Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Seðlabankinn segist ekki þurfa að svara fyrir félag sem hann átti vegna þess að því hefur verið slitið

Það er nið­ur­staða Seðla­banka Íslands að hann þurfi ekki að afhenda upp­lýs­ingar um ráð­stöfun hund­ruð millj­arða króna eigna út úr ESÍ, fjár­fest­ing­ar­leið bank­ans og stöð­ug­leika­samn­inga sem gerðir voru við kröfu­hafa föllnu bank­anna.

Seðla­banki Íslands ætlar ekki að afhenda Kjarn­anum afrit af stöð­ug­leika­samn­ing­unum sem gerðir voru árið 2015 né upp­lýs­ingar um hverjir fengu að nýta fjár­fest­ing­ar­leið hans. Þá seg­ist bank­inn ekki telja að hann þurfi að svara beiðnum um gögn sem tengj­ast Eigna­safni Seðla­banka Íslands (ESÍ) þar sem félagið sjálft hafi svarað slíkum beiðnum á starfs­tíma sínum. Nú þegar búið sé að slíta ESÍ – því var slitið 2019 – sé það ekki hlut­verk Seðla­bank­ans að taka við því hlut­verki að svara fyr­ir­spurnum til þess.

ESÍ ráð­staf­aði tæp­lega 500 millj­örðum króna af rík­is­eignum sem hið opin­bera sat uppi með eftir banka­hrunið og var oft kallað „rusla­kista Seðla­bank­ans“. Seðla­banki Íslands var eini hlut­hafi ESÍ og stjórn­ar­for­maður félags­ins við stofnun var þáver­andi seðla­banka­stjóri, Már Guð­munds­son. Með honum í stjórn félags­ins sátu yfir­lög­fræð­ingur Seðla­bank­ans og lyk­il­stjórn­andi innan hans. Seðla­bank­inn hefur árum saman unnið að gerð skýrslu um ESÍ sem átti að koma út árið 2018, en hefur enn ekki verið birt. Því liggur fyrir að bank­inn hefur öll gögn um starf­semi félags­ins undir höndum. Kjarninn vildi fá að vita hvaða eignir hafi verið færðar inn í ESÍ, hvenær þær voru seldar, á hvaða verði, hverjir voru milli­liðir og fá yfir­lit yfir kaup­endur allra þeirra eigna sem seldar voru út úr ESÍ.

Kjarninn sendi beiðn­ina um gagna­af­hend­ing­una til Seðla­bank­ans í kjöl­far þess að for­sæt­is­ráðu­neytið, sem Seðla­bank­inn heyrir undir, neit­aði að leggja mat á hvort hags­munir almenn­ings af birt­ingu ofan­greindra gagna vegi þyngra en hags­munir sem mæla með leynd. Það gerði ráðu­neytið með þeim rök­stuðn­ingi að það hefði ekki umrædd gögn undir höndum og gæti því ekki tekið afstöðu til þess hvort þagn­ar­skyldu­á­kvæði laga um starf­semi Seðla­bank­ans ætti við. Það væri bank­ans sjálfs að leggja mat á það hvort hags­munir almenn­ings af birt­ingu upp­lýs­ing­anna vegi þyngra en þeir hags­munir sem mæla með leynd. Því þyrfti að beina fyr­ir­spurn Kjarn­ans þang­að.

Kjarninn hefur óskað eftir því að Seðla­bank­inn til­greini hvaða ein­stak­lingur geti svarað fyr­ir­spurnum um ESÍ svo hægt sé að senda fyr­ir­spurnir á við­kom­andi.

Ráðuneyti vilja ekki leggja sjálfstætt mat á afhendingu

Fyr­ir­spurnir Kjarnans voru sendar eftir að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði „sjálf­stætt mat“ á að birta ætti lita yfir kaup­endur að 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka þrátt fyrir að Banka­sýsla rík­is­ins, sem heyrir undir það ráðu­neyti, teldi þá birt­ingu ekki stand­ast lög. Kjarn­inn fór fram á að for­sæt­is­ráðu­neytið legði sam­bæri­legt sjálf­stætt mat á opin­berun gagna sem Seðla­bank­inn hefur undir höndum og rök væru fyrir að eigi brýnt erindi við almenn­ing.

Þegar list­inn yfir þá sem fengu að kaupa í Íslands­banka var birtur sagði í til­kynn­ingu sem birt var á vef stjórn­ar­ráðs­ins að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefði metið málið þannig að upp­lýs­ing­ar um við­skipti á milli rík­is­sjóðs og fjár­festa falli „ekki undir banka­leynd og með hlið­sjón af mik­il­vægi þess að gagn­sæi ríki um ráð­stöfun opin­berra hags­muna hefur ráð­herra ákveðið að birta yfir­lit­ið.“

Í til­kynn­ingu for­manna sitj­andi stjórn­ar­flokka sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins 19. apríl síð­ast­lið­inn, stóð svo að traust og gagn­sæi verði að ríkja um sölu á eignum rík­is­ins. Í þeirri til­kynn­ingu sagði orð­rétt: „Al­menn­ingur á skýra og óum­deilda kröfu um að allar upp­lýs­ingar séu uppi á borðum um slík áform, mark­mið þeirra og áhrif.“

Með sömu rökum var þess óskað að for­sæt­is­ráðu­neytið legði sjálf­stætt mat á þær rök­semdir sem settar hafa verið fram um að þagn­ar­skyldu­á­kvæði skuli ríkja yfir nöfnum þeirra sem fengu að nýta sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands, mat á afhend­ingu upp­lýs­inga um ráð­stöfun eigna ESÍ og afhend­ingu stöð­ug­leika­samn­ing­anna sem gerðir voru 2015. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið var sömu­leiðis beðið um að leggja sjálf­stætt mat á afhend­ingu stöð­ug­leika­samn­ing­anna. Ráðu­neytin vildu ekki gera slíkt og bentu á Seðla­banka Íslands. Hann ætti að svara þessum fyr­ir­spurnum.

Lagabreyting sem átti að veita heimild til að aflétta leynd

Seðla­bank­inn hefur hingað til synjað afhend­ingu á umræddum gögnum á grund­velli þagn­ar­skyldu­á­kvæða laga um starf­semi hans, hvort sem um beiðnir frá þing­mönnum eða fjöl­miðlum hafi verið að ræða. Auk þess hafa fallið úrskurðir hjá úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál þar sem tekið er undir þá afstöð­u.

Í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins var hins vegar bent á að með nýjum lögum um Seðla­banka Íslands, sem sett voru árið 2019 og tóku gildi í byrjun árs 2020, hafi verið bætt við ákvæði þar sem bank­anum er veitt heim­ild til að víkja frá þagn­ar­skyldu­á­kvæði, „vegi hags­munir almenn­ings af birt­ing­unni þyngra en hags­munir sem mæla með leynd.“

Í athuga­semdum með frum­varp­inu sem varð að lög­unum segir að áður en ákvörðun sé tekin um slíka afhend­ingu þurfi að liggja fyrir grein­ing á þeim hags­munum sem veg­ast á í hverju til­viki fyrir sig. „Þá beri við mat á hags­munum almenn­ings af birt­ingu upp­lýs­inga m.a. að líta til þess hvort þær varði ráð­stöfun opin­berra hags­muna, sem almenn­ingur eigi almennt ríkan rétt til að kynna sér hvernig staðið er að.“

Kjarn­inn sendi því fyr­ir­spurnir til Seðla­bank­ans þar sem hann var beð­inn um að leggja mat á hags­muni almenn­ings af birt­ingu gagn­anna og að rök­styðja það mat.

Neita að afhenda stöðugleikasamninga

Seðla­bank­inn svar­aði Kjarn­anum í þess­ari viku. Bankinn neit­aði að afhenda stöð­ug­leika­samn­ing­anna meðal ann­ars á þeim grund­velli þess að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hafi áður neitað að afhenda hann, og að úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hafi stað­fest að sú neitun ætti sér stoðir.

Þess ber að geta að Kjarninn hafði áður óskað eftir því að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið myndi afhenda miðl­inum samn­ing­ana. Í svari við þeirri beiðni vís­aði ráðu­neytið á Seðla­banka Íslands sem var samn­ings­að­ili við gerð samn­ing­ana.

Seðla­bank­inn vís­aði í fyrstu máls­grein greinar laga um starf­semi sína sem fjallar um þagn­ar­skyldu þegar hann svar­aði fyr­ir­spurn Kjarnans og neit­aði að afhenda samn­ing­ana.

Það ákvæði veitir Seðla­bank­anum opna heim­ild til að neita almenn­ingi og fjöl­miðlum aðgang að nán­ast hverju sem er. Vegna þessa var áður­nefndu nýju ákvæði bætt inn í lög um Seðla­bank­ann fyrir þremur árum síðan þar sem honum var veitt heim­ild til að víkja frá þagn­ar­skyldu­á­kvæði.

Hagsmunir almennings látnir víkja fyrir hagsmunum viðskiptamanna

Fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands var opin 2012 til 2015. Allt í allt komu um 1.100 millj­­­­­­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leið­­­­­­ar­inn­­­­­­ar, sem sam­svar­aði um 206 millj­­­­örðum króna. 794 inn­­­­­­­­­­­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­­­­­­kerfi í gegnum útboðin á tíma þar sem ströng fjár­­­magns­höft voru við lýði. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­­­­­­sent þeirrar fjár­­­­­­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­­­­­­ari leið, en hún tryggði allt að 20 pró­­­­­­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi. Alls fengu þessir aðilar 72 millj­­­­­­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­­­­­­kvæmt skil­­­­­­málum útboða fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leið­­­­­­ar­inn­­­­­­ar.

Seðla­bank­inn hefur aldrei viljað upp­lýsa um hverjir það voru sem fengu að nýta þessa leið. Í svari hans nú er bent á að beiðni Kjarnans um aðgengi að slíkum upp­lýs­ingum hafi áður verið hafnað af úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál með úrskurði 31. jan­úar 2019.

Sá úrskurður féll hins vegar áður en nýju lögin, sem leggja rík­ari skyldur á Seðla­banka Íslands um að afhenda gögn með til­liti til almanna­hags­muna, tóku gildi.

Már Guðmundsson, þáverandi seðlabankastjóri, var stjórnarformaður Eignasafns Seðlabanka Íslands.
Már Guð­munds­son, þáver­andi seðla­banka­stjóri, var stjórn­ar­for­maður Eigna­safns Seðla­banka Íslands.

Í svari Seðla­banka Íslands segir að það sé nægj­an­legt að umbeðnar upp­lýs­ingar falli að þagn­ar­skyldu­á­kvæði laga um starf­semi bank­ans, að þær varði hagi við­skipta­manna bank­ans, við­skipti og rekstur eft­ir­lits­skylda aðila, tengdra aðila eða ann­arra og mál­efni bank­ans sjálfs, svo og önnur atriði sem leynt skulu fara sam­kvæmt lögum eða eðli máls, til að upp­lýs­inga­réttur almenn­ings verði tak­mark­aður á grund­velli ákvæð­is­ins. „Um hags­muna­mat sam­kvæmt 6. mgr. 41. gr. laga nr. 92/2019 er það að segja að eftir skoðun á umbeðnum gögnum er það mat Seðla­bank­ans að þau séu und­ir­orpin sér­stakri þagn­ar­skyldu á grund­velli 1. mgr. sama ákvæðis. Í slíku mati felst að meintir hags­munir almenn­ings af því að fá að kynna sér upp­lýs­ingar eru látnir víkja fyrir meiri hags­munum Seðla­bank­ans sjálfs og í þessu til­viki við­skipta­manna hans að um þær ríki leynd.“

Þagnarskylda trompar almannahagsmuni af því að vita

Þá að brot gegn þagn­ar­skyldu­á­kvæði laga um Seðla­banka Íslands geti varðað refs­ingu með sektum eða fang­elsi. „Þar sem það er mat bank­ans að ann­ars vegar stöð­ug­leika­samn­ingar við föllnu bank­ana og hins vegar gögn um þátt­tak­endur í fjár­fest­ing­ar­leið séu háð þagn­ar­skyldu er honum bein­línis skylt að synja um aðgang að þeim.“

Samkvæmt þessum rök­stuðn­ingi virð­ist Seðla­banki Íslands telja að það við­bót­ar­á­kvæði sem bætt var inn í lög um starf­semi hans sé í raun mark­laust. Kjarninn hefur óskað eftir upp­lýs­ingum frá Seðla­bank­anum um hvort það sé skiln­ingur bank­ans og hvort hann telji þar af leið­andi að breyt­ingin á lög­unum árið 2019, í frum­varpi lagt fram af for­sæt­is­ráð­herra og sam­þykkt með meiri­hluta atkvæða á Alþingi, hafi ekki raun­veru­lega virkni þar sem hags­munir almenn­ings á að fá að vita séu aldrei raun­veru­lega metnir.

Kjarninn hefur gert athuga­semdir við þessi svör og kallað eftir því að Seðla­bank­inn meti almanna­hags­muni af því að veita aðgengi að gögn­unum og rök­styðji nið­ur­stöðu sína á grund­velli þess mats, líkt og lög segja til um að honum beri að gera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár