Forsætisráðuneytið metur ekki hvort afhenda eigi gögn um ESÍ og fjárfestingaleiðina

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra lagði „sjálf­stætt mat“ á almanna­hags­muni af birt­ingu lista yfir þá sem keyptu nýverið í Íslands­banka. For­sæt­is­ráðu­neytið telur það ekki hlut­verk sitt að leggja sam­bæri­legt mat á birt­ingu gagna frá Seðla­bank­anum.

For­sæt­is­ráðu­neytið telur það ekki sitt hlut­verk að leggja mat á hvort hags­munir almenn­ings af birt­ingu gagna um sölu á mörg hund­ruð millj­arða króna eignum Eigna­safn Seðla­banka Íslands (ESÍ) og um hverjir fengu að nýta sér fjár­fest­inga­leið Seðla­bank­ans vegi þyngra en þeir hags­munir sem mæli með leynd yfir þeim upp­lýs­ingum. Sömu sögu sé að segja um opin­berum á stöð­ug­leika­samn­ing­unum sem stjórn­völd gerðu við kröfu­hafa föllnu bank­anna árið 2015, sem heim­il­uðu erlendum kröfu­höfum að fara með miklar eignir gegn því að greiða svo­kallað stöð­ug­leika­fram­lag.

Ráðu­neytið segir að það sé Seðla­bank­ans að leggja mat á hvort opin­bera eigi upp­lýs­ing­arnar.

Þetta kemur fram í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans sem send var til þess í síð­asta mán­uði.

Fordæmi fyrir „sjálfstæðu mati“ á birtingu

Fyr­ir­spurnin var send eftir að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði „sjálf­stætt mat“ á að birta ætti lista yfir kaup­endur að 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka þrátt fyrir að Banka­sýsla rík­is­ins, sem heyrir undir það ráðu­neyti, teldi þá birt­ingu ekki stand­ast lög. Kjarninn fór fram á að for­sæt­is­ráðu­neytið legði sam­bæri­legt sjálf­stætt mat á opin­berun gagna sem Seðla­bank­inn hefur undir höndum og rök væru fyrir að eigi brýnt erindi við almenn­ing.

Þegar list­inn yfir þá sem fengu að kaupa í Íslands­banka var birtur sagði í til­kynn­ingu sem birt var á vef stjórn­ar­ráðs­ins að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefði metið málið þannig að upp­lýs­ingar um við­skipti á milli rík­is­sjóðs og fjár­festa falli „ekki undir banka­leynd og með hlið­sjón af mik­il­vægi þess að gagn­sæi ríki um ráð­stöfun opin­berra hags­muna hefur ráð­herra ákveðið að birta yfir­litið.“

Í til­kynn­ingu for­manna sitj­andi stjórn­ar­flokka sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins 19. apríl síð­ast­lið­inn, stóð svo að traust og gagn­sæi verði að ríkja um sölu á eignum rík­is­ins. Í þeirri til­kynn­ingu sagði orð­rétt: „Almenn­ingur á skýra og óum­deilda kröfu um að allar upp­lýs­ingar séu uppi á borðum um slík áform, mark­mið þeirra og áhrif.“

Nýafstaðið söluferli þar sem fyllsta gagnsæis var heitið

Í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins segir að þegar fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið ákvað að birta lista yfir aðila sem keyptu hlut í öðrum áfanga sölu Íslands­banka hafi verið um að ræða gögn sem ráðu­neytið fékk afhent frá Banka­sýslu rík­is­ins. Ráðu­neytið hafi metið sem svo að lög stæðu ekki í vegi fyrir birt­ingu, þrátt fyrir að þær stofn­anir og lög­menn sem Banka­sýslan leit­aði til vegna máls­ins hafi verið á önd­verðu meiði. Birting gagn­anna var rök­studd með því að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefði ein­fald­lega lagt „sjálf­stætt mat“ á þær rök­semdir sem fram höfðu verið settar og kom­ist að annarri nið­ur­stöðu.

For­sæt­is­ráðu­neytið segir í svari sínu að þar hafi verið um að ræða sölu­ferli sem var þá nýaf­staðið og þar sem stjórn­völd höfðu fyr­ir­fram heitið fyllsta gagn­sæi. „Sala Íslands­banka var á for­ræði fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og kom for­sæt­is­ráð­herra að und­ir­bún­ingi máls­ins í gegnum ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál. For­sæt­is­ráðu­neytið hafði hins vegar ekki aðkomu að þeim málum sem vísað er til í fyr­ir­spurnum þínum.“

Óskað eftir því að ráðuneytið legði „sjálfstætt mat“ á birtingu

Þau gögn sem Kjarninn kall­aði eftir að for­sæt­is­ráðu­neytið beitti sér fyrir að opin­bera varða ráð­staf­anir upp á mörg hund­ruð millj­arða króna.

Bjarni Benediktsson lagði „sjálfstætt mat“ á birtingu á lista yfir þá sem keyptu í Íslandsbanka.
Bjarni Bene­dikts­son lagði „sjálf­stætt mat“ á birt­ingu á lista yfir þá sem keyptu í Íslands­banka.

ESÍ starf­aði frá 2009 og út árið 2017. Félagið hafði það hlut­verk að koma eignum og kröfur sem Seðla­banki Íslands sat uppi með eftir banka­hrunið í verð. Umfang eigna og krafna sem ESÍ hélt á eftir hrunið var 490 millj­arðar króna sam­kvæmt svari þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn á þingi í sept­em­ber 2017. ESÍ naut lengi und­an­þágu frá upp­lýs­inga­lögum en sú und­an­þága rann út í des­em­ber 2018. Félaginu var slitið 2019.

Kjarninn óskaði eftir því að for­sæt­is­ráðu­neytið legði sam­bæri­legt sjálf­stætt mat á að upp­lýs­ingar um ráð­stöfun þess­ara eigna yrðu gerðar opin­berar og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra gerði varð­andi list­ann yfir þá sem keyptu í Íslands­banka.

Með sömu rökum var þess óskað að for­sæt­is­ráðu­neytið legði sjálf­stætt mat á þær rök­semdir sem settar hafa verið fram um að þagn­ar­skyldu­á­kvæði skuli ríkja yfir nöfnum þeirra sem fengu að nýta sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands á frá febr­úar 2012 til febr­úar 2015. Allt í allt komu um 1.100 millj­­­­­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­­­­­­­­­fest­ing­­­­­ar­­­­­leið­­­­­ar­inn­­­­­ar, sem sam­svar­aði um 206 millj­­­örðum króna. 794 inn­­­­­­­­­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­­­­­kerfi í gegnum útboð fjár­­­­­­­­­fest­ing­­­­­ar­­­­­leiðar Seðla­­­­­banka Íslands á tíma þar sem ströng fjár­magns­höft voru við lýði. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­­­­­sent þeirrar fjár­­­­­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­­­­­ari leið, en hún tryggði allt að 20 pró­­­­­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi. Alls fengu þessir aðilar 72 millj­­­­­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­­­­­kvæmt skil­­­­­málum útboða fjár­­­­­­­­­fest­ing­­­­­ar­­­­­leið­­­­­ar­inn­­­­­ar. Að mati Kjarnans er þar um að ræða hóp sem fékk afhent gæði umfram almenna borg­ara sem leiddu til tæki­færa sem almennir borg­arar fengu ekki.

Að lokum var þess óskað að stöð­ug­leika­samn­ing­arnir yrðu gerðir opin­berir með vísun til almanna­hags­muna.

Hefur heimild til að afnema leynd

For­sæt­is­ráðu­neytið sagð­ist ekki hafa umrædd gögn undir höndum og gæti því ekki tekið afstöðu til þess hvort þagn­ar­skyldu­á­kvæði laga um starf­semi Seðla­bank­ans ætti við. Það væri bank­ans sjálfs að leggja mat á það hvort hags­munir almenn­ings af birt­ingu upp­lýs­ing­anna vegi þyngra en þeir hags­munir sem mæla með leynd. Því þyrfti að beina fyr­ir­spurn Kjarnans þangað.

Seðla­bank­inn hefur hingað til synjað afhend­ingu á umræddum gögnum á grund­velli þagn­ar­skyldu­á­kvæða, hvort sem um beiðnir frá þing­mönnum eða fjöl­miðlum hafi verið að ræða. Auk þess hafa fallið úrskurðir hjá úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál þar sem tekið er undir þá afstöðu.

Í svarið ráðu­neyt­is­ins er hins vegar bent á að með nýjum lögum um Seðla­banka Íslands, sem sett voru árið 2019, hafi verið bætt við ákvæði þar sem bank­anum er veitt heim­ild til að víkja frá þagn­ar­skyldu­á­kvæði, „enda vegi hags­munir almenn­ings af birt­ing­unni þyngra en hags­munir sem mæla með leynd.“

Í athuga­semdum með frum­varp­inu sem varð að lög­unum segir að áður en ákvörðun sé tekin um slíka afhend­ingu þurfi að liggja fyrir grein­ing á þeim hags­munum sem veg­ast á í hverju til­viki fyrir sig. „Þá beri við mat á hags­munum almenn­ings af birt­ingu upp­lýs­inga m.a. að líta til þess hvort þær varði ráð­stöfun opin­berra hags­muna, sem almenn­ingur eigi almennt ríkan rétt til að kynna sér hvernig staðið er að.“

Kjarninn sendi í gær fyr­ir­spurn til Seðla­bank­ans þar sem hann var beð­inn um að leggja mat á hags­muni almenn­ings af birt­ingu gagn­anna og að rök­styðja það mat.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár