2010 til 2016.

Nið­ur­staða Rík­is­end­ur­skoð­unar var kynnt fyrr í mán­uð­inum. Þar eru gerðar fjöl­margar athuga­semdir við sölu Lands­bank­ans á mörgum eignum á umræddu tíma­bili. Einkum er kast­ljós­inu beint að sölu­ferli sex eigna. Sölurnar hafi farið fram í lok­uðu ferli og í sumum til­vikum hafi feng­ist „lægra verð fyrir eign­ar­hlut­ina en vænta mátti miðað við verð­mætin sem þeir geymdu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár