Ráðherrar ekki smitaðir af kórónuveiru

Nið­ur­stöður úr síð­ari skimun níu ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands vegna kór­unu­veiru reynd­ust nei­kvæðar í öllum til­fellum.

Ríkisstjórn Íslands.
Rík­is­stjórn Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Nið­ur­stöður úr síð­ari skimun níu ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands vegna kór­unu­veiru reynd­ust nei­kvæðar í öllum til­fellum. Ásmundur Einar Daða­son, félags- og barna­mála­ráð­herra og Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra voru einu ráð­herr­arnir sem þurftu ekki að fara í skimun. Þrír starfs­menn stjórn­ar­ráðs­ins sem fylgdu rík­is­stjórn­inni reynd­ust einnig nei­kvæðir í báðum skimun­unum.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem send var út á tólfta tím­anum í kvöld.

Greint var frá því á föstu­dag að ákveðið hefði verið að nær allir ráð­herrar í rík­­is­­stjórn Íslands þyrftu að fara í tvö­­falda skimun og við­hafa smit­­gát á milli, eftir að nokkur kór­ón­u­veirusmit greindust dag­inn áður hjá ein­stak­l­ingum sem dvöldu á Hótel Rangá. 

Nið­ur­stöður úr fyrri skimun allra ráð­herr­anna níu, sem lágu fyrir á laug­ar­dag, höfðu reynst nei­kvæðar í öllum til­fell­um. Ráð­herr­arnir fóru í seinni skimun­ina í dag, mánu­dag.

[adspot]Rík­is­stjórnin snæddi kvöld­verð á hót­­el­inu þriðju­dag­inn 18. ágúst, eftir að hafa haldið rík­­is­­stjórn­­­ar­fund á Hellu.

Í til­kynn­ingu sem send var út á föstu­dag kom fram að ráð­herrar rík­­is­­stjórn­­­ar­innar telj­ist til „ytri hrings hins mög­u­­lega smit­hóps“ og séu því ekki hluti þess hóps sem auknar líkur eru á að hafi verið útsettur fyrir smit­i.

Tveir ráð­herrar sluppu

Tveir ráð­herrar snæddu ekki á Hótel Rangá, Svan­­dís Svav­­­ar­s­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra og Ásmundur Einar Daða­­son félags­­­mála­ráð­herra. Þau þurftu því ekki að und­ir­­gang­­ast ráð­staf­an­irn­­ar.

Ráð­staf­­anir sótt­­varn­­ar­yf­­ir­­valda í kjöl­far athug­unar smitrakn­ing­­arteymis skipta þeim sem höfðu við­komu á Hótel Rangá í þrjá hópa.

Fyrsti hóp­­ur­inn er sá sem er lík­­­leg­astur til að hafa verið útsettur fyrir smiti og hóf í gær 14 daga sótt­­­kví. Annar hóp­­ur­inn var tal­inn minna lík­­­legur til að hafa verið útsettur fyrir smiti og fór í eina skimun og við­hefur úrvinnslu­­sótt­­kví þar til nið­­ur­­staða úr skimun berst.

Þriðji hóp­­ur­inn, sem rík­­is­­stjórnin til­­heyrir og er söm­u­­leiðis minna útsettur fyrir smit­um, þarf að fara í tvö­­falda skimun og við­hafa smit­­gát á milli, sem er sú aðferð sem notuð hefur verið fyrir heil­brigð­is­­starfs­­fólk, lög­­­reglu­­fólk, fram­lín­u­­fólk í orku­­fyr­ir­tækjum og lyk­il­­starfs­­fólk hjá fjöl­miðlum og í stjórn­­­kerf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár