Seðlabankinn braut jafnréttislög

Bankinn réði konu og karl á sama svið og á sama tíma. Þau höfðu sömu menntun og svip­aða reynslu en laun kon­unnar voru frá upp­hafi lægri en karls­ins.

Seðla­banki Íslands braut gegn jafn­rétt­islögum og þarf að greiða konu, sem kærði bank­ann, 250 þús­und krónur í máls­kostnað sam­kvæmt úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála.

Konan var ráðin inn til bank­ans í maí 2014 sem sér­fræð­ingur í und­an­þágu­deild gjald­eyr­is­eft­ir­lits bank­ans og á sama tíma var ráð­inn inn karl í sam­bæri­lega stöðu sem sér­fræð­ingur í rann­sókn­ar­deild gjald­eyr­is­eft­ir­lits bank­ans. Konan og karl­inn luku meist­ara­námi í lög­fræði með árs milli­bili og höfðu bæði aflað sér mál­flutn­ings­rétt­inda. Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála bendir á í sínum úrskurði að þau séu nán­ast á sama aldri og hafi verið svipað lengi á vinnu­mark­aði eftir útskrift. Nákvæm­lega sömu hæfn­is­kröfur voru einnig gerðar í aug­lýs­ingu fyrir störfin tvö og við ráðn­ingu var þeim báðum raðað í sama launa­flokk­inn og sama þrepið innan þess flokks.

Nið­ur­staða Seðla­bank­ans við ákvörðun launa var hins vegar að konan fékk 17 pró­senta álag ofan á kjara­samn­ings­launin en karl­inn fékk 32,4 pró­senta álag ofan á sín laun.

Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála segir Seðla­bank­anum ekki hafa tek­ist að sýna fram á að launa­mun­ur­inn milli kon­unnar og karls­ins hafi komið til vegna nokk­urs ann­ars en kyn­ferðis þeirra.

Seðla­bank­inn hélt því fram í mál­inu að öll laun starfs­manna í gjald­eyr­is­eft­ir­liti séu ákveðin með sama hætti, óháð því hvort um sé að ræða konur eða karla. Hlutfall álags­ins sem um ræðir er ákvarðað með til­liti til mál­efna­legra sjón­ar­miða, segir Seðla­bank­inn, eins og mennt­unar, þekk­ingar og reynslu af þeim við­fangs­efnum sem við­kom­andi er að fara að takast á hendur. Við þessa ákvörðun fari fram hug­lægt mat­sem grund­vall­ist á upp­lýs­ingum úr umsókn, fer­il­skrá og starfsvið­tali.

Seðla­bank­inn segir að karl­inn hafi verið tal­inn búa yfir víð­tæk­ari þekk­ingu og starfs­reynslu á þeim sviðum sem skiptu máli, og þess vegna hafi honum verið ákvarðað hærra álag. Hann hafi getað án sér­stakrar aðlög­unar og til­sagnar hafið rann­sókn á flóknum málum.

Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála bendir á að þetta þýði að ákvörðun um álag var tekin áður en báðir ein­stak­lingar hófu störf hjá bank­anum. Þekking þeirra var ekki prófuð en matið sem var fram­kvæmt byggð­ist helst á því sem þau sögðu í ráðn­ing­ar­við­tölum. „Það getur vart talist mál­efna­legt í þessum efnum að leggja til grund­vallar ólíkar upp­lýs­ingar sem fram koma í ráðn­ing­ar­við­tölum“ segir nefndin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár